Skessuhorn - 03.06.2015, Blaðsíða 49
49MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ
hann út heima á Suðurey. „Þá var
verið að smíða bátinn Jón Jónsson
SH á Akureyri. Útgerðarmaðurinn
vildi endilega fá mig með norður að
sækja bátinn en ég vildi það ekki. Þá
sendi hann besta vin minn á mig til
að tala um fyrir mér og ég féllst á
þetta. Ég fór ekki heim þetta sum-
ar en hitti unga konu sem varð eig-
inkona mín. Hún er Svava Alfons-
dóttir héðan úr Ólafsvík. Upp úr því
festi ég rætur hér á Íslandi.“
Þó hann segi það hvergi ber-
um orðum þá má ráða það af frá-
sögn Finns að hann hefur verið for-
kur duglegur til allra verka og hvergi
hlíft sér. Hann lagði mikið á sig til að
koma fótunum undir sig og sína á Ís-
landi „Næstu árin eftir að við Svava
gengum í hjónaband var ég á bát-
um héðan frá Ólafsvík. Svo byggði
ég hús fyrir okkur hér í bænum. Ég
byrjaði á því 1961 og gróf sjálfur fyr-
ir grunninum með haka og skóflu.
Allt var unnið í höndunum. Frum-
burður okkar Alfons var þá eins árs.
Mér fannst ég aldrei vera heima, allt-
af að vinna. En ég var í góðu plássi á
Bjarna Ólafssyni. Hluturinn af einni
sumarvertíð á síld dugði nánast fyr-
ir fokheldu húsi. Það var allt annað
líf að byggja þá. Árið 1965 eignaðist
ég fyrsta bátinn minn og fór sjálfur
að gera út. Það voru erfiðir tímar þá,
kreppa í þjóðfélaginu,“ segir Finnur
með alvöru í rómnum.
Ríkur maður í dag
Finnur segir að hann hafi ekki kom-
ið heim til Færeyja í níu ár eftir að
hann og Svava stofnuðu heimili. Til
þess voru hvorki efni né tími. „Svo
fórum við loksins og vorum þá í tvo
mánuði. Ég var nú samt ekki betri
en það að ég fór strax að róa og beita
úti í Færeyjum og gerði það allan
tímann sem við vorum úti,“ viður-
kennir Finnur og brosir nú kankvís-
lega.
Saga Finns Gærdbo á Íslandi er
orðin bæði löng og merkileg. Hann
gerði í mörg ár út bátana Pétur Jacob
og Sæfinn, báða frá Ólafsvík. „Þetta
var mikil vinna. Stundum var mað-
ur að beita á kvöldin þegar maður
kom í land og svo út á sjó morgun-
inn eftir. Við eignuðumst með tím-
anum þrjá stráka og eina stelpu. Það
eru þau Alfons sem ég nefndi fyrr og
svo Pétur Már, Anna Sofía og Ást-
geir. Í dag eigum við 11 barnabörn
og 5 langafabörn. Ég hætti að vinna
þegar ég var 67 ára gamall, fyrir rétt
um tíu árum síðan. Þá var önnur
löppin á mér alveg búin. Ég var sátt-
ur við að draga í land. Ég var aldrei
heima þegar börnin okkar Svövu
voru að alast upp. Nú nýt ég þess
að vera með henni og barnabörn-
unum. Það er draumur. Það er gam-
an að vera afi en ennþá meira gaman
að vera langafi. Nú er maður ríkur,“
segir Finnur með stolti og ánægju í
röddinni. „En nú er ég eini Færey-
ingurinn sem er eftir hér í Ólafsvík
af þeim sem komu á síðustu öld.“
mþh
Vinsæll snáði í Reykjavík
Þegar Finnur kom hingað 1955
hafði hann smá hugmynd um að
hverju hann gekk. Hann hafði kom-
ið til Íslands áður og vissi að hann
fengi góðar móttökur. „Til Íslands
hafði ég komið 1948, þá átta ára.
Pabbi var að vinna við netagerð á
Íslandi. Við mamma fórum og vor-
um hjá honum í Reykjavík í rúman
mánuð. Það var góður tími. Ég fór
alltaf á stjá klukkan sex á morgn-
ana til að selja Morgunblaðið, Vísi
og önnur blöð. Það var mjög gam-
an á Íslandi,“ segir Finnur. Hann
klæddi sig þannig að ekki fór á milli
mála að hann væri færeyskur. Það
snerti streng í brjóstum Íslending-
anna sem mættu þessum snáða frá
Suðurey. „Ég var alltaf í færeyskri
peysu og seldi allra mest af Morg-
unblaðinu. Svo fékk ég alltaf frítt
kakó og pönnukökur í Hressing-
arskálanum og alltaf frítt í Strætó.
