Heimsmynd - 01.10.1987, Page 6

Heimsmynd - 01.10.1987, Page 6
ÚTGEFANDI Ófeigur hf. Aðalstræti 4, 101 Reykjavík SÍMI 62 20 20 og 62 20 21 AUGLÝSINGASÍMI 1 73 66 RITSTJÓRI Herdís Þorgeirsdóttir STJÓRNARFORMAÐUR Kristinn Björnsson FRAMKVÆMDASTJÓRI Ragnhildur Erla Bjarnadóttir AUGLÝSINGASTJÓRI Edda Sigurðardóttir ÚTLIT Jón Óskar Hafsteinsson AÐSTOÐ A RITSTJÓRN Anna Ólafsdóttir Björnsson Árni Snævarr Nanna Þórarinsdóttir FORSÍÐUMYND Rut Hallgrímsdóttir LJÓSMYNDARAR Bragi Þ. Jósefsson Friðþjófur Helgason Rut Hallgrímsdóttir UMBROT, LITGREINING OG PRENTUN Oddi hf. ÚTGÁFUSTJÓRN Herdís Þorgeirsdóttir Kristinn Björnsson Helgi Skúli Kjartansson Sigurður Gísli Þálmason Jóhann Páll Valdimