Skessuhorn - 03.06.2015, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 23. tbl. 18. árg. 3. júní 2015 - kr. 750 í lausasölu
Ljósm. Friðþjófur Helgason
Fluconazol
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
Er þér annt
um hjartað?
Eru bólgur og verkir
að hrjá þig?
Arion
hraðþjónusta
– hafðu það eins og þú vilt
Arion appið • Netbanki • Hraðbankar
Á sunnudaginn verður sjómanna-
dagurinn haldinn hátíðlegur víða
um land. Með Skessuhorni í dag
fylgir 40 síðna innblað helgað þess-
ari árlegu hátíð sem haldin er ís-
lenskum sjómönnum til heiðurs.
Lesa má áhugaverð viðtöl við sjó-
menn og ýmsa sem tengjast at-
vinnugreininni. Meðal annars er
rætt við rússneskan fyrrum kaf-
bátaliða í Grundarfirði sem gætti
Íslands úr undirdjúpunum þeg-
ar leiðtogafundurinn var haldinn
í Höfða árið 1986. Einnig er talað
við sjómannskonu sem hefur rutt
brautina í öryggismálum sjómanna
á Snæfellsnesi, farsælan línuskip-
stjóra í Rifi og sjómannshjónin og
frumkvöðlana Pétur Ágústsson
og Svanborgu Siggeirsdóttur sem
standa nú á tímamótum. Böðvar
Jóhannesson stýrimaður á Akranesi
lítur um farinn veg, rabbað er við
Gunnar Jónsson sjómann og kvik-
myndastjörnu og talað við síðasta
Færeyinginn í Ólafsvík. Hrakfalla-
bálkurinn og sjómaðurinn Eggert
Bjarnason á Hellissandi segir frá
því hvernig hann virðist eiga fleiri
líf en meðal köttur. Gunnar Ólafs-
son fæddist á Akranesi fyrir 94
árum, sigldi í stríði og friði og hef-
ur verið kvæntur sömu konunni í
71 ár. Hann stýrði meðal annars
Eldborg MB um árabil. Hregg-
viður Hreggviðsson hóf feril sinn
á hvalveiðum en stýrir nú útför-
um á Vesturlandi. Vestlenskir sjó-
menn fyrr og nú eru fjölbreyttur
og litríkur hópur og endurspeglar
Sjómannadagsblað Skessuhorns
það prýðilega.
Leikskólinn Ugluklettur í
Borgarnesi er tilraunaleikskóli
hjá Embætti landlæknis vegna
verkefnisins Heilsueflandi
leikskóli. Í vor sótti leikskólinn
um styrk til lýðheilsusjóðs undir
heitinu „Mataræði í leikskóla“
og fékk úthlutað 500.000
krónum til verkefnisins. Í
Uglukletti hefur frá fyrstu tíð
verði lögð áhersla á fjölbreytt
og gott mataræði og að vinna
matinn frá grunni. Verkefnið
er í stórum dráttum ætlað til
þess að bæta þekkingu starfs-
fólks og foreldra á næringu og
matarvenjum barna.
Á myndinni eru félagarnir
Tristan og Guðjón að skera
ávexti.
mm
Fjölmennur íbúafundur var haldinn
á Akranesi síðastliðið fimmtudags-
kvöld. Tilefni hans var beiðni HB
Granda um að fá að stækka fisk-
þurrkunarverksmiðju Laugafisks
sem stendur á Breiðinni á Akranesi.
Einnig voru rædd önnur stækkun-
ar- og hagræðingaráform fyrirtæk-
isins til að koma fastari fótum und-
ir starfsemi þess á hafnarsvæði bæj-
arins. Frummælendur voru Einar
Brandsson bæjarfulltrúi og formað-
ur skipulags- og umhverfisnefndar
Akraness, Vilhjálmur Vilhjálmsson
forstjóri HB Granda, Guðjón Jóns-
son efnaverkfræðingur og Hörður
Helgason talsmaður íbúasamtak-
anna Betri byggð. Margir bæjarbú-
ar hafa látið í ljós óþol vegna lyktar
frá fiskþurrkun Laugafisks. Á fund-
inum fullyrti Hörður að fólk forð-
ist nú búsetu á stórum hluta gamla
bæjarins vegna lyktarmengunar.
Hús séu óseljanleg og drabbist nið-
ur. Hann upplýsti að nú væru ung
hjón sem nýverið fluttu til bæjar-
ins frá Reykjavík og keyptu húseign
í gamla bæjarhluta Akraness að
reyna að fá kaupsamningi rift. Þau
hafist ekki við vegna ólyktar og telja
mengunina hafa verið leyndan galla
á húseigninni. Á fundinum voru
í fyrsta sinn sýndar teikningar af
nýrri þurrkverksmiðju Laugafisks
á Akranesi og hugmyndir um land-
fyllingar við Akraneshöfn. Þetta og
margt fleira kom fram á fundinum
og má fræðast um í Skessuhorni
vikunnar á bls. 14 og 15.
mþh/ Ljósm. jho.
Lýðheilsu-
sjóður styrkir
fjölbreytt
mataræði
Sjómannadagsblað
Skessuhorns
Skiptar skoðanir um
Laugafisk á Akranesi
Ljómalindarkonur óska
sjómönnum
til hamingju með daginn
Minnum á nýja staðsetningu
að Brúartorgi 4
Verðum með opið á
sjómannadaginn sem og
alla aðra daga í sumar
milli 11 – 18
Verið velkomin
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5