Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Page 67

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Page 67
Skáldsagan og samtíminn meginhluti sögunnar er þó lagður undir annað: sögu um sögur þar sem ólíkir rithöfundar segja sömu eða svipaða sögu frá ólíkum sjónarhorn- um. Margir kaflarnir eru vel skrifaðir, sem kemur ekki á óvart í ljósi fyrri bóka Stefáns Mána. En það sem flestir sögumennirnir eða rithöfund- arnir sem taka til máls í bókinni eiga sameiginlegt er óbeit eða ofnæmi fyrir öllu og öllum sem birtist í miklum áhuga á kúk og skít. Bókin er ein samfelld útmálun á ógeði og úrkasti sem sögumenn hennar sjá hvarvetna. Sem ádeila er sagan máttlítil og sem umfjöllun um bókmenntalíf eða rithöfundaraunir sömuleiðis. Ádeilan er máttlaus þegar allt er undir sömu sökina selt, það er vandséð hvað er verið að gagnrýna eða hvort verið er að gagnrýna eitthvað yfir höfuð. Sagan er full af fremur ógeð- felldum og lítilsigldum persónum. Niðurstaða sögumannanna flestra virðist sú að fólk sé aumingjar og fífl. Vangaveltur og tilraunir með frásagnarform sem mynda hina meginstoð bókarinnar vekja ekki held- ur áhuga, bæði tilraunir Stefáns með frásagnartækni og vangaveltur sögumanna um fagurfræði og skáldskap rista fremur grunnt. Tvær skáldsögur ársins reyna hvor á sinn hátt að greina og gagnrýna nýfrjálshyggjuna, þá hugmyndafræði sem hefur haft hvað mest áhrif á samtíma okkar síðustu áratugi. Þetta eru Barnagælur Óttars Martins Norðfjörð og Hinir sterku eftir Kristján Þórð Hrafnsson. í Barnagælum fetar Óttar meðvitað í fótspor ameríska rithöfundarins Brett Easton Ellis. Rétt eins og Ellis í American Psycho útmálar Óttar hugarheim viðbjóðslegs glæpamanns, barnaníðings og morðingja á grafískan hátt. Raunsæi af þessu tagi býður alltaf þeirri hættu heim að það sé misskilið sem það klám sem það er að reyna að slást við, og þetta urðu örlög Barnagæla. I ritdómi Páls Baldvins Baldvinssonar í DV var engin tilraun gerð til að skilja eða greina söguna heldur var henni hafn- að umyrðalaust sem vel stíluðum viðbjóði. En auðvitað hangir meira á spýtunni. Lýsing Óttars á barnaníðingn- um og alþingismanninum Pétri B. Ásgeirssyni er jafnframt greining á samfélagi og hugmyndafræði sem skapar mann af nákvæmlega hans tagi. Hann er einstaklingshyggjan og græðgin holdi klædd, persóna sem keyrir sérhyggjuna í botn. Annað fólk er eins og hverjir aðrir hlutir í hans augum, tóm form sem hann getur ráðskast með að vild. Rétt eins og Patrick Bateman í American Psycho er hann heltekinn af eigin lík- ama sem hann ræktar og snyrtir með það fyrir augum að gera hann eins sléttan og harðan og mögulegt er. Þetta er verulega grimm ádeila og ein- hver myndi halda því fram að hún sé beinlínis ósanngjörn, en hún er TMM 2006 • 1 65
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.