Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Page 50

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Page 50
Þorleifur Hauksson Boðskapurinn er að menn eigi að skrifa ferskan stíl, og vissulega lætur höfundur ganga „leppinn og þvöguna" gagnvart þeim sem „kennt“ er og „bent“. Á hinn bóginn eru þetta engar fræðigreinar. Hugtökin sem Þórberg- ur notar eru mjög huglæg og óvísindaleg. Þau tvö sem falla undir stíl- fræði eru myndhverfingar með skírskotunum til sálarástands þess sem skrifar, enda er Þórbergur ekki að skafa utan af þeirri samtengingu. Aðfinnslur Þórbergs um skalla og ruglandi eru ekki beinlínis stíl- fræðilegar heldur varða þær nákvæmni í lýsingum og röklegt samhengi, eða öllu heldur skort á hvoru tveggja. Það má segja að á stöku stað leiði þessi nákvæmniskrafa út í öfgar eins og Kristján bendir á dæmi um, en almennt held ég að Þórbergur sé að flestu leyti sjálfum sér samkvæmur út frá þeim reglum sem hann setur sér. Síðan má auðvitað deila um þær. I íslenskri stílfrœði eru stílskrif Þórbergs fyrst og fremst skoðuð í sam- hengi við höfundarverk hans sjálfs, ekki í samanburði við viðfang hans, þ.e.a.s. Hornstrendingabók. Eins og Kristján getur vissulega um segir Þórbergur bæði kost og löst á bókinni og höfundi hennar, segir m.a. að hún beri af „öðrum héraðalýsingum, er oss hafa birzt, og reyndar fleiri greinum bókmennta hér á landi".1 Greinin er mjög vígreif og hana verð- ur að skoða í ljósi þess að blaðagreinar á þessum tíma voru miklum mun stóryrtari en við eigum að venjast. Hins vegar kemur annað til sem ég hefði sjálfsagt átt að gefa gaum. Umfjöllun Þórbergs um þessar meintu ávirðingar Þórleifs Bjarnasonar er undarlega gildishlaðin og jafnvel heiftúðug. Þetta sést af samanburði við hina ritgerðina, „í verum“ þar sem á sama hátt er sagður bæði kostur og löstur á bók og dregnar hlið- stæður milli stíls og skapgerðar í trausti þeirrar skoðunar að stíllinn opinberi manninn. En þessi neikvæðu gildishlöðnu orð er þar ekki að finna. Þar er engin uppskafning, lágkúra eða ruglandi, ekki notuð orð eins og feyra, óþolandi lýti, skrumskælingur, hræmulega, hryllileg sýn- ingarsýki, fáránlegasta skrúfmælgi, þrálátt skrúf, svo að aðeins sé vitnað í meint einkenni uppskafningar. Þannig get ég vel fallist á að sá sem er „kennt“, höfundur Hornstrendingabókar, verðskuldi ekki svo harðan dóm. Uppskafning átalin Áður en við kveðum upp úr um ástæðu þessarar hörðu ádrepu er rétt að dvelja aðeins við fyrirbærið uppskafningu og í hverju hún er fólgin að mati Þórbergs. Eitt „sjúkdómseinkennið“ er hátíðlegt orðaval umfram 48 TMM 2006 • 1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.