Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Side 84
Menningarvettvangurinn
Þegar þetta hefti kemur til áskrifenda verður væntanlega búið að opna nýtt
svið Þjóðleikhússins, Kassann, og frumsýna Pétur Gaut eftir Ibsen undir stjórn
Baltasars Kormáks. Megi gæfan vera með því framtaki öllu. I Kassanum verð-
ur Bernd Ogrodnik líka með brúðusýningu sína seinna í vor. Það var kominn
tími til að hann fengi að sýna hvað hann getur í heilli sýningu. Framlag hans
til þeirrar indælu sýningar Klaufar og kóngsdœtur í Þjóðleikhúsinu er minnis-
stætt.
Eins og leikhúsáhugamenn hafa tekið eftir hefur sú stefna verið tekin upp í
Þjóðleikhúsinu að hafa sýningar þéttar í afmarkaðan tíma. Starfsfólk leikhúss-
ins segir að almennt hafi leikhúsgestir tekið vel í þessa nýjung. Fyrstu sýningar
vetrarins hafi eflaust liðið fyrir nýjabrumið að einhverju leyti en flestir hafi
verið fljótir að átta sig. Alltaf er möguleiki að taka sýningar upp aftur seinna ef
þær hafa ekki „gengið út“, en þá verður sýningatími líka takmarkaður. Þetta
fyrirkomulag hefur marga kosti fyrir leikhúsið og starfsmenn sýninga - en líka
fyrir gesti sem ættu að fá betri list en vill verða þegar langt líður milli sýninga.
Þjóðleikhúsið tekur þátt í Listahátíð í Reykjavík með því að bjóða til sín
þýska leikstjóranum, leikaranum og handritahöfundinum Christoph Schlin-
gensief (f. 1960) og láta hann setja upp sýningu með listamönnum hússins
undir titlinum Ódysseifsferð um Edduna. Schlingensief er, að sögn þjóðleikhús-
manna, „enfant terrible“ í þýskum leikhúsheimi sem vinnur á mörkum leik-
húss, gjörninga, kvikmyndalistar og myndlistar. í sýningum hans eru hug-
myndir um manninn, samfélagið, listina og leikhúsformið sjálft í stöðugri
gerjun. Hann hefur bæði unnið í leikhúsi og við kvikmyndir; nýjasta myndin
hans er Freakstars 3000 frá 2004 sem olli talsverðu uppnámi. Spennandi.
Leitt er að segja frá því að á skrifandi stundu er ekki von á neinni frumsýn-
ingu í Borgarleikhúsinu það sem eftir er af leikárinu, að minnsta kosti ekki á
vegum Leikfélags Reykjavíkur. Veturinn fram að þessu hefur verið því erfiður,
engin sýning hefur virkilega laðað að fólk, ekki einu sinni Salka sem þó átti
skilið að fá aðsókn, kannski umfram aðrar sýningar í húsinu. Spurningin sem
leikhússtjóri og aðrir ráðamenn þurfa að ræða er hvort þetta er einber ógæfa
eða heimatilbúinn vandi. Margsannað er að ekki þarf stórkostlega hluti til að
heilla áhorfendur, en það þarf allt að smella. Texti og efni þarf að passa við þá
sem með það fara, töfraorðið „casting" eða val leikara í hlutverk er ekki alveg
út í bláinn.
Tónlist
Listahátíð í Reykjavík 2006 verður haldin dagana 12. maí til 2. júní og verður
að þessu sinni helguð tónlist þótt margt verði líka á boðstólum í leiklist og
dansi. Hátíðin er sú tuttugasta í röðinni frá stofnun Listahátíðar árið 1970.
Mesta athygli vekur eflaust flutningur óperunnar Le Pays eftir franska tón-
skáldið Joseph-Guy Ropartz. Óperuna samdi hann á fyrsta áratug 20. aldar
eftir smásögunni „L’Islandaise“ (íslenska stúlkan) eftir rithöfundinn Le Gof-
fic. Le Pays var frumflutt í Borgarleikhúsinu í Nancy árið 1912 undir stjórn
82
TMM 2006 • 1