Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Side 31
KYNNINGARBLAÐ Brot af því besta Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is22. mars 2019 - Traustur félagi í flutningum Flutningur.is er gróin sendibíla­stöð sem hefur veitt trausta þjónustu í yfir þrjá áratugi og hefur yfir að ráða afar fjölbreyttum bílaflota fyrir hin ýmsu verkefni. Auk þess er stöðin með öll nauðsynleg léttitæki sem þörf er á við flutninga, hvort sem er á búslóðum eða við vöruflutninga. Stöðin býður upp á allar stærðir sendibíla sem henta bæði í lítil og stór verkefni. Bílstjórarnir eru reynslumiklir og færir og leggja sig fram um að veita góða þjónustu. Þeir sem standa í búslóðaflutningum geta treyst því að búslóðin sé flutt hratt en af varkárni á milli staða. Vöruflutningar Flutningur.is sér um að losa gáma hjá skipafélögum og koma vörunni til fyrirtækja og einstaklinga. Hægt er að flytja tvo gáma í einu og losa þá við húsdyr fyrirtækja og einstaklinga fyrir mjög hagstætt verð. Flutningur. is hefur yfir að ráða góðum gáma­ lyftum og ýmsum öðrum hjálpar­ búnaði við flutninga og fylgist vel með nýjungum og þróun tækjabúnaðar á þessu sviði. Ef þú þarft að flytja eitthvað, stórt eða lítið, búslóð, vörur eða eitthvað annað, þá er Flutningur.is líklega mjög heppilegur kostur fyrir þig. Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni flutningur.is og í síma 575­3000. Nokkur góð ráð varðandi flutninga frá Flutningi.is: n Sankaðu að þér sterkum kössum í nokkrum stærðum. Einnig er gott að hafa eftirfarandi við höndina þegar pakkað er: kúluplast, dagblöð, skæri, sterkt límband og góðan merkipenna. n Pakkaðu þungum hlutum, eins og bókum, í minni kassa svo þeir verði ekki of þungir. Í stærri kössum skulu þyngri hlutir vera neðst og þeir léttari efst. Pakkið hverjum hlut í dagblöð eða kúluplast ef þeir eru viðkvæmir. Ef of rúmt er um hluti í kassanum, fylltu þá upp í hann með dagblöðum eða öðru slíku. n Pakkaðu öllu því sem á að fara í sama herbergi í sama kassa og merktu hann herberginu. Taktu fyrir eitt herbergi í einu, pakkaðu fyrst litlum munum til að koma þeim frá. Merktu utan á kassann hvað er í honum. n Pakkaðu og merktu sérstaklega þá kassa sem opna á fyrst af öllum þegar komið er á áfangastað. Í kass­ anum eiga að vera ómissandi hlutir sem notaðir voru fram á síðasta dag, líkt og uppþvottalögur, klósettpappír, plastdiskar og hnífapör og ýmislegt það sem fjölskyldan þarf að nota áður en hægt er að taka upp úr öllum kössunum. n Þegar stærri hlutir eru teknir í sundur, líkt og borð, hillur og skápar, er gott að geyma verkfæri í einum vel merktum poka eða kassa til að auðvelda samsetningu á nýja staðnum. Skrúfum er gott að tylla og jafnvel líma aftur í þau göt sem þær eiga að vera í. n Settu allan rafeindabúnað eins og fjarstýringar, millistykki og straum­ breyta á einn stað. n Staflaðu kössunum þegar búið er að loka þeim. Gott er að nýta eitt herbergi undir kassana, þannig er hægt að klára að þrífa hinn hluta hússins. Flutningur.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.