Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Blaðsíða 46
Brot af því besta 22. mars 2019KYNNINGARBLAÐ PRONET: Háþróuð öryggistæki og eftirlitskerfi fyrir heimili og fyrirtæki ProNet er sérhæft fyrirtæki á sviði fjarskiptalausna með ára-tuga reynslu af uppbyggingu á ljósleiðarakerfum og öðrum fjarskiptakerfum, öryggis- og mynda- vélakerfum, bæði á Íslandi og erlendis. ProNet rekur öfluga framkvæmda- deild með starfsmönnum sem hafa viðamikla reynslu úr tæknigeiran- um. Tækjabúnaður fyrirtækisins samanstendur af nýjustu og bestu tækjum sem völ er á, og starfs- mennirnir eru þrautþjálfaðir í að leysa öll verkefni, stór sem smá, hvort sem um er að ræða byggingu nýs kerfis, eða mælingu, úttekt eða viðhald eldri kerfa. ProNet rekur öfluga heildsölu/ smásölu og flytur m.a. inn efni fyrir lagna- og netkerfi, verkfæri, raftæki o.fl. Styrkur fyrirtækisins felst í að bjóða vörur á mjög hagstæðu verði, en kannski ekki síður að vörurnar eru valdar af fagmönnum með mikla reynslu. Helstu birgjar ProNet í örygg- iskerfum eru Tiandy (myndavélar og myndþjónar), Protec (brunavið- vörunarkerfi), Digifort (myndavéla- hugbúnaður), TELL (vöktunarkerfi) og Maxkin (öryggiskerfi). Tiandy – öryggismyndavélar og vídeóþjónar Frá Tiandy býður ProNet upp á myndavélar frá 2Mp upp í 12. Til eru vélar með föstum linsum, stillanlegum (varifocal) og stýranlegum (motorised). Ávallt eru til a.m.k. tíu gerðir á lager hverju sinni. Einnig eru í boði PTZ-vélar með frá 20 og upp í 44 x optical aðdrátt sem staðal- búnað. Enn fremur eru í boði vídeóþjónar frá Tiandy (NVR upptökutæki) frá 4 og upp í 80 rása með 1 og upp í 8 harða diska. Þessi tæki eru bæði til með PoE og án. Einnig eru til PoE- -beinar til að bæta við kerfum. Kerfin eru einföld í uppsetningu og stillingum. Reyndar eru flest kerfi afhent stillt og uppsett. ProNet setur einnig upp tengingu við síma og spjaldtölvur fyrir viðskiptavini, þeim að kostnaðarlausu. Protec – brunaviðvörunartæki Protec Algo-Tec(tm) 6100 er hr- ingtengt, stafrænt og tölvustýrt eldskynjunar- og viðvörunarkerfi sem hentar fyrir litlar og meðalstór- ar byggingar, s.s. verslanir, hótel og skrifstofur. Stjórnborð kerfisins er hannað og smíðað af Protec og uppfyllir EN 54-2 og 4 eldvarnar- staðla ESB. Stjórnborðið er hægt að festa á vegg, en einnig hægt að fella það inn, sé þess þörf. Algo-Tec 6100 stjórnborðið er hringtengt með getu til að tengjast og stýra 192 tengipunktum, auk þess að geta tengst og stjórnað öllum stjórnborðum, nemum, viðvörunar- bjöllum, viðvörunarljósum og hand- virkum neyðarboðum. Algo-Tec 6000PLUS línuna er einnig hægt að tengja inn í Algo-Tec 6300 upplýsingaskjái sem sýna viðburði með sjálfvirkum flettingum á texta. Með þeim möguleikum sem þetta kerfi býður upp á er hægt að byggja upp öflugt og öruggt stafrænt eldvarnarkerfi, með mun einfaldari lagnavinnu en áður, með þeim sparnaði sem því fylgir. Fjöldi aukahluta er fáanlegur með stöðinni. Optískir reykskynjar- ar, skynjarar með viðvörunarbjöllu, hitanemar, sambyggðir reyk- og hitanemar, handboðar, geislanemar, loftstokkanemar, sírenur og margt annað. ProPoint PLUS Aspirating er reyksogskerfi, sérstaklega hannað fyrir loftstokka, lyftugöng og t.d. fangelsi eða aðra staði þar sem rafbúnaður hentar ekki. Í staðinn fyrir hefðbundna reykskynjara er kerfið byggt upp þannig að það sýgur loft í gegnum litla pípu og sendir sýni í greiningarbúnað sem skilgreinir agnir og lætur vita ef grunur er um eld. Kerfið er meðal annars notað þar sem hátt er til lofts og viðhald og eftirlit getur verið kostnaðarsamt. Digifort – myndaeftirlitskerfi Digifort myndaeftirlitskerfi er í ferns konar útfærslu eftir fjölda myndavéla og möguleika sem kerfi bjóða upp á. Fjöldi myndavéla í Digifort Explorer er 4-16, í Standard 4-32, í Professional 8-64 og Enterprise 8-ótakmarkað. Einnig er hægt að bjóða upp á númeraplötugreiningu, ítarlega vídeógreiningu, andlitsgreiningu og viðvörun og sjálfvirkni (Alarm and Automation). Möguleiki er á því að tengja allar þessar einingar við hvaða kerfi sem er. Digifort hugbúnaðurinn gengur með myndavélum frá flestum framleiðendum heims. T.E.L.L. eru öryggiseiningar sem hægt er að tengja við hvaða tæki sem er og senda þaðan boð í vöktunarmiðstöð. Einingarnar eru til í IP og 3G og allt frá 1 rás upp í 6 rásir. Enn fremur er ProNet að prufukeyra sitt eigið vöktunarkerfi sem kynnt verður á næstunni. Maxkin – þráðlaus öryggiskerfi fyrir heimili og lítil fyrirtæki Frá Maxkin koma öryggiskerfi sem henta fyrir heimili og lítil fyrirtæki. Kerfin geta tengst WiFi og GSM- -neti. Hægt er að fá auka lykla- borð, reykskynjara, fjarstýringar, hurðanema, vatnsnema, sírenur og fleira. Nánari upplýsingar um þessar vörur og margar fleiri er að finna á vefsíð- unni pronet.is Pronet er einnig með vörur frá General Cable, Tecnosteel, Coromatic, Ablerex, Cubis, Lantech, LinkBasic og Moxa. ProNet er til húsa að Ögurhvarfi 2, Kópavogi. Símanúmer er 540- 3520.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.