Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Side 52

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Side 52
Þorleifur Hauksson Nóttin var gagnsæ hula, áþekkust augum hennar sjálfrar, bláljós og svöl, gló- andi lognský í austri, rólegt lambfé á vellinum, rakkarnir sofnaðir, undirlendið uppgufað í þoku, sem vafðist að hlíðum fjallsins og teygði sig alla leið upp í hamrabeltin, álfaleiði á hvítum firðinum, kría. Þannig stóðu þau í túninu meðal hins vitra lambfjár, starandi, næstum uppleyst, og hérumbil einginn veruleiki meir, aðeins hið leiðslukenda ástand vornæturinnar, fjarri svefni, ofar vöku, veröld, vitund.4 Pétur Gunnarsson bendir á það í grein sinni „Þórbergur og skáldsagan“ að í Sálminum um blómið megi greina lítt falda ritdeilu við hinn gamla keppinaut Halldór.5 Sú dulda ritdeila er greinilega til komin meira en áratug fyrr, eins og þessi dæmi sanna. Ég held að ástæðan fyrir stóryrð- unum í „Einum kennt öðrum bent“ sé sú að skeytunum hafi verið beint hærra, til þess sem tók ekki leiðsögn. Og Þórbergur var svo sem ekki einn um skeytasendingarnar. Fegurð himinsins, síðasta bók Heimsljóss, kom út 1940, nokkrum árum á undan ritgerð Þórbergs. f lok þeirrar bókar er Ólafur Kárason á skipsfjöl á heimleið úr fangelsinu og um borð í skipinu er skemmtikraftur, „hjartaknosari að austan", sem lýst er á þennan hátt: Hjartaknosarinn var álappalegur sveitamaður, sem stundaði þjóðleg fræði til að komast á prent og láta sín getið með lærðum mönnum syðra. Hann aðhyltist þá skoðun að hver sá sem ekki tryði á Þorgeirsbola væri geðbilaður; að öðru leyti virtist hann eiga heima á venjulegum þíngmálafundi. Hann sagði draugasögur á þjóðlegan hátt með viðeigandi ættartölum, héraðalýsíngum, atvinnusögu, hagfræði, veðurfræði og eftirhermum manna og dýra, ásamt endalausum til- vitnunum í málsmetandi menn og ráðvandar konur. Hann sigraðist á tortrygni áheyrenda með lýsíngum af heiðum og dölum, sem ekki var kostur að reingja, ættfærði alla sem komu við sögu, svo menn sannfærðust um að hér var ekki aðeins um að ræða sannort og heiðarlegt fólk, heldur jafnvel raunverulegt fólk, sem gat alteins verið í ætt við áheyrendurna, tilgreindi nákvæmlega veð- urskilyrði og búskaparlag í héruðum reimleikanna, að ógleymdu kristsári, almanaksmánuði, mánaðardegi og eykt þegar einhverjum málsmetandi manni eða ráðvandri konu var riðið af draugi. En þegar þessi sálarsljóvgandi gagn- fræðamentun með sínum seigdrepandi staðreyndum var á enda, voru menn loksins komnir í það sálarástand að taka því sem kórónun alls veruleiks að hauslausir menn eða búklausar konur nudduðu köldum strjúpanum að vitum lifandi fólks.6 f „Einum kennt öðrum bent“ deilir Þórbergur á tvenns konar meintar öfgar í ritstíl samtímans. Annars vegar á það sem hann kallar lágkúru. sem hann telur sprottna af þröngsýni og einhæfni bændasamfélagsins, hins vegar á uppskafningu sem sé sýndarmennska og tildur „úr útlend- um toga spunnin“. Á það fyrirbæri sendir hann föstustu skotin, og þar 50 TMM 2006 • 1
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.