Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Side 9

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Side 9
List, sannleikur og stjórnmál var sagt að írak ógnaði öryggi heimsins. Við vorum fullvissuð um sann- leiksgildi þessa. Þetta var ósatt. Sannleikurinn er allt annar. Sannleikurinn snertir skilning Banda- ríkjanna á hlutverki sínu í heiminum og hvernig þau kjósa að rækja það. En áður en ég sný mér aftur að nútíðinni langar mig til að líta á nýliðna fortíð, nefnilega utanríkisstefnu Bandaríkjanna frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Ég tel brýnt að skoða þetta tímabil þó ekki sé nema lauslega, enda leyfir tíminn ekki meira. Allir vita hvað gerðist í Sovétríkjunum og Austur-Evrópu eftir stríð: kerfisbundið ofbeldið, víðtæk grimmdarverkin, miskunnarlaus kúgun á sjálfstæðri hugsun. Allt þetta hefur verið skráð og sannað. En ég vil halda því fram hér að glæpir Bandaríkjanna á þessu sama tímabili hafi ekki verið kannaðir nema yfirborðslega, hvað þá skjalfestir, hvað þá viðurkenndir, hvað þá taldir til glæpa yfirleitt. Ég tel að þetta þurfi að ræða og að sannleikurinn hafi verulega mikið að segja fyrir ástandið í heiminum eins og er. Þó að Sovétríkin héldu að nokkru leyti aftur af Bandaríkjunum þá hefur framferði Bandaríkjanna um allan heim sýnt glögglega að þeim fannst þau geta gert það sem þeim sýnd- ist. Það hefur reyndar aldrei verið eftirlætisaðferð Bandaríkjanna að ráðast beint inn í fullvalda ríki. Yfirleitt hafa þau fremur kosið ‘minni háttar átök’. Það þýðir að þúsundir manna deyja en ekki eins hratt og ef sprengju væri varpað á þá beint. Það þýðir að hjarta landsins er sýkt, ill- kynja æxli er komið fyrir og svo er fylgst með drepinu breiða úr sér. Þegar þjóðin hefur verið kúguð - eða barin til dauðs - það kemur út á eitt - og einkavinir manns, herinn og stórfyrirtækin, sitja í makindum við völd, þá stillir maður sér upp fyrir framan myndavélarnar og segir að lýðræðið hafi sigrað. Þetta var algengt í utanríkispólitík Bandaríkj- anna á árunum sem ég er að tala um. Harmleikurinn í Nicaragua er stórmál í þessu samhengi. Ég legg það fram hér sem áhrifamikið dæmi um sýn Bandaríkjanna á hlutverk sitt í heiminum, bæði þá og nú. Ég sótti fund í bandaríska sendiráðinu í London seint á níunda ára- tugnum. Bandaríkjaþing var í þann veginn að ákveða hvort það ætti að veita Kontraskæruliðum meiri fjárstuðning til að berjast gegn stjórninni í Nicaragua. Ég var í sendinefnd á vegum stjórnar Nicaragua en fremstur í þeim flokki var séra John Metcalf. Fyrirliði nefndar Bandaríkjastjórn- ar var Raymond Seitz (þá varasendiherra, síðar sendiherra). Séra Met- TMM 2006 ■ 1 7
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.