Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Blaðsíða 22
Allt fyrir dýrin 22. mars 2019KYNNINGARBLAÐ
Bendir er sérverslun með hundavörur sem hefur verið opin frá árinu 2010 og hefur
alla tíð fengið góðar viðtökur auk
þess að hafa vaxið jafnt og þétt frá
opnun. Verslunin leggur ríka áherslu á
góða þjónustu og vandaðar vörur og
býður upp á fjölbreytt vöruúrval fyrir
vinnuhunda, veiðihunda og venjulega
heimilishunda.
Einnig býður verslunin upp á mikið
úrval af leikföngum, búrum, ólum
og beislum auk margra aukahluta
sem eigendurnir geta notið góðs af.
Þar á meðal ýmis konar ferða- og
öryggisbúnað ásamt DVD-diskum um
hundaþjálfun.
Þau Einar Páll og Sigríður Odd-
ný, eða Palli og Sigga eins og
þau eru kölluð, hafa verið hunda-
eigendur í mörg ár og stundað ýmis
konar sport tengt hundum. Þau
eiga Vorstehhunda og eru með
ræktunarnafnið Bendishundar,
þau hafa tekið þátt í sýningum og
veiðiprófum ásamt því að þau veiða
með sínum hundum.
Sigga átti sem unglingur
blending og seinna meir þýska
fjárhunda (Schäfer), bæði innflutta
og ræktaða hér heima. Með þeim
hundum stundaði hún t.d. spora-
þjálfun og hlýðni. Áður en Bendir
varð til hafði hún starfað í um 9 ár
í gæludýraverslun. Sigga starfaði
við Skapgerðarmat á vegum
HRFÍ og lærði til fígúrant A og B
í skapgerðarmati, lauk svo námi
sem prófstjóri. Um tíma vann hún
á skrifstofu HRFÍ og hefur komið
nálægt mörgu hundatengdu, sótt
ýmis námskeið, setið í stjórnum deilda
og sinnt ýmsum sjálfboðastörfum
fyrir HRFÍ.
Palli átti áður Labradorhunda sem
voru mikið með honum á veiðum en
hann stundaði skotíþróttir og veiði
af miklum krafti með góðum árangri.
Hann hefur náð góðum árangri í
veiðiþjálfun með sína hunda bæði
Labrador sem og Vorsteh. Áður
starfaði hann í veiðigeiranum og sem
leiðsögumaður.
Þess ber að geta að verslun-
in sendir vörur um land allt og
er staðsett við Hlíðarsmára 12 í
Kópavogi.
Vandaðar vörur fyrir
ýmsar tegundir hunda