Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Síða 36
Brot af því besta 22. mars 2019KYNNINGARBLAÐ Grillað á staðnum og enginn þarf að vaska upp Vinsælast hjá okkur í dag er heilgrillað lambalæri og grillaðar kalkúnabringur. Með þessu eru gjarnan ostagratín-kart- öflur, salat með fetaosti, bernaise- -sósa og rauðvínssósa,“ segir Svanur Hafsteinsson, eigandi Grillvagnsins, sem hefur boðið upp á veisluþjónustu síðan árið 1990. „Allur undirbúningur fer fram í stóreldhúsi okkar í Mosfellsbæ, ekið er á veislustaðinn og klárað að elda í bílunum sem búnir eru fullkomnu eldhúsi.“ Starfsemin hófst með einum grillvagni en í dag hefur fyrirtækið yfir að ráða sjö misstórum grillbílum og tveimur grillvögnum, og veitir ekki af. Grillvagninn í öllum veðrum Svanur segir marga eiga erfitt með að trúa því að Grillvagninn bruni í hlað um hávetur og menn taki til við að grilla lamb úti í kuldanum en þetta er í boði í öllum veðrum. „Síðan förum við inn í hús og setjum upp borð þar sem við afgreiðum matinn en við komum alltaf með kokka í veisluna. Það setur skemmtilegan brag á veisluna og fólk hefur líka gaman af að sjá grillbílinn fyrir utan og okkur að störfum þar,“ segir Svanur. Úrvalið er fjölbreytt en áherslan er á kjötrétti. „Í seinni tíð eru ham- borgaraveislur orðnar mjög vinsælar í fermingum. Það er líka í boði að bæta við kjúklingalundum á spjóti og sumir vilja líka grillaðar pylsur með.“ Grillvagninn kappkostar að hafa eingöngu úrvalshráefni í hamborg- urunum og öllum öðrum mat. „Maður lærði það fljótt í þessum bransa að það margborgar sig að hafa topp- hráefni.“ Lamb og purusteik fyrir austan fjall „Sumir kjósa að hafa nautalundir í veislunni sinni og það er auðvitað rosalega flott þó að það kosti sitt. Þá eru bakaðar kartöflur, bernaisesósa og piparsósa. Eldra fólkið, þeir sem komnir eru yfir sjötugt, vilja hins vegar oftar en ekki bara lamb.“ Grillvagninn þjónustar lands- byggðina líka og segir Svanur að matarsmekkur sé dálítið breytilegur eftir landsvæðum. „Ef við keyrum austur fyrir fjall er það yfirleitt alltaf lamb eða purusteik. Það er alveg magnað hvernig þetta breytist um leið og maður er kominn yfir Ölfus- brúna, þar er fólk lítið í fuglakjötinu.“ Grillvagninn býður líka upp á kalkún og margir velja saman lambalæri og kalkúnabringur í veisluna sína. Við vöskum allt upp Þjónusta Grillvagnsins hentar í alls konar veislur, brúðkaup, fermingar, stórafmæli og útskriftir. „Við komum með alla diska og hnífapör rúlluð inn í hvíta servíettu og tökum allt óhreint með okkur. Það er því ekkert uppvask eftir veisluna og mörgum þykir af- skaplega þægilegt að losna við það,“ segir Svanur. Nánari upplýsingar eru á vefsíð- unni grillvagninn.is. Tekið er á móti fyrirspurnum og pöntunum í síma 898 3189 og á netfanginu grillvagninn@grillvagninn.is.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.