Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Blaðsíða 10
Harold Pinter
calf sagði: „Herra minn, prestakall mitt er í Norður-Nicaragua. Sókn-
arbörn mín reistu skóla, heilsuverndarstöð, menningarmiðstöð. Við
höfum lifað í friði. Fyrir nokkrum mánuðum réðist flokkur Kontra-
skæruliða á héraðið. Þeir eyðilögðu allt, skólann, heilsuverndarstöðina,
menningarmiðstöðina. Þeir nauðguðu hjúkrunarkonum og kennurum,
drápu lækna með hinum svívirðilegustu aðferðum. Þeir höguðu sér eins
og villimenn. Vinsamlegast biðjið Bandaríkjastjórn að hætta að styðja
þessa hryðjuverkamenn.“
Raymond Seitz hafði orð fyrir að vera skynsamur, ábyrgur og afar
fágaður maður. Hann naut mikillar virðingar í utanríkisþjónustunni.
Hann hlustaði, þagði við en sagði síðan með nokkrum þunga: „Faðir,“
sagði hann, „leyfið mér að segja yður nokkuð. I stríði þjást hinir sak-
lausu ævinlega.“ Þögnin var ísköld. Við störðum á hann. Hann deplaði
ekki auga.
Hinir saklausu þjást vissulega, alltaf.
Loks sagði einhver: „En í þessu tilviki eru ‘hinir saklausu’ fórnarlömb
grimmdar sem stjórn yðar styrkir, og meðal margra slíkra. Ef þingið
veitir Kontraskæruliðum meira fé verða fleiri slík grimmdarverk fram-
in. Er það ekki rétt? Er þá ekki stjórn yðar sek um að styðja morð og
tortímingu þegna í fullvalda ríki?“
Seitz var óhagganlegur. „Ég samþykki ekki að staðreyndirnar styðji
fullyrðingar yðar,“ sagði hann.
Þegar við vorum að fara út úr sendiráðinu sagði starfsmaður þess að
hann héldi upp á leikritin mín. Ég ansaði ekki.
Ég ætti að minna á að á þessum tíma gaf Reagan forseti eftirfarandi
yfirlýsingu: „Kontraskæruliðar eru siðferðileg hliðstæða við feður Banda-
ríkjanna, okkar Founding Fathers.“
Bandaríkin studdu grimmdarstjórn einræðisherrans Somoza í Nic-
aragua í yfir 40 ár. Þjóðin steypti ógnarstjórninni árið 1979 í grasrótar-
byltingu sem Sandinistar leiddu.
Sandinistar voru ekki fullkomnir. Þeir áttu til sinn hroka, og stjórn-
málaheimspeki þeirra var þversagnakennd. En þeir voru greindir, skyn-
samir og siðmenntaðir. Þeir hófust handa við að skapa tryggt, gott og
fjölbreytilegt samfélag. Dauðarefsing var afnumin. Hundruðum þús-
unda fátækra bænda var bjargað frá bana. Yfir hundrað þúsund fjöl-
skyldum var gefið land. Tvö þúsund skólar voru byggðir. Merkileg lestr-
arherferð minnkaði ólæsi í landinu í einn sjöunda. Menntun varð
ókeypis og heilsugæsla líka. Barnadauði minnkaði um þriðjung. Löm-
unarveiki var útrýmt.
Bandaríkin fordæmdu þennan árangur sem marxísk-leníníska niður-
8
TMM 2006 ■ 1