Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Qupperneq 12
12 FÓKUS - VIÐTAL 22. mars 2019 L íney Rut Guðmundsdóttir er 32 ára tveggja barna móð- ir sem býr í Reykjavík ásamt manni sínum og tveimur sonum. Eldri sonur þeirra hjóna er fjögurra ára en sá yngri sex mánaða. Þegar Líney var gengin um 33 vikur með yngri son sinn fór hún að finna fyrir breyting- um á hægra brjósti sínu sem varð bólgið og hart viðkomu. Taldi hún breytinguna vera vegna með- göngunnar en þegar bólgan gekk ekki til baka ákvað hún að heyra í mæðraverndinni til öryggis. Ljós- móðirin sem hún ræddi við sagði henni að hafa ekki áhyggjur og róaðist Líney töluvert við það. Fljótlega fór þó af stað atburðarás sem Líney sá ekki fyrir. „Ég átti tíma hjá minni ljós- móður á 35. viku og fannst henni þetta frekar skrítið. Hún ákvað að hafa varann á og sendi mig í ómun á brjóstinu. Ég var ómuð af reynd- um lækni í Domus Medica og sá hann ekkert nema smá vökva í brjóstinu sem hann sagði vera vökvablöðru. Hann tappaði um 35 millilítrum af vökva úr brjóstinu og ég fann strax fyrir miklum létti. Ég margspurði hann þó hvort hann sæi ekkert annað og fékk staðfestingu frá honum að þetta væri ekkert alvarlegt.“ Krabbamein vex ekki svona hratt Við þessar upplýsingar varð Lí- ney mjög létt en um þremur vik- um síðar hafði vökvablaðran fyllst aftur. Ljósmóðurinni leist ekki á málið en eftir ómun á Landspít- alanum sá fæðingarlæknir fyr- irferð í brjóstinu sem hann taldi þó aðeins vera gamalt blóð eftir ástunguna hjá Domus. Vikurnar liðu og átti Líney strákinn sinn þann 13. september árið 2018. Brjóstið var enn stútfullt af vökva eftir fæðingu og var Líney að bugast vegna verkja. „Heimaljósmóður minni leist ekki á þetta og sendi mig aftur upp á spítala. Þar var annar læknir sem skoðaði mig og sá nákvæm- lega það sama og hinn en vildi þó til öryggis senda mig á leitarstöð- ina til þess að útiloka allt. Þarna byrjaði hræðslan að gera vart við sig.“ Líney fór á leitarstöðina þar sem fyrirferðin sást greinilega ásamt vökvanum. „Hún sagði þetta líta út eins og góðkynja vörtu og sagði að krabba- mein yxi yfirleitt ekki svona hratt. Sagði ólíklegt að það sæist ekki á 35. viku meðgöngu en væri orðið svona stórt núna. Í fyrstu ætluðu þau ekki að tappa af brjóstinu en ég sagðist ekki fara fyrr en það yrði gert. Þau gerðu það og í leiðinni tóku þau fínnálarsýni úr fyrir- ferðinni og ég fór út með þær upp- lýsingar að það væru 90% líkur á því að þetta væri góðkynja varta.“ Fínnálarsýnið reyndist ekki fullnægjandi og taka þurfti gróf- nálarsýni. Þá hafði blaðran aftur fyllt sig. „Daginn eftir sýnatökuna fór mér að líða illa. Var mjög kalt og mjög verkjuð undir hendinni og niður hana. Það endaði á því að um morguninn þurfti að hringja á sjúkrabíl. Kvalirnar voru það mikl- ar að þetta var verra en að koma börnunum í heiminn. Í ljós kom að ég hafði fengið sýkingu sem dreifði sér út um allt eitlakerfið. Ég lá inni á spítala í tæpar tvær vikur með sýklalyf í æð og á með- an ég var þar kom niðurstaðan úr sýnatökunni. Í ljós komu frumu- breytingar, þvílíkur léttir.