Skessuhorn - 03.06.2015, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ
Mikil verðmæti
úr sjó í febrúar
LANDIÐ: Verðmæti afla upp
úr sjó hér við land nam tæpum
16,2 milljörðum króna í febrúar,
41,7% meira en í febrúar 2014.
Vegur þar þyngst aflaverðmæti
loðnu sem nam tæpum 6 millj-
örðum og jókst um um 4 millj-
arða samanborið við febrú-
ar 2014. Verðmæti þorskaflans
nam 6,2 milljörðum í febrú-
ar sem er ríflega 24% aukning
miðað við sama mánuð 2014.
Aflaverðmæti á tólf mánaða
tímabili frá mars 2014 til febrú-
ar 2014 nam 142,6 milljörðum
og er nánast óbreytt miðað við
tólf mánaða tímabil árið áður. Á
tímabilinu hefur vermæti botn-
fisks- og uppsjávarafla aukist en
á móti hefur aflaverðmæti flat-
fisks og skel- og krabbadýra
dregist saman. –mm
Atvinnuleysi var
5,5% í apríl
LANDIÐ: Samkvæmt Vinnu-
markaðsrannsókn Hagstofu Ís-
lands voru að jafnaði 191.600
á aldrinum 16-74 ára á vinnu-
markaði á öllu landinu í apríl síð-
astliðnum, sem jafngildir 82,3%
atvinnuþátttöku. Af þeim voru
181.000 starfandi og 10.600 án
vinnu og í atvinnuleit. Hlut-
fall starfandi af mannfjölda var
77,8% og hlutfall atvinnulausra
af vinnuafli var 5,5%. –mm
Bláfáninn í
þrettánda sinn
STYKKISH: Á þriðjudag-
inn í síðustu viku var bláfáninn
afhentur Stykkishólmshöfn í
þrettánda skipti. Það gerði Sal-
ome Hallfreðsdóttir starfsmaður
Landverndar. Bláfáninn var fyrst
afhentur Stykkishólmshöfn 13.
júní 2003 og var smábátahöfnin
í Stykkishólmi fyrsta höfnin til
að hljóta þessa alþjóðlegu viður-
kenningu hér á Íslandi. Fáninn
er alþjóðlegt merki fyrir hafn-
ir sem uppfylla ströng skilyrði
í umhverfis- og öryggismálum
og hefur þann tilgang að stuðla
að verndun umhverfis smá-
bátahafna og baðstranda. Smá-
bátahöfnum er veittur Bláfán-
inn hafi þær lagt sig fram um að
vernda umhverfið, bæta örygg-
ismál og aðstöðu í höfninni og
veita fræðslu um náttúruna og
umhverfisvernd. Þessi viðleitni
á að treysta verndun umhverfis
hafnarinnar og alla þá þjónustu
sem höfnin býður upp á og vera
öllum þeim sem nota eða heim-
sækja höfnina til hagsbóta.
–mm
AmabAdamA
afhrímar
Frystiklefann
RIF: Þann 24. júní næstkom-
andi verða Jónsmessutónleikar
Frystiklefans í Rifi á Snæfels-
nesi haldnir í fyrsta sinn. Það
verður reggae hljómsveitin
AmabAdamA sem ríður á vað-
ið og mætir í Snæfellsbæ. Sveit-
in hefur notið mikilla vinsælla í
vetur eftir að hafa gefið út sína
fyrstu plötu í fyrra. Sérstaklega
er tekið fram að einungis um
tveggja tíma akstur sé frá höf-
uðborgarsvæðinu til tjaldstæða
Snæfellsbæjar og þegar hef-
ur verið opnað fyrir miðasölu á
midi.is. –mþh
Velgengni í
þurrkun á
kolmunna
MIÐIN: Færeyingar þurrka
nú kolmunna í auknum mæli
til sölu á markaði í Níger-
íu. Í Fiskifréttum nýver-
ið var viðtal við Íslending-
inn Lúðvík Haraldsson sem
er framkvæmdastjóri og að-
aleigandi fiskþurrkunarverk-
smiðjunnar Faroes Apama
í Vági í Færeyjum. Lúðvík
var áður framkvæmdastjóri
Laugafisks í Þingeyjarsýslu.
