Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Blaðsíða 36
Brot af því besta 22. mars 2019KYNNINGARBLAÐ
Grillað á staðnum og
enginn þarf að vaska upp
Vinsælast hjá okkur í dag er heilgrillað lambalæri og grillaðar kalkúnabringur. Með
þessu eru gjarnan ostagratín-kart-
öflur, salat með fetaosti, bernaise-
-sósa og rauðvínssósa,“ segir Svanur
Hafsteinsson, eigandi Grillvagnsins,
sem hefur boðið upp á veisluþjónustu
síðan árið 1990.
„Allur undirbúningur fer fram í
stóreldhúsi okkar í Mosfellsbæ, ekið
er á veislustaðinn og klárað að elda
í bílunum sem búnir eru fullkomnu
eldhúsi.“ Starfsemin hófst með einum
grillvagni en í dag hefur fyrirtækið yfir
að ráða sjö misstórum grillbílum og
tveimur grillvögnum, og veitir ekki af.
Grillvagninn í öllum veðrum
Svanur segir marga eiga erfitt með
að trúa því að Grillvagninn bruni í
hlað um hávetur og menn taki til við
að grilla lamb úti í kuldanum en þetta
er í boði í öllum veðrum. „Síðan förum
við inn í hús og setjum upp borð þar
sem við afgreiðum matinn en við
komum alltaf með kokka í veisluna.
Það setur skemmtilegan brag á
veisluna og fólk hefur líka gaman af
að sjá grillbílinn fyrir utan og okkur að
störfum þar,“ segir Svanur.
Úrvalið er fjölbreytt en áherslan
er á kjötrétti. „Í seinni tíð eru ham-
borgaraveislur orðnar mjög vinsælar
í fermingum. Það er líka í boði að
bæta við kjúklingalundum á spjóti og
sumir vilja líka grillaðar pylsur með.“
Grillvagninn kappkostar að hafa
eingöngu úrvalshráefni í hamborg-
urunum og öllum öðrum mat. „Maður
lærði það fljótt í þessum bransa að
það margborgar sig að hafa topp-
hráefni.“
Lamb og purusteik fyrir austan fjall
„Sumir kjósa að hafa nautalundir í
veislunni sinni og það er auðvitað
rosalega flott þó að það kosti sitt. Þá
eru bakaðar kartöflur, bernaisesósa
og piparsósa. Eldra fólkið, þeir sem
komnir eru yfir sjötugt, vilja hins vegar
oftar en ekki bara lamb.“
Grillvagninn þjónustar lands-
byggðina líka og segir Svanur að
matarsmekkur sé dálítið breytilegur
eftir landsvæðum. „Ef við keyrum
austur fyrir fjall er það yfirleitt alltaf
lamb eða purusteik. Það er alveg
magnað hvernig þetta breytist um
leið og maður er kominn yfir Ölfus-
brúna, þar er fólk lítið í fuglakjötinu.“
Grillvagninn býður líka upp á kalkún
og margir velja saman lambalæri og
kalkúnabringur í veisluna sína.
Við vöskum allt upp
Þjónusta Grillvagnsins hentar í alls
konar veislur, brúðkaup, fermingar,
stórafmæli og útskriftir. „Við komum
með alla diska og hnífapör rúlluð inn
í hvíta servíettu og tökum allt óhreint
með okkur. Það er því ekkert uppvask
eftir veisluna og mörgum þykir af-
skaplega þægilegt að losna við það,“
segir Svanur.
Nánari upplýsingar eru á vefsíð-
unni grillvagninn.is. Tekið er á móti
fyrirspurnum og pöntunum í síma
898 3189 og á netfanginu
grillvagninn@grillvagninn.is.