Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Side 24

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Side 24
Böðvar Guðmundsson Má enn sjá þessar tvær ær troðnar með hálmi á þjóðminjasafni Dana. Skipin sigldu nú lengra norður í höf og vörpuðu akkerum úti fyrir Reykjavík. Þá hafði enginn maður með konungablóð í æðum komið til fslands síðan Hrærekur, en landsmönnum var enn í fersku minni kon- ungdómur Jörundar og því sló felmtri á betri menn í Reykjavík er það kvisaðist að konungborinn maður væri á herskipi úti á legunni. Bæði pólití staðarins voru kvödd til að grípa manninn ef hann mundi útnefna sig hæstráðanda til sjós og lands og leysa upp dönsk myndugheit. En óþörf var öll sú fyrirhöfn, Friðrik prins fór með friði sem ávallt og var auk þess í gæslu sinna varðhaldsmanna. Hann heilsaði hverjum manni með kossi og þáði í nefið og drakk brennivín með búðadónum í Reykja- vík og veitti þeim af áður óþekktri rausn. Þá var forn saga íslands orðin kunn nokkrum lærdómsmönnum í Norðurálfu. Kristján faðir hans var vel heima í henni sem öðrum vís- indum og bað hann gæslumenn Friðriks áður en þeir sigldu að sýna honum sögustaði, ríða með honum til Þingvalla og sækja heim búgarða þeirra Snorra Sturlusonar og Gunnlaugs ormstungu. Því var strax hafist handa að safna saman reiðskjótum handa Friðrik prinsi og hans gæslu- mönnum. í þann tíð voru hestar á íslandi svo smáir að herðakambur þeirra mundi í dag nema meðalmanni í nafla og þurfti lengi að leita um Kjós og Gullbringu að þeim reiðskjótum er gætu borið prinsinn til Þingvalla, hann var rúmar þrjár álnir á hæð og gildur. I Hafnarfirði fundust að lokum tvær skjóttar hryssur að talið var að gætu borið prins- inn, ásamt móálóttum graðhesti úr Selvogi. Gæslumenn hans voru smávaxnari og því minni vandi að flytja þá. Hersingin öll reið til Þing- valla á blíðum sólskinsdegi. Hrossin báru prinsinn sæmilega, en hann var lítill hestamaður og fór því hægt, mátti og gæta sín í þröngum reið- götum landsins að ekki drægjust fætur hans við jörð. Lítið gaman þótti honum á Þingvöllum, rústir fáar og haugar engir að grafa í. Þá var á Þingvöllum fátt til gamans, alþingi niður lagt og dómar, eins og Jónas kvað: Nú er þar þrotin þyrping tjalda, þögult og dapurt hraunið kalda, þótti þér ekki ísland þá alþingi svipt með hrellda brá? Að kvöldi þessa dags tók að rigna og gisti prinsinn og fylgdarlið hans í Þingvallakirkju um nóttina, sem þá var eitt húsa staðarins að ekki lak. Morguninn eftir var haldið um Kjósarskarð áleiðis til Borgarfjarðar. 22 TMM 2006 • 1
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.