Það virtist vera að Færeyingar væru
svona vinsælir. Ég fékk þetta líklega
allt út á peysuna sem ég var í,“ segir
Finnur og hlær við þegar hann rifj-
aði þetta upp.
Sjö árum síðar var alvara lífs-
ins hafin hjá Finni. „Það var yfir-
leitt mjög lítið um vinnu í Færeyj-
um á haustin og veturna. Sjómenn
iðkuðu það að fara til Grænlands á
vorin og stunda veiðar þar sumar-
langt. Það var farið á skipum með
litlar trillur með. Þær voru síðan
notaðar til að veiða þorsk og aflan-
um svo landað um borð í skipin þar
sem hann var saltaður. Þegar menn
komu heim til Færeyja af þess-
um veiðum varð skyndilega mikið
framboð af hraustum mönnum sem
vantaði vinnu, meiri en eftirspurn-
in. Því leituðu menn annað eftir at-
vinnu.“
Komu sem
farandverkamenn
Finnur stundaði aldrei Grænlands-
veiðar en hann þekkti til Íslands
og átti hér ættingja og vini. Fyrir
hann var eðlilegt að líta til Íslands
úr atvinnuskortinum heima. „Það
var talið mjög gott að vinna á Ís-
landi. Þetta voru uppgrip. Menn
komu hingað og unnu vetrarvertíð-
ina og þurftu ekki að vinna meira
það árið nema þeir kærðu sig um.
Íslenska krónan var alvöru gjald-
miðill á þessum árum og verðmæt
heima í Færeyjum. Núna er hún
margfalt minna virði, eiginlega eins
og skeinipappír í Færeyjum,“ seg-
ir Finnur og hristir höfuðið. „Nei,
það var annað þá.“
Þegar hann kom til Íslands 1955
fór Finnur að starfa sem beitninga-
maður í Reykjavík. „Ég var þarna í
mánuð en fór svo vestur í Ólafsvík.
Það hafði verið auglýst eftir háseta
á Víkingi SH. Móðurbróðir minn
sem bjó í Ólafsvík kallaði á mig og
sagði mér að koma. Sigurður Krist-
jónsson sem seinna var á Skarðs-
vík SH var skipstjóri. Ég var ráð-
inn í þetta frábæra pláss hjá þeim
góða manni og var þar í tvær ver-
tíðir. Svo fór ég yfir á Bjarna Ólafs-
son SH. Þar var ég í fjögur ár en fór
þá yfir á Halldór Jónsson SH.“
Finnur segir að sér hafi strax lit-
ist vel á sig undir Jökli. „Ólafsvík
var góður staður. Fyrstu árin fór ég
þó yfirleitt alltaf heim til Færeyja á
vorin eftir að vertíðinni lauk. Það
fóru allir heim í byrjun maí þeg-
ar vertíðinni lauk hér. Flestir sjó-
mannanna fóru svo til Grænlands á
veiðar þar. Það var mikið fjör þeg-
ar Færeyingarnir voru að fara heim
frá Íslandi á vorin. Yfirleitt var siglt
með farþegaskipunum Dronning
Alexandrine og Gullfossi. Skip-
in voru þá full af Færeyingum. Það
var gaman að fara með Dronning
Alexandrine því hún var svo stór.
Fremst í skipinu var rúmgóð lest.
Þar voru dansaðir færeyskir dansar
á heimleiðinni. Allir að smakka það
og dansa í lestinni. Mikil stemning
og fjör,“ rifjar Finnur upp. „Ég hef
þó aldrei verið kvæða- og dansa-
maður. Hjá mér hefur það alltaf
verið sjórinn og vinnan.“
Festi rætur á Íslandi
Árið 1959 ætlaði Finnur enn og aft-
ur að fara heim um vorið. Hann var
enda búinn að kaupa sér vörubíl fyrir
tekjur sínar á Íslandi og hugðist gera
Sjómannadagurinn
Finnur situr á lunningu Jóns Jónssonar SH í Ólafsvík. Hann var talinn á að vera
með að sækja bátinn nýsmíðaðan á Akureyri. Ungi færeyski sjómaðurinn fór því
ekki heim um vorið að lokinni vertíð eins og hann ætlaði. Það varð til þess að
Finnur ílentist á Íslandi.
Ásamt skipsfélögum um borð í Halldóri Jónssyni SH á sumarsíldveiðum. Finnur er
yst til vinstri með sixpensara á höfði.
Skipstjórinn og útgerðarmaðurinn á Pétri Jacob SH kemur með mönnum sínum að
landi með fullfermi af þorski. Finnur er fyrir miðju.