Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Page 22

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Page 22
Böðvar Guðmundsson mér að fara með kviksögur á prenti um tignarmenn. Víst er að harla ólík voru þau frændsystkin, Friðrik og Vilhelmína, og ekki var hann spurður hvort honum dámaði ráðahagurinn. Nýfermdur og trúlofaður var nú Friðrik sendur suður til Rómar að læra hversu skyldi her beita og lýð stýra. Að þremur vetrum liðnum kom hann aftur úr suðurgöngu og hafði þá hvorugt lært en brúðkaup sitt hélt hann skömmu síðar. Það var mikil hátíð og af því tilefni lét Friðrik kon- ungur VI skáld sitt, Jóhann Lúðvík Heiðberg, semja mikla kómedíu um Kristján IV. Kómedían heitir Álfhóll og er enn leikin víða í Danmörku. Þýskur tónmeistari er hét Friðrik Daníel frá Kúluá í Úlfsteini hafði þá lengi verið við hirð Friðriks VI. Er hann var enn á æskuskeiði var róstu- samt í Úlfsteini og flæmdist hann þaðan brott og allt til Danmerkur en lét þó áður annað auga sitt. Friðrik Daníel frá Kúluá lét þeyta marga lúðra og berja ákaft bumbur í kómedíunni Álfhóli og Matthías skáld lét syngja þau lög flest í Skuggasveini. Þótti flestum mikið gaman að kómedíunni og lofa leikhúsgestir enn í dag ákaflega hugrekki Kristjáns IV er hann ríður yfir lækinn Trygguvellu. Friðrik Kristjánsson dáði æ síðan Jóhann Lúðvík og sjónarspilið Álfhól. Þá lét Friðrik Kristjánsson sjálfur steikja marga uxa á teini víða um Danmörku og draga til ölámur stórar að almenningur mætti eiga hlut að gleðinni. Af þessu var hann elskaður af múgamönnum en miður mæltist uppátækið fyrir hjá hirð og ríkisráði. Tengdafaðir hans, Friðrik VI, lét þó kyrrt. I öllu var Friðrik Kristjánsson líkari sléttum bóndamanni en prinsi og undi illa kurteisisvenjum og hefðarstandi og aldrei mælti hann á kon- ungamáli, hvorki fyrir né eftir krýningu. Best líkaði honum við glaum- gosa og hlaupastelpur og svipaði þar til afabróður síns, Kristjáns VII. Ekki voru samfarir þeirra Friðriks og Vilhelmínu góðar og þótti honum kalt að eiga náttból í hvílu eiginkonu sinnar. Af þessu var Vil- helmína harmi slegin, hún var kona siðavönd og guðhrædd. Þeim varð ekki barna auðið. Það var einhvern morgun að frú Vilhelmína bað um áheyrn hjá föður sínum. Henni var þungt um mál og sá konungur að hún hafði grátið. Hann unni Vilhelmínu dóttur sinni mest sinna barna. Hann tók nú frú Vilhelmínu í faðm sinn og kyssti hana og bað hana að segja sín erindi. Hún svaraði seint en mælti þó að lokum af þungum móði: „Herra, hver mundi sú kona, er maka hennar leikur meir hugur á að róta í rotnandi tröllabeinum en að taka á hennar eigin kné?“ „Eigi er við yður að sakast,“ mælti konungur, „og má enn sannast hið fornkveðna, að þótt gaukurinn laumi sínu eggi í hreiður göfugra fugla, þá kemur engu að síður gauksungi úr því eggi. Still nú sorg yðar, en 20 TMM 2006 • 1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.