Skessuhorn - 03.06.2015, Page 59
59MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ
Iðjuþjálfunarfræði BS
Hjúkrunarfræði BS
Sjávarútvegsfræði BS
Náttúru- og auðlindafræði diplóma
Viðskiptafræði BS
Félagsvísindi BA
Fjölmiðlafræði BA
Kennarafræði, leik- og grunnskólastig BEd
Diplómanám í leikskólafræðum
Nútímafræði BA
Sálfræði BA
Ingibjörg Smáradóttir,
sími 460 8036
netfang: ingibs@unak.is
að kynna sér hvernig fyrirkomulag er í því námi sem þeir hyggjast innrita sig í.
Umsóknarfrestur til 5. júní
Heiða Kristín Jónsdóttir,
sími 460 8039
netfang: heida@unak.is
Fyrirspurnir um kennaranám:
Torfhildur S. Þorgeirsdóttir,
sími 460 8042
netfang: torfhild@unak.is
Ása Guðmundardóttir,
sími 460 8037
netfang: asa@unak.is
Upplýsingar um námið veitir
Upplýsingar um námið veita
Upplýsingar um námið veitir
Fjarnám
VIÐ HÁSKÓLANN Á AKUREYRI
unak.is
Nemendur í 4. bekk Grunnskóla
Snæfellsbæjar fóru í hjólaferð á
dögunum. Ferðin var hluti af átt-
hagafræðinámi barnanna en reynt
er að fara á hverju vori hjólandi í
Skarðsvík ef veður leyfir. Þennan
dag var fínasta veður og krakkarnir
duglegir að hjóla. Þegar í Skarðsvík
var komið fengu þau sér nesti sem
þau höfðu sjálf undirbúið í heimil-
isfræði í skólanum og léku sér dá-
lítið áður en þau hjóluðu til baka.
Það voru þreyttir og ánægðir hjóla-
krakkar sem komu til baka í skól-
ann með kennurunum sínum.
þa
Hjóluðu í Skarðsvík
„Við opnuðum 1. maí og sumar-
ið fer vel af stað, betur en í fyrra
og við erum bjartsýnir á að kom-
andi sumar verði bara gott. Ég
tók við núna í vor. Er eiginlega
nýr í bransanum og því alltaf með
loftnetið úti, ef svo má segja, að
læra allt sem skiptir máli,“ sagði
Logi Guðjónsson, nýr hótelstjóri
í Bjarkalundi þegar blaðamann
Skessuhorns bar þar að garði á
fimmtudaginn síðasta.
Hótel Bjarkalundur á sér langa
sögu, er elsta sumarhótel lands-
ins, byggt á árunum 1945-47 og
undanfarin ár hefur verið unnið
að endurbótum á hótelinu og um-
hverfi þess. „Maður verður þess
var að Vestfirðingar þekkja vel til
staðarins, stundum sést blik í aug-
um fólks að vestan. Margir eiga
héðan góðar minningar og koma
alltaf við,“ sagði Logi. En það eru
ekki aðeins Vestfirðingar sem gera
þar stutta töf á för sinni. „Fólk al-
mennt kemur við hér, það sér eitt-
hvað við staðinn, það er einhver
orka sem fólk finnur hér. Ég hef
fundið hana sjálfur. Það er ekkert
mál að standa hérna 12-14 tíma
vaktir, ég væri uppgefinn eftir það
ef ég væri enn fyrir sunnan,“ sagði
Logi.
Aukinn straumur
erlendra ferðamanna
Bjarkalundur hefur hingað til
helst verið þekktur sem áninga-
staður ferðalanga á ferð þeirra um
landið en vonir stjórnenda standa
til að það muni breytast. „Stefnan
er byggja vel upp og gera Bjarka-
lund að eftirsóttum ferðamanna-
stað, gera hann að einhverju
meira en bara stoppistöð. Til þess
vantar að einhverju leyti frekari
uppbyggingu í ferðamannaþjón-
ustu hér um slóðir. Fólk er til-
búið að vera lengur ef það getur
sótt afþreyingu í næsta nágrenni,“
sagði Logi og nefnir í því sam-
hengi meðal annars stangveiði-
menn. „Berufjarðarvatn tilheyrir
hótelinu og við munum kannski
selja veiðileyfi í það í framtíðinni.
Það kostar vinnu að koma því á en
er eitthvað sem okkur langar til
að gera,“ bætti hann við. „Fyrst
um sinn ætlum við þó að einbeita
okkur að því á að hér verði áfram
góð þjónusta í mat og drykk, við
leggjum mikla áherslu á gæði þar.
Erum með flottan matseðil og
tökum vel í allar óskir ef fólk finn-
ur ekkert sem höfðar til þess.“
Það sem helst hefur breyst und-
anfarið að sögn Loga er aukinn
straumur erlendra ferðamanna.
„Bókanir standa vel, hér verður
fólk í gistingu á hverjum degi al-
veg fram á haust og nær allra bók-
anirnar standa. Mikið eru þetta
erlendir ferðamenn sem skipu-
leggja ferðir langt fram í tímann.
Þeir ætla sér að mæta og standa
við það,“ segir hann. „Við höf-
um lagt okkur fram við að fylgj-
„Margir eiga héðan góðar minningar“
spjallað við Loga Guðjónsson, nýjan hótelstjóra í Bjarkalundi
ast með veðri og færð fyrir ferða-
menn áður en þeir fara í burtu og
það er þjónusta sem þeir kunna vel
að meta. Einnig bendum við þeim
á áhugaverða staði í nágrenninu,“
bætti hann við og kvaðst hafa fulla
trú á ferðamannastraumnum.
„Eins og ég sagði áðan erum við
hér í Bjarkalundi bjartsýn á kom-
andi sumar og stefnum á að byggja
upp góða ferðamannaþjónustu
hér á sunnanverðum Vestfjörð-
um,“ sagði Logi að lokum.
kgk