“ Heimurinn hrundi Var þá tekin ákvörðun um að tveimur vikum eftir útskrift af spít- alanum færi Líney í aðgerð þar sem fyrirferðin yrði fjarlægð og send í greiningu. „Þann 19. nóvember kom skellurinn. Ég fór að hitta skurð- lækninn í eftirfylgni og var svo glöð að nú ætti þetta að vera búið en þá fékk ég að vita að um krabbamein væri að ræða. Það þyrfti að fjarlægja brjóstið, ég þyrfti að fara í lyfjameðferð og mögulega geislameðferð. Heimur- inn hrundi. Ég sat þarna 32 ára, tveggja barna móðir með nýfætt barn heima og fékk þessa blautu tusku í andlitið. Það fyrsta sem ég hugsaði var að ég væri að fara að deyja og ég myndi ekki fá að sjá strákana mína vaxa úr grasi. Það næsta var hárið, helvítis hárið. Læknirinn og hjúkrunar- fræðingurinn voru yndislegar og náðu þær að róa mig aðeins niður og sögðu mér að batahorfur væru sem betur fer nokkuð góðar.“ Á þessum tímapunkti fór allt í gang og fór Líney í brjóstnám tveimur vikum seinna sem gekk vel. Þar fékk hún að vita að meinið hafði ekki náð að dreifa sér neitt. „Þar sem þeir náðu öllu mein- inu litu þeir á mig sem læknaða en lyfja- og geislameðferðirnar kall- ast í mínu tilfelli fyrirbyggjandi eða viðbótarmeðferð þar sem læknarnir geta ekki verið 100% á því að það séu einhvers staðar einhverjar krabbameinsfrumur á sveimi. Mitt mein kallast þrínei- kvætt og hefur sú tegund þá til- hneigingu að dreifa sér þar sem það getur bæði farið með sog- æðakerfinu með viðkomu í eitl- ana og með blóðinu sem gefur því greiðari leið að öðrum líffærum.“ Vill ekki vorkunn Í janúar á þessu ári byrjaði Líney í lyfjameðferð og þarf hún að fara í sex skipti á tveggja vikna fresti og eftir það tekur við geislameðferð. „Ég átti erfiðast með að sætta mig við lyfjameðferðina þar sem hún gerir mig veika og gerir sjúk- dóminn sýnilegan vegna hármis- sisins. Ég vildi síst af öllu breytast í sjúkling. Ég er búin með fjór- ar meðferðir af sex og þetta hef- ur gengið ágætlega. Ég á oftast eina slæma viku og eina ágæta og svo er maður skotinn niður aftur. Þreytan, orkuleysið og vanlíðanin er svakaleg og ég á enn erfitt með að sætta mig við hármissinn og fer ekki út úr húsi nema með hár- kollu. Það er aðallega af því að ég vil ekki vera sjúklingurinn á svæð- inu og fá vorkunn frá fólki.“ Segir Líney það vera mikla áskorun að ganga í gegnum veik- indi sem þessi með tvö lítil börn en fjölskyldan sé virkilega heppin með gott bakland og mikla hjálp. „Það munar öllu í svona að- stæðum því það gerir það að verk- um að börnin okkar finna ekki eins mikið fyrir aðstæðunum. Ég hef alltof oft heyrt að ef konur und- ir fertugt finni eitthvað í brjóstun- um sínum sé gert lítið úr því af því að þær séu ekki „nógu gamlar“ til þess að fá brjóstakrabbamein. Það eru um tíu konur á ári sem greinast fyrir fertugt og ég vil hvetja konur á öllum aldri til að vera meðvitaðar um brjóstin á sér. Ef þær finna eitt- hvað að standa þá með sjálfum sér og fá skoðun. Líkurnar á að allt sé í góðu eru mun meiri en þú gætir líka verið ein af þessum tíu.“ n Líney hefur ákveðið að deila ferli sínu í krabbameinsmeðferð á Instagram undir notandanafn- inu: lrg9Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is Vandaðar innréttingar Hjá Parka færðu flottar innréttingar í hæsta gæðaflokki. Mikið úrval. Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! Greindist með krabbamein fjórum vikum eftir barnsburð Heimur Líneyjar Rutar hrundi Aníta Estíva Harðardóttir anita@dv.is Greindist 32 ára Læknarnir voru rólegir. „Það fyrsta sem ég hugsaði var að ég væri að fara að deyja og ég myndi ekki fá að sjá strákana mína vaxa úr grasi Líney Rut ásamt syni sínum sem er sex mánaða gamall í dag.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.