Faroe Apama hefur þurrkað
hausa og hryggi af tegund-
um á borð við þorsk og ýsu
en þurrkar nú einnig kol-
munna. Á síðasta ári var kol-
munni um 8% af framleiðslu
færeysku verksmiðjunnar en
Lúðvík segir að þetta hlutfall
fari líklega í 20% á þessu ári.
Hann bendir á að tvær verk-
smiðjur á Íslandi stundi þeg-
ar þurrkun á kolmunna en
það eru Samherji á Laugum
og Langa í Vestmannaeyjum.
Kolmunni færeyska fyrirtæk-
isins er þurrkaður hausaður
og slógdreginn. Þess má geta
að liður í stækkunaráætlun-
um HB Granda í fiskþurrk-
unarverksmiðju fyrirtækisins
á Akranesi snýr einmitt að
því að þurrka kolmunna.
–mþh
Aflatölur fyrir
Vesturland
23. - 29. maí.
Tölur (í kílóum) frá
Fiskistofu:
Akranes 17 bátar.
Heildarlöndun: 22.540 kg.
Mestur afli: Ebbi AK: 9.949
kg í fimm löndunum.
Arnarstapi 13 bátar.
Heildarlöndun: 19.626 kg.
Mestur afli: Óli Gísla GK:
4.595 kg í þremur löndun-
um.
Grundarfjörður 8 bátar.
Heildarlöndun: 190.705 kg.
Mestur afli: Helgi SH:
47.216 kg í einni löndun.
Ólafsvík 21 bátur.
Heildarlöndun: 220.222 kg.
Mestur afli: Guðmund-
ur Jensson SH: 52.674 kg í
tveimur löndunum.
Rif 21 bátur.
Heildarlöndun: 236.164 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
41.067 kg í einni löndun.
Stykkishólmur 18 bátar.
Heildarlöndun: 76.235 kg.
Mestur afli: Sunnar Rós
SH: 9.936 kg í þremur lönd-
unum.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Helgi SH – GRU:
47.216 kg. 26. maí
2. Sóley Sigurjóns GK –
GRU: 44.318 kg. 25. maí
3. Tjaldur SH – RIF:
41.067 kg. 26. maí
4. Rifsnes SH – RIF:
40.241 kg. 26. maí
5.Guðmundur Jensson SH
– ÓLV: 27.874 kg. 27. maí
Sturla Böðvarsson bæjarstjóri
Stykkishólms sendi síðastliðinn
sunnudag bréf til hreppsnefndar
Helgafellssveitar, forstjóra Orku-
veitu Reykjavíkur og Heilbrigðis-
eftirlits Vesturlands, þar sem lýst er
verulegum áhyggjum vegna fyrir-
hugaðra framkvæmda við virkjun í
Svelgsá í Helgafellssveit. Bæjarráð
Stykkishólms telur verulega hættu
á mengun vatnsbóls sem íbúar í
Stykkishólmi nýta, komi til virkj-
unarframkvæmda. Á fundi bæjar-
ráðs Stykkishólmsbæjar á laugar-
daginn var samþykkt bókun vegna
áforma um framkvæmdir við virkj-
un Svelgsár nærri vatnsbóli Vatns-
veitu Stykkishólms, sem nú er í
eigu Orkuveitu Reykjavíkur. Í bréf-
inu segir: „Tilefni þessarar sam-
þykktar er sú staðreynd að virkja
á mjög nærri lindunum og er það
mat þeirra sem þekkja til staðhátta,
að veruleg hætta sé á mengun frá
framkvæmdum, sem gæti leitt til
þess að vatnsbólið verði ekki nýt-
anlegt. Framkvæmdasvæði fyrir-
hugaðrar virkjunar nær inn á vatns-
verndarsvæði vatnsveitunnar sem
er mjög háskalegt. Mengist vatns-
bólið hefði það alvarlegar afleið-
ingar fyrir íbúa Stykkishólms, sem
eiga allt undir því, að þetta vatns-
ból verði áfram nýtt í þágu bæjar-
búa og þeirra fyrirtækja sem nota
vatnið til matvælaframleiðslu svo
sem gert hefur verið frá árinu 1974
með samkomulagi við landeigend-
ur í Helgafellssveit og á grundvelli
vatnalaga og laga um vatnsveitur
sveitarfélaga svo sem þau lög hafa
verið á hverjum tíma.“
Á fundi bæjarráðs var bæjarstjóra
falið að koma fram athugsemdum
við stjórnendur Orkuveitu Reykja-
víkur og hreppsnefnd Helgafells-
sveitar um að tryggt verði að engin
hætta stafi af virkjanaframkvæmd-
um gagnvart vatnsbóli bæjarins
sem er við Svelgsárhraun. Jafnframt
verði Heilbrigðiseftirliti Vestur-
lands gert viðvart og þess krafist að
gengið verði úr skugga um að öll-
um reglum verði fylgt gagnvart því
að tryggja hagsmuni vatnsnotenda í
Stykkishólmi sem eiga mikið undir
því að vatnsbólið verði ekki meng-
að vegna framkvæmda og mikils
rasks við fyrirhugaðar virkjunar-
framkvæmdir við Svelgsá. mm
Telja hættu á að vatnsból
spillist komi til virkjunar í Svelgsá
Svelgsá séð til austurs úr lofti. Eyðijörðin Tóftir á nesinu í baksýn en til hægri er
Álftafjörður. Ljósm. Mats Wibe Lund.
