Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2002, Side 44

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2002, Side 44
viljanir.3 Ungfrú Oliver virðist vera hliðstæða Agöthu Christie en með sköpun hennar er glæpasagnadrottningin enn einu sinni að leiða lesendur sína á villigötur, ekki varðandi lausn sakamálanna heldur varðandi sjálfa sig og að- ferðir sínar. Ólíkt ungfrú Oliver var Agatha Christie ekkert að vaða áfram heldur er hún íhugull samfélagsrýnir þó að sjónum hennar sé beint að hinu smáa og persónulega fremur en hinum stóru línum samfélagsins.4 Hún hefur líka velt glæpasagnaforminu mikið fyrir sér og sumar sögur hennar eru eins konar táknsögur um formgerð glæpasögunnar. Það á ekki síst við söguna They Do It With Mirrors (1952) en nafn sögunnar vísar til sjón- hverfingamanna.6 Morðinginn í þessari sögu er hálfgerður sjónhverfingamaður en það eru ekki aðeins sjónhverfingar hans sem vísað er til heldur einnig höfundarins sjálfs. Glæpasagna- höfundurinn er sjónhverfingamaður og sjón- hverfingar hans eru iðulega af svipuðu tagi og hjá töframönnum. Lausn gátunnar er skýr og einföld en sviðsmunirnir leiða athyglina frá því sem er að gerast. í They Do It With Mirrors greina „áhorfend- ur" að glæpnum ekki nógu skipulega á milli þess sem þeir sjá og heyra og þess sem þeir telja sig hafa heyrt og séð. Þetta er lykillinn að list sjónhverfingamannsins og ungfrú Marple leysir morðgátuna þegar hún áttar sig á þvf að hún hefur verið áhorfandi að sjónleik: and just like on the stage there are entrances and exits and the characters go out to different places. Only you don't think when you're in the audience where they are really going to. They go out 'to the front door’ or 'to the kitchen' and when the door opens you see a little bit of painted backcloth. But really of course they go out to the wings - or to the back of the stage with carpenters and electricians, and other characters waiting to come on - they go out- to a different world. (177) (og alveg eins og á sviðinu þá eru inngangar og útgangar og persónurnar fara út á mis- munandi stöðum. Þegar maður er að fylgjast með þá veltir maður því ekki fyrir sér hvert þær fara í raun og veru. Þær fara út „um úti- dyrnar" eða „inn í eldhús" og þegar dyrnar opnast þá sést í málað baktjald. En í raun er fólkið að fara út á sviðsvænginn - eða bak við sviðið þar sem eru trésmiðir og rafvirkjar og aðrar persónur sem bíða þess að fara inn á sviðið. Fólkið fer út og kemur inn í annan heim.)6 Hún er stödd á heimili æskuvinkonu sinnar, frú Serrocold. Roskinn stjúpsonur gömlu konunn- ar, Christian Gulbrandsen, er gestkomandi á heimilinu. Hann er skotinn á meðan íbúar hússins eru uppteknir við að hlusta á rifrildi bak við luktar dyr. Allir hafa verið að fylgjast með leikritinu á sviðinu þó að í þessu tilviki heyrist raunar aðeins raddir. Enginn hefur velt því fyrir sér hvað sé á bak við sviðið. En með því að hugsa um það sem er á bak við sviðið skilur ungfrú Marple hvernig morðið gæti hafa verið framið. Ungfrú Marple leysir þannig í þessu tilviki morðgátuna með því að falla ekki fyrir hinni list- rænu blekkingu og hugsa um það sem gerðist í raun og veru. Hún fellur ekki heldur ( þá gryfju að glepjast af sjónhverfingalíkingunni. Allt bendir til þess að hér hafi verið framin sjón- hverfing af því tagi að athygli áhorfenda er beint á einn stað þegar það sem skiptir máli er að gerast annarstaðar. En það eru til fleiri brell- ur, til að mynda þegar aðstoðarkonan er söguð í sundur. Þá sjá áhorfendur fætur og höfuð og halda að sama stúlka eigi hvorttveggja en stúlk- urnar eru í raun og veru tvær. í þessu tilviki er lausnin önnur: Tvær raddir koma úr sama barka. En það er fleira sem villir sýn. Morðingjanum hefur haganlega tekist að koma á flot þeirri hugmynd að verið sé að eitra fyrir frú Ser- rocold. Þar