Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Síða 34
Brot af því besta 22. mars 2019KYNNINGARBLAÐ „Hverri kistu fylgir ákveðin tilfinning“ Litla trésmiðjan, líkkistu vinnustofa og trésmiðja var stofnuð á Akureyri í janúar árið 2010. Flestar kisturnar eru seldar í gegnum Útfararstofu Kirkjugarða Akureyr- ar, en einnig selur Litla trésmiðjan út fyrir Akureyri. Fólk kemur til Litlu trésmiðjunnar til að skoða og segir eigandi hennar það alltaf góða tilf- inningu. „Ég er aðallega að smíða líkkistur,“ segir Sigurður Óli Þórisson, trésmiður og eigandi Litlu trésmiðjunnar. „Einnig smíða ég glugga og opnanleg fög í eldra húsnæði og stundum hurðir. Svo eru húsgagnaviðgerðir hluti af starfseminni, bæði á nýjum og svo eldri húsgögnum.“ Sigurður Óli flutti 17 ára til Akureyrar, lærði húsasmíði og fékk meistararéttindi og hefur unnið við trésmíðar meira og minna allt sitt líf, eins og hann segir sjálfur. Eftir hrun hannaði hann, ásamt Sæmundi Friðfinnssyni, líkkistuna sem fyrst var framleidd hjá Tréborg á Akureyri. Árið 2010 ákvað Sigurður Óli að halda einn áfram með líkkistusmíðina og hefur hann starfað við það síðan. Umræðan um andlát orðin opnari frá því sem áður var „Það er opnari umræða í dag, andlát og útfarir voru lítið rædd á almannafæri áður fyrr. Nú er fólk opnara fyrir þessum hlutum. Það er betra að það sé þannig. Eftir fæðingu verður dauðinn ekki umflúinn. Hins vegar eru endalokin ekki alltaf tímabær því miður.“ Íslensk hönnun smíðuð af kostgæfni Líkkisturnar eru aðallega smíðaðar úr MDF-plötum og sprautaðar hvítar. „Í gamla daga voru líkkisturnar svartar, þá voru þær bikaðar. Síðan urðu þær hvítar, en ég hef einnig sprautað þær í lit eftir óskum hverju sinni. Við hönnun fórum við aftur í tímann með formið og fólki finnst vel hafa til tekist. Maður er ánægður og stoltur,“ segir Sigurður Óli. „Maður er einn að vinna við smíðina, þannig að hún er íslenskt handverk og hönnun, ekki verksmiðju- framleiðsla. Ég vinn hverja kistu alveg frá upphafi til enda, ég smíða krossa, alla fylgihluti og bólstra kistuna. Gæðaeftirlitið er þannig, að þegar ég er orðinn ánægður með hand- verkið má afhenda kistuna. Ein kista er gott dagsverk. Stærri kistur eru meiri vinna og því aðeins dýrari. Samt stenst Litla trésmiðjan allan verð- samanburð. Innflutningur er stærsti keppinauturinn.“ Litla trésmiðjan er að Austursíðu 2, Akureyri. Síminn er 898-7686 og heimasíðan er kistur.is. LITLA TRÉSMIÐJAN:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.