Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2002, Page 11

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2002, Page 11
seinna, Camp David 2000, og Taba-viðræðurn- ar 2001. Viðamesta tillagan og sú sem hefur fullt stjórnmálalegt vægi er hins vegar Beirút- yfirlýsing Arababandalagsins sem samþykkt var á leiðtogafundi þess í mars sl. Þar heita arabaríkin þvf að Ijúka deilunum við ísrael með friðarsamningum og taka upp eðlileg sam- skipti. í skiptum krefst bandalagið þess að ísr- ael láti af hendi herteknu svæðin frá 1967, að réttlát lausn finnist á vanda flóttafólksins f sam- ræmi við ályktun Sameinuðu þjóðanna (nr. 191 frá 1948) um rétt þess til að snúa aftur til heimalandsins, að ísrael viðurkenni sjálfstætt ríki Palestínu á Vesturbakkanum og Gaza og að austurhluti Jerúsalem verði höfuðborg þess. Þar með er viðurkennt að ísrael haldi landvinn- ingum sínum frá því í stríðinu 1948. ísraelar hafa alfarið hafnað þessum tillögum. Hvað tekur nú við í landinu helga? Höfðu árásirnar á herteknu svæðin verið lengi í bfgerð til að losna endanlega við Arafat og gera vonir um sjálfstætt ríki Palestínumanna að engu? Eða voru þær hefndarárás gegn hryðjuverkum á óbreytta borgara í ísrael? Er atburðarásin þar með í höndum öfgasamtaka eins og Hamas og hins íslamska Jihad? Var friðarferlið aðferð ísra- elsstjórnar til að kaupa tíma til að fjölga innflytj- endum í ísrael og gera þannig Óslóarsam- komulagið að engu? Öfgasamtökin Hamas komu til sögunnar um svipað leyti og intifada-uppreisnin 1987 en voru formlega stofnuð í ágúst 1988. Tilgangur þeirra er að berjast gegn heimsvaldastefnu Vestur- landa með því að útrýma ísrael og stofna ís- lamskt ríki í Palestínu. Samtökin starfa aðallega á Gaza en einnig á Vesturbakkanum. Þau eru allt í senn hryðjuverkasamtök, stjórnmálaleg, félagsleg og trúarleg hreyfing. Hamas nýtur mikils stuðnings á herteknu svæðunum í beinni samkeppni við Arafat og stjórn hans. Stjórnvöld f Saudi-Arabíu og Iran, auk einkaaðila, sjá um að fylla fjárhirslur samtakanna. Saga gyðinga og araba í Israel/Palestínu er samofin goðsögnum og hálfsannleik í miklu áróðursstríði fólks sem á þrátt fyrir allt margt sameiginlegt. Hinir fornu fþúar Kanaanlands, hebrear og filistear, voru semítar og arabíska og hebreska eru semísk tungumál. Trúarbrögð araba og gyðinga eru náskyld, enda af sama meiði, og sumir helgustu staðir þeirra eru hinir sömu í Jerúsalem. Þá bera múslimar og gyð- ingar nöfn spámannanna t.d. Daoud/Davíð, Ibrahim/Abraham. íslam og gyðingdómur eru ekki síður lífsmáti en trúarbrögð. Frá aldaöðli voru arabar undir íslamskri stjórn og lutu lögum íslams, Sharia, sem byggð eru á Kóraninum og kenningum spámannsins. Kenningar um þjóð- erni og þjóðríki voru aröbum fjarlægar þegar sí- onistar hófu að flytja til lands þeirra. Gyðingar eiga mörgum grundvallarspurning- um ósvarað. Fyrst og fremst hverjir teljist vera gyðingar og hvort gyðingdómur jafngildi þjóð- erni, en síonismi byggist á þeirri kenningu. Sf- onistar hófu baráttu fyrir sjálfstæðu ríki gyðinga rétt fyrir aldamótin 1900. Meirihluti gyðinga var þá andsnúinn þeirri hugmynd en eftir því sem hreyfingin efldist jókst stuðningur við hana. Segja má að tilgangurinn hafi verið að nútíma- væða gyðinga. Margir lifðu samkvæmt hefðun- um og voru frábrugðnir öðrum í háttum og út- liti. Gyðingur (e. Jew) er sá sem kemur frá Júd- eu (Judah). Síðast en ekki síst eiga gyðingar harmsögu um hina þrjú þúsund ára dreifingu (diaspora). Palestínumenn tala einnig um brott- rekstur/brottför sína frá Palestínu 1948 og 1967 sem dreifingu. Bakgrunnur þessarar harðvítugu og tilfinn- ingaþrungnu deilu erflókinn. Síonismi þróaðist í vel skipulagða pólitíska hreyfingu, sem tókst með ákvörðun Þjóðabandalagsins (forvera Sameinuðu þjóðanna) og Breta að byggja upp öflugt og vel skipulagt samfélag gyðinga f Palestínu fyrir stofnun Ísraelsríkis. Kyrrstöðu- samfélag araba var illa undir það búið að berjast gegn nýlendustjórn Breta og stórauknum inn- flutningi gyðinga á sama tíma. Þjóðernishyggja araba og Palestínumanna verður tíl í sjálfstæð- isbaráttu gegn Bretum, Frökkum og síonísma. Palestínumönnum finnst þeir illa sviknir, fyrst af Bretum, sem lofaðu aröbum sjálfstæðu ríki eftir fall Tyrkjaveldís, síðan af öðrum ríkjum araba sem hafa brugðist I tilraunum sínum til að frelsa Palestínu, og að lokum skipti alþjóða- samfélagið landi þeirra og gerði þá að réttlaus- um flóttamönnum í eigin landi og öðrum ríkj- um. i stríðinu 1967 flúðu/fóru um 300.000 manns frá Vesturbakkanum og Gaza til nágrannaríkjanna, um 200.000 þeirra flúðu til Jórdaníu. Um helm- ingur þeirra var að flýja í annað sinn. Fjöldi flótta- manna var kominn í 3,7 milljónir árið 2001. Af hálfu ísraela er útilokað að hægt sé að semja um flutning milljóna araba til ísraels og gera þannig út um ríki gyðinga. í Ísraelsríki búa nú um 5 milljónir gyðinga og ein milljón Palestínu- manna. Krafan um heimför er ein af lykilkröfum Palestínumanna.

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.