Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2002, Qupperneq 25

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2002, Qupperneq 25
Engu að síður, ef litið er á tvo höfuðsnillinga argentínskrar knattspyrnu, Alfredo di Stéfano og Diego Armando Maradona, þá er ekki svo fráleitt að líkja þeim við tangódansara. Segja má að í hinum fyrrnefnda hafi speglast hin fágaða, jafnvel aristókratíska útgáfa tangós- ins sem ratað hefur inn í fínustu samkvæmis- sali heimsins. Snilld Maradona minnir hins vegar meira á frumtangóinn sem dansaður var af melludólg- um og götustrákum sem höfðu til að bera allt í senn elegans, prakkaralega ósvífni og lítt dulda hugarkvöl. [ raun og veru er fátt vitað með vissu um tilurð tangósins nema að hann er jafnar- gentínskur og ið tangó sé leitt af latnesku sögninni „tangere" sem þýðir að snertast og vilja þá um leið skýra orðið út frá hinni nánu snertingu dansaranna. Því hefur verið haldið fram að tangódansinn sé að töluverðu leyti sprottinn upp úr milonga, alþýðudansi íbúanna á Pampas, sléttunni miklu þar sem hin sanna karlmennskuímynd Argent- ínu, gauchóinn, ríður um á fáki sínum. Milonga er sagður tvinnaður saman úr indjánskri hrynj- andi, evrópskum polka og síðast en ekki síst kúbanska habaneradansinum. Þannig renna saman í tangónum hinir þrír meginstraumar menningar I „nýja heiminum", menning frumbyggjanna, menning afrískra þræla og menning evrópskrar al- þýðu. Þessi dans sem fátækustu og aumustu innflytjendurnir í Argentínu hugga sig við í örmum gleðikvenna verður síðan öðrum listformum fremur til að endurspegla raunir þessa fólks og harmsögu, ekki bara þeirra heldur allrar álfunnar. Um leið hefur hann líka með vissum hætti gauchóinn, argentínski kúrekinn. Með vissum hætti segir verk argentínska tónskáldsins Astors Pi- azolla, „Histoire du Tango", allt sem vitað er um sögu tangósins. Fyrsti þátturinn heitir „Bordello", annar „Café", þriðji „Night-club" og sá fjórði og síðasti „Concert d'aujourd'hui". Þarna er með öðrum orðum stiklað á eftirfar- andi póstum: Tangóinn vaknar í gleðihúsum Buenos Aires, ratar síðan inn á kaffihús Parísar, verður vinsæll dans í fínustu samkvæmissölum Vesturlanda og að síðustu tónlist sem fram- sækin tónskáld semja undir áhrifum frá klass- ískri tónlist og djassi (líkt og Piazolla gerði sjálf- ur). Menn eru ekki einu sinni á eitt sáttir um upp- runa orðsins tangó. Sumir vilja meina að orðið sé upprunalega heiti á trommunni sem notuð var við dansa afrískra þræla. Síðar hafi orðið svo færst yfir á þá staði þar sem þrælarnir komu saman til að dansa í Buenos Aires og Montevideó í upphafi 19. aldar, og að síðustu yfir á dansinn sjálfan, söngtextana og músíkina sem leikin var undir. Þeir eru einnig til sem halda því fram að orð- orðið tákn í frelsisþaráttu argentínskra lág- stétta. Um 1880 var tangóinn orðinn sérstakur dans sem dansaður var á kjötkveðjuhátíðum og ( vændishúsum í skuggahverfum Buenos Aires- borgar. í fyrstu var leikið undir á flautu, fiðlu, hörpu og gítar, en um 1885 barst til Argentínu sérstök harmónikkugerð frá Þýskalandi, band- óneón, sem með sínum tregablandna hljómi átti eftir að verða einkennishljóðfæri tangósins. Einhvern tíma á árunum 1907-14 barst tangóinn til Parísar og eftir það varð hann fljót- lega einn vinsælasti samkvæmisdans heimsins Vigfús Geirdal: Tangó Argentínó tmm bls. 23 og ruddi brautina fyrir fleiri latínameríska dansa og djassinn. Tangóinn var enn lágstéttarfyrirbrigði og fyr- irlitinn af yfirstéttinni í Argentínu þegar hann barst til Parísar. Sagt er því að þar hafi margir argentínskir góðborgarar fyrst tekið hann í sátt og í raun uppgötvað hann. Þetta fólk á síðan að hafa flutt hið raffíneraðra evrópska afbrigði tangósins aftur til Argentínu. Páfi íhugar bann Blómaskeið tangósins í Evrópu er á þriðja ára- tug 20. aldar. Stóran þátt í vinsældunum er sagt að átt hafi kvikmyndin „The Four Horsemen of the Apocalypse", eða öllu heldur stjarnan Rudolf Valentino sem dansar tangó í myndinni. Svo rammt kvað að vinsældum tangósins á þriðja áratugnum að páfadómur íhugaði að bannfæra dansinn af siðsemis sökum. Sagt er að Píus páfi 10. hafi jafnvel lagt það á sig að horfa sjálfur á par dansa tangó. Á hann svo að hafa komist að þeirri niður- stöðu að dansinn væri svo flókinn og krefðist slíkrar einbeitingar að engar saurugar hugsanir gætu komist að dönsurunum meðan þau döns- uðu. Og því engin ástæða til að banna hann. Að sjálfsögðu stóð blómaskeið tangósins mun lengur yfir í Argentlnu en í Evrópu og Bandaríkjunum. Sumir segja að það hafi varað í 30 ár, aðrir að því hafi aldrei linnt. Ýmsir pólitískir Argentínumenn vilja líka draga úr þeirri kenningu að tangóinn hafi fyrst orðið almennt vinsæll þar í landi eftir að hann varð vinsæll í París. Þeir benda á að það hafi fylgst að, almennur kosningaréttur karla árið 1912 og vaxandi vin- sældir tangósins. Sama hafi gerst á fimmta ára- tugnum samfara ýmsum félagslegum umbót-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.