Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Blaðsíða 34
Brot af því besta 22. mars 2019KYNNINGARBLAÐ
„Hverri kistu fylgir ákveðin tilfinning“
Litla trésmiðjan, líkkistu vinnustofa og trésmiðja var stofnuð á Akureyri í janúar árið 2010.
Flestar kisturnar eru seldar í gegnum
Útfararstofu Kirkjugarða Akureyr-
ar, en einnig selur Litla trésmiðjan
út fyrir Akureyri. Fólk kemur til Litlu
trésmiðjunnar til að skoða og segir
eigandi hennar það alltaf góða tilf-
inningu.
„Ég er aðallega að smíða líkkistur,“
segir Sigurður Óli Þórisson, trésmiður
og eigandi Litlu trésmiðjunnar. „Einnig
smíða ég glugga og opnanleg fög í
eldra húsnæði og stundum hurðir.
Svo eru húsgagnaviðgerðir hluti af
starfseminni, bæði á nýjum og svo
eldri húsgögnum.“
Sigurður Óli flutti 17 ára til
Akureyrar, lærði húsasmíði og fékk
meistararéttindi og hefur unnið við
trésmíðar meira og minna allt sitt
líf, eins og hann segir sjálfur. Eftir
hrun hannaði hann, ásamt Sæmundi
Friðfinnssyni, líkkistuna sem fyrst var
framleidd hjá Tréborg á Akureyri. Árið
2010 ákvað Sigurður Óli að halda
einn áfram með líkkistusmíðina og
hefur hann starfað við það síðan.
Umræðan um andlát orðin opnari
frá því sem áður var
„Það er opnari umræða í dag,
andlát og útfarir voru lítið rædd á
almannafæri áður fyrr. Nú er fólk
opnara fyrir þessum hlutum. Það er
betra að það sé þannig. Eftir fæðingu
verður dauðinn ekki umflúinn. Hins
vegar eru endalokin ekki alltaf
tímabær því miður.“
Íslensk hönnun smíðuð af
kostgæfni
Líkkisturnar eru aðallega smíðaðar úr
MDF-plötum og sprautaðar hvítar. „Í
gamla daga voru líkkisturnar svartar,
þá voru þær bikaðar. Síðan urðu
þær hvítar, en ég hef einnig sprautað
þær í lit eftir óskum hverju sinni. Við
hönnun fórum við aftur í tímann með
formið og fólki finnst vel hafa til tekist.
Maður er ánægður og stoltur,“ segir
Sigurður Óli. „Maður er einn að vinna
við smíðina, þannig að hún er íslenskt
handverk og hönnun, ekki verksmiðju-
framleiðsla. Ég vinn hverja kistu alveg
frá upphafi til enda, ég smíða krossa,
alla fylgihluti og bólstra kistuna.
Gæðaeftirlitið er þannig, að þegar
ég er orðinn ánægður með hand-
verkið má afhenda kistuna. Ein kista
er gott dagsverk. Stærri kistur eru
meiri vinna og því aðeins dýrari. Samt
stenst Litla trésmiðjan allan verð-
samanburð. Innflutningur er stærsti
keppinauturinn.“
Litla trésmiðjan er að Austursíðu 2,
Akureyri. Síminn er 898-7686 og
heimasíðan er kistur.is.
LITLA TRÉSMIÐJAN: