Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Side 32
Brot af því besta 22. mars 2019KYNNINGARBLAÐ Allt á milli himins og jarðar í hugbúnaði CodeLab útbýr sérsniðnar hugbúnaðarlausnir út frá þörfum viðskiptavinarins. „Við gerum í rauninni allt á milli himins og jarðar, þ.e. hugbúnaðarlega séð. Við setjum upp og hönnum vefsíður og vefverslanir, hönnum snjallsímaöpp, vefkerfi, hreyfiauglýsingar, erum í grafískri vinnslu og svo margt fleira. Það er fullt af fólki þarna úti með flottar vörur til sölu eða frábærar hugmyndir um stórsniðug snjallsíma- öpp í kollinum. Við hjálpum viðskipta- vinum okkar að koma hugmyndum sínum og vörum á framfæri til umheimsins og sjáum til þess að lausnin sé einföld, falleg og uppfylli ströngustu kröfur,“ segir Theódór Magnússon, eigandi CodeLab. Ferlið frá a-ö Þegar kemur að því að hanna hugbúnaðarvöru er ferlið á eftirfarandi hátt: Fyrsta skrefið er náttúrulega að hafa samband við okkur hjá Cod- eLab. Við greinum ítarlega þarfir viðskiptavinarins og högum allri vinnu sem kemur í kjölfarið eftir þeirri greiningu. Næst förum við í það að setja fram hönnun á hugbúnaði, vefsíðu eða hvað það er sem kúnninn sækist eftir. Þá er búin til prótótýpa sem er auð- velt að breyta og bæta þar til fullbúin hönnun er sett fram. Þriðja skrefið er forritun, en eft- ir greiningu og hönnun er hægt að taka ákvörðun um það hvaða forritunarmál og kerfi verður notast við. Áður en hægt er að demba sér í kóðun þarf alltaf að stilla upp viðeigandi skipulagstólum svo hægt sé að þróa kerfið eftir SCRUM aðferðafræði. Nú halda flestir að hugbúnaðarvaran sé tilbúin, en svo er ekki. Lokaskrefið er alltaf að gera prófanir og skjölun. Prófanir koma t.d. í veg fyrir alls kyns vandamál þegar kerfið stækkar og skjölunin tryggir að kaupandi fái bæði notenda- og tæknileiðbeiningar sem lýsa eiginleikum kerfisins á einfaldan og auðskiljanlegan hátt. Breiður hópur viðskiptavina „Viðskiptavinahópur CodeLab er afar fjölbreyttur enda bjóðum við uppá ákaflega breiða þjónustu og erum með afar færa forritara og hönnuði á okkar snærum. Okkar mottó er að við gerum allt. Viðskiptavinur kemur til okkar með hugmynd eða vandamál og við búum til langtímalausn sem hentar kúnnanum. Þess má geta að við bjóðum upp á verkefnagreiningu viðskiptavininum að kostnaðarlausu,“ segir Theodór. Allar nánari upplýsingar má nálg- ast á vefsíðunni codelab.is. Þar er einnig hægt að hafa samband við okkur ef þú vilt fría verkefnagreiningu! CodeLab ehf. er staðsett að Katrínartúni 2, 16. hæð, 105 Reykjavík. Netpóstur: codelab@codelab.is CODELAB: Theódór Magnússon, eigandi CodeLab.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.