með hefur rannsókn lögreglunnar verið beint í tiltekinn farveg og hún hefur ekki gaumgæft nógu vel hvort heimildirnar séu nógu góðar, einkum þar sem síðari atburðir virðast staðfesta það. En hér eru frekari sjón- hverfingar á ferð. Frú Serrocold þjáist af gigt og einkennin eru ekki ósvipuð arsenikeitrun. Arsenik á réttum stað leiðir því lögregluna á ranga braut. Hún gefur sér að Christian Gul- brandsen hafi haft áhyggjur af lífi stjúpmóður sinnar og gleymir því að gesturinn Gulbrandsen var mun ólíklegri en flestir heimilismenn til að komast á snoðir um slíkt. Eins og ungfrú Marple orðar það: „the real reason for Mr. Gul- brandsen's coming here was the most likely reason." (179) (En rétta ástæðan fyrir komu herra Gulbrand- sen hingað lá í augum uppi)7. Þetta er dæmi- gert fyrir lausnir í bókum Agöthu Christie. Það er yfirleitt hin einfalda lausn sem er rétt. í þessu tilviki - og langoftast í glæpasögum Agöthu Christie - er það fégræðgi sem veldur glæpnum. Það sem gerir ungfrú Marple að góðum leynilögreglumanni er hæfileikinn til að horfa fram hjá hinu flókna og falla ekki ( gildrur af þessu tagi. Ungfrú Marple er þannig eins og fyrirmyndarlesandi glæpasögu og raunar er hún í því hlutverki ( annarri bókinni þar sem hún kemurfyrir, The Thirteen Problems (1932). Þar er notuð gömul formgerð úr Tídægru, fólk seg- ir hvert öðru sögur. í þessu tilviki eru sagðar sögur af glæpamálum og menn eiga að leysa málið með því einu að hlusta á söguna og vís- bendingarnar í henni. Ungfrú Marple er þar nánast eins og hver annar lesandi, fær þó raun- ar að vera með í rammafrásögninni og ræður gátuna i hvert sinn. En ef ungfrú Marple er fyrirmyndarlesandi í þessari bók er glæpasagnahöfundurinn hlið- stæður morðingjanum. Báðir stunda sjónhverf- ingar. Eini munurinn er að þessi tiltekni höfund- ur afhjúpar alltaf lausnina sjálfur í lokin, oftast með hjálp Hercule Poirot og ungfrú Marple. They Do It With Mirrors er þannig sakamála- saga en einnig táknsaga um glæpasagnaform- ið. Veruleikinn og fordómarnir Eitt af því sérkennilega við lausn ráðgátunnar í They Do It With Mirrors er að hún snýst ekki aðeins um blekkingar morðingjans heldur einnig um sjálfsblekkingar annarra persóna í sögunni eða jafnvel samfélagsins alls. Sú sjálfsblekking tengist frú Serrocold, æskuvin- konu ungfrú Marple. Það er systir hennar, frú Van Rydock, sem fær ungfrú Marple á staðinn, meðal annars á þeim forsendum að það þurfi að vernda frú Serrocold þar sem hún skilji ekki hvernig heimurinn er í raun og veru: „Carrie Louise ... has always lived right out of this world. She doesn't know what it's like." (10) (Carrie Louise hefur aldrei lifað í takt við um- heiminn. Hún veit ekkert um hann)8. Þannig er því komið á framfæri strax í upphafi að frú Ser- rocold skynji ekki hinn raunverulega heim, trúi um of á hið góða ( heiminum og taki því ekki eftir hinu illa sem aðrir sjái mun skýrar. Þetta endurtaka síðan persónur sögunnar aftur og aftur. Lesandinn lætur glepjast. í sögulok uppgötvar ungfrú Marple hins veg- ar að þetta er alls ekki rétt: Everyone kept saying how Carrie Louise lived in another world from this and was out of touch with reality. But actually, Carrie Louise, it was reality you were in touch with, and not the illusion. You are never deceived by illusion like most of us. (181) (Allir sögðu að Carrie Louise lifði ( öðrum heimi og væri úr snertingu við raunveruleik- ann. En í raun var Carrie Louise í snertingu við raunveruleikann en ekki tálsýnina. Ólíkt flestum okkar lést þú aldrei villa þér sýn.)9 Þessi uppgötvun getur nýst ungfrú Marple við lausn málsins. Fram að því höfðu menn ekkert tekið mark á frú Serrocold. Ungfrú Marple gef- ur sér hins vegar að hún hafi haft á réttu að standa en það merkir að allt sem virtist í upp-

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.