Skipulagsstofnun hefur fallist á
beiðni Vegagerðarinnar um endur-
upptöku á úrskurði stofnunarinnar
um mat á umhverfisáhrifum Vest-
fjarðarvegar um Reykhólahrepp.
Um er að ræða 15 kílómetra vegar-
kafla sem áformaður er frá Þorska-
firði og vestur fyrir Gufufjörð og
fer meðal annars um svokallaðan
Teigsskóg. Teigsskógur er lágvax-
inn birkiskógur sem teigir sig yfir
land sem er í eyði en þar eru sum-
arhús. Eigendur þeirra hafa barist
gegn vegarlagningu um landið og
því hefur þjóðleiðin áfram legið yfir
illfæran og stórhættulegan Hjalla-
hálsinn. Fram kemur í tilkynningu
frá Skipulagsstofnun nú að í endur-
upptökubeiðni Vegagerðarinnar sé
lögð fram tillaga að breyttri veg-
línu. Hún felist meðal annars í til-
færslu á veglínu frá leið B að hluta.
Auk þess eru op breikkuð á brúm
yfir Djúpafjörð og Gufufjörð og
fallið er frá efnistöku í Teigsskógi,
segir í tilkynningu Skipulagsstofn-
unar. Þar kemur einnig fram hvað
varðar efnistöku að framkvæmda-
áformin taki verulegum breyting-
um. Horfið hafi verið frá efnistöku
í Teigsskógi og dregið úr efnistöku
á Grónesi.
Áform um vegagerð um Teigs-
skóg eiga sér áratugar langa sögu
og endurspegla hvað skipulags-
lög og túlkun þeirra til hins ítrasta
geta haft hamlandi áhrif á vega-
bætur. Ýmsir hafa bent á að þar
hafi smærri hagsmunir verið teknir
framyfir stærri. Margir samgöngu-
og innanríkisráðherrar hafa kom-
ið við sögu, án þess að fá rönd við
reist í þessu máli. Samgöngubæt-
ur um sunnanverða Vestfirði hafa
þannig verði í stjórnsýsluflækju um
vegagerð um Teigsskóg. Nú verður
málið semsé tekið upp að nýju.
Skógræktarmenn mæla
með vegi
Skógræktarfélag Íslands og skóg-
ræktarfélög á Vestfjörðum ályktuðu
í fyrrahaust vegna nýrrar tillögu
Vegagerðarinnar vegna hins um-
deilda vegar um Teigsskóg. „Ekki
er ástæða til að leggjast gegn fyr-
irætlunum um vegagerð um Teigs-
skóg í Þorskafirði. Aðeins um 1%
skógarins fer undir veg samkvæmt
nýrri tillögu um vegstæði sem
Vegagerðin hefur lagt fram. Skaði
er því óverulegur,“ sagði í álykt-
un skógræktarfélaganna. Forsvars-
menn Vegagerðarinnar sögðu í
október í fyrra að þarna hafi kveð-
ið við nýjan tón og auki það bjart-
sýni þeirra á lausn málsins sem hef-
ur lengi þvælst hjá skipulagsyfir-
völdum og dómstólum.
mm
Horft yfir kjarrið í Teigsskógi.
Vegagerð um Teigsskóg verður skoðuð að nýju