Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Side 37

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Side 37
Brot af því besta 22. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ EM Sendir er lítil sendibíla-þjónusta sem sérhæfir sig í að veita fjölbreytta og persónulega þjónustu bæði einstaklingum og litlum fyrirtækjum. EM Sendir reynist mörgum ómet- anleg hjálparhella, vinnur verk sem aðrir taka ekki að sér og kemur oft til bjargar við aðstæður þegar fólk veit hreinlega ekki hvert á að snúa sér, til dæmis varðandi úrgang og sorp sem ekki er veitt móttaka á hefðbundnum endurvinnslustöðvum, og við marg- víslegar aðrar aðstæður. EM Sendir er í eigu þeirra Einars Margeirs Kristinssonar og tengda- föður hans, Hafþórs Harðarsonar, en þeir hafa yfir að ráða tveimur með- alstórum sendibílum. Bílarnir henta í minni búslóðarflutninga hjá pörum eða einstaklingum en auk þess veita þeir félagar alls konar þjónustu, aka með sorp, skutlast með vörur fyrir fyrirtæki og sinna jafnvel tiltekt, til dæmis í bílskúrum og ruslageymslum. „Varðandi búslóðaflutninga þá hentar okkar þjónusta best til dæmis stúdentum, þeim sem eru að flytja að heiman frá sér í fyrsta skipti og jafn- vel þeim sem eru að flytja á síðasta heimilið sitt, þ.e. dvalarheimili,“ segir Einar. Mikil þörf fyrir svona þjónustu „Fólk er oft hissa á hvað við veitum mikla þjónustu. Þegar allt er á hvolfi í bílskúrnum þínum getum við komið, farið með ruslið og gengið frá því. Það sama gildir um ruslið í garðin- um og svo framvegis. Oft erum við ruslakarlar fyrir það sem hin almenna sorphirða tekur ekki. Við erum oft fengnir í alls konar sérkennileg ver- kefni sem fólk situr uppi með. Gott dæmi er iðnaðarrusl sem verður eftir þegar fólk hefur farið í gegnum breytingar á húsnæði og það veit ekkert hvar það getur losað sig við slíkan úrgang. Stundum eru þetta stórir steypuklumpar sem vega hund- ruð kílóa. Þá mætir maður bara með mannskap og burðarbönd og leysir málið.“ Viðskiptavinahópur EM Sendis er mjög fjölbreyttur og ljóst er að mikil þörf er fyrir þessa þjónustu: „Þetta er bara öll flóran en fyrst og fremst er venjulegt fólk sem þarf á þessari þjónustu að halda, persónulegri þjón- ustu varðandi verkefni sem það getur ekki leyst sjálft. Fólk sem á bara fjöl- skyldubíl eða jafnvel engan bíl, þarf að taka til í geymslunni sinni og hefur oft engin tök á að losa sig við ruslið. Þarna komum við inn og leysum vandann. Eða þegar eldra fólk klippir tréð í garðinum sínum. Hver á að fara með greinarnar á Sorpu ef þetta er ekki tekið? Það hentar ekki öllum að setja þetta í skottið á bílnum sínum.“ Þjónusta við veitingahús Eins og áður kom fram vinnur EM Sendir töluvert fyrir fyrirtæki, sér- staklega við smærri vörusendingar á morgnana fyrir til dæmis heildsöl- ur. En þeir félagar vinna einnig fyrir veitingastaði: „Ég hef bakgrunn úr hótel- og veitingarekstri og sú reynsla meðal annars gerir okkur kleift að þjónusta veitingastaði. Við losum þessa aðila við ruslið sem þeir hafa ekki hugmynd um hvert á að fara með. Eða ef afgangsolían er ekki hirt reglulega af efnamóttökunni þá vitum við hvert á að fara með hana. Það sama gildir um endurvinnslugler og ýmsar aðrar ruslaferðir þar sem sorphirðan tekur af einhverjum ástæðum ekki við, en við vitum hvert á að fara með þetta efni. Við vitum líka hvort það kostar að farga hlutum og hvað það kostar.“ Þess má geta að þeir Einar og Hafþór aka líka fyrir Nýju Sendi- bílastöðina og þess vegna eru bílar þeirra merktir henni. Nýja Sendibíla- stöðin virkar eins og bílaleigustöðin fyrir utan að bílstjórarnir eiga hlut í henni. Þeir sem vilja nýta sér þjónustu EM Sendis eða fá frekari upplýsingar geta sent skilaboð inni á Facebook undir: EMSendir en einnig má hringja í síma 696-0420 eða 896-6283. EM SENDIR: Persónulega og hjálpsama sendibílaþjónustan Dæmi um úr- gang sem EM Sendir losar viðskiptavini sína við

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.