Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Side 22
Allt fyrir dýrin 22. mars 2019KYNNINGARBLAÐ Bendir er sérverslun með hundavörur sem hefur verið opin frá árinu 2010 og hefur alla tíð fengið góðar viðtökur auk þess að hafa vaxið jafnt og þétt frá opnun. Verslunin leggur ríka áherslu á góða þjónustu og vandaðar vörur og býður upp á fjölbreytt vöruúrval fyrir vinnuhunda, veiðihunda og venjulega heimilishunda. Einnig býður verslunin upp á mikið úrval af leikföngum, búrum, ólum og beislum auk margra aukahluta sem eigendurnir geta notið góðs af. Þar á meðal ýmis konar ferða- og öryggisbúnað ásamt DVD-diskum um hundaþjálfun. Þau Einar Páll og Sigríður Odd- ný, eða Palli og Sigga eins og þau eru kölluð, hafa verið hunda- eigendur í mörg ár og stundað ýmis konar sport tengt hundum. Þau eiga Vorstehhunda og eru með ræktunarnafnið Bendishundar, þau hafa tekið þátt í sýningum og veiðiprófum ásamt því að þau veiða með sínum hundum. Sigga átti sem unglingur blending og seinna meir þýska fjárhunda (Schäfer), bæði innflutta og ræktaða hér heima. Með þeim hundum stundaði hún t.d. spora- þjálfun og hlýðni. Áður en Bendir varð til hafði hún starfað í um 9 ár í gæludýraverslun. Sigga starfaði við Skapgerðarmat á vegum HRFÍ og lærði til fígúrant A og B í skapgerðarmati, lauk svo námi sem prófstjóri. Um tíma vann hún á skrifstofu HRFÍ og hefur komið nálægt mörgu hundatengdu, sótt ýmis námskeið, setið í stjórnum deilda og sinnt ýmsum sjálfboðastörfum fyrir HRFÍ. Palli átti áður Labradorhunda sem voru mikið með honum á veiðum en hann stundaði skotíþróttir og veiði af miklum krafti með góðum árangri. Hann hefur náð góðum árangri í veiðiþjálfun með sína hunda bæði Labrador sem og Vorsteh. Áður starfaði hann í veiðigeiranum og sem leiðsögumaður. Þess ber að geta að verslun- in sendir vörur um land allt og er staðsett við Hlíðarsmára 12 í Kópavogi. Vandaðar vörur fyrir ýmsar tegundir hunda

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.