Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2002, Blaðsíða 57

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2002, Blaðsíða 57
Óli Jón Jónsson: Mannabein tmm bls. 55 hafði staðið nákvæmlega í skránni um þennan skáp og merkingarnar á kössunum voru máðar svo að erfitt var að lesa hvað utan á þeim stóð. Ég spurði karlinn hvort ég mætti opna einn kassann. Hann var fyrst óákveðinn á svipinn en jánkaði svo nokkrum sinnum og bandaði eitt- hvað með höndunum. Ég hugsaði með mér að ég væri heppinn að hann skyldi vera forvitinn. Ég lyfti efsta kassanum. Mér kom á óvart hvað hann var léttur. Þegar ég lagði hann frá mér á gólfið heyrði ég ekki betur en að hringl- aði í honum. Eins og þurrt spýtnabrak. Hjartað tók kipp - þetta hljóð. Ég kraup niður að kassanum og losaði var- lega um spennurnar á lokinu. Svo lyfti ég því hægt af. Ég dró andann djúpt. Og þarna lágu þau. Liturinn var meira að segja eins og í minningunni. Ég var ekki í vafa. Það var eiginlega stórmerkilegt, ég var hand- viss um leið. Ég reis á fætur og varpaði öndinni. Stóð svo um stund og virti fyrir mér hauskúp- urnar. Ég ákvað að fara fótgangandi aftur á hótelið. Þetta var dálítill spölur en á leiðinni gafst mér tóm til að hugleiða uppgötvun mína. 1 miðjum Tiergarten gekk ég fram á verkamenn sem voru önnum kafnir við að grafa skurð þvert gegnum stíginn. Ég vissi ekki fyrr en ég stóð nánast á brúninni og það munaði reyndar minnstu að ég dytti ofan í skurðinn. Einn mann- anna leit upp og benti mér á göngubrú sem lá yfir skurðinn skammt frá. Hann var með gulan plasthjálm á höfði. Þá mundi ég allt ( einu eftir honum, með brúna skelina á höfðinu, glottandi í átt til okkar hinna. Eins og honum fyndist þetta allt saman vera eitthvert grín. Með hausinn inni í haus- kúpu annars manns. II. Dagana á undan hafði ég verið á fundi hjá fé- lagsskap sem við norrænir fæðingarlæknar á eftirlaunum höfum með okkur. í þetta sinn höfðum við komið saman í Helsinki. Það er reynt að hafa fundina til skiptis í höfuðborgum landanna. Stundum hafa fundirnir verið haldnir úti í sveit en það hefur þó ekki gerst oft, mætti gera meira af því. Ég er reyndar hættur að fara á þessa fundi núorðið. Maður er eiginlega orð- inn of lélegur fyrir þessi ferðalög. En þetta byrj- aði sem sagt á fundinum í Helsinki. Vorið var óvenju snemma á ferðinni þetta árið og það var meira að segja hlýtt þegar mað- ur kom út á morgnana. Samt var apríl ekki nema nýbyrjaður og allt á kafi í snjó heima. En þrátt fyrir góða veðrið var ég eiginlega farinn að hlakka til að komast aftur heim. Ekki svo að skilja að mér hafi leiðst félagsskapurinn. Síður en svo. Margir í þessum hópi eru fyrir löngu orðnir góðir vinir mínir. Við sendum hver öðrum jólakort og skiptumst á heimsóknum. Mér fannst borðhaldið síðasta kvöldið vera farið að dragast dálítið á langinn, ræðurnar voru að verða óþarflega orðmargar og hægt gekk á mælendaskrána. Menn voru margir orðnir nokkuð við skál og brandararnir orðnir eftir því, enda ekki margar konur í salnum. í félaginu eru fáar konur eins og gefur að skilja. Það er auð- vitað bara fyrst núna sem þær eru farnar að streyma inn í stéttina. Ég bað kollegana við borðið að hafa mig afsakaðan og laumaðist fram í lobbí. Líklega hefur eirðarleysi mitt ekki síst stafað af því að ég var ekki búinn að fá mér vindil eftir matinn eins og ég var vanur. Nú er maður líka hættur því, eins og öllu. Ég settist í stóran hægindastól við barinn og kveikti mér í. Gólfteppið var með skrautlegu munstri. Það var dökkbrúnt og alsett hvítum og appelsínugulum kössum. Það minnti á ein- hvers konar völundarhús. Ég byrjaði að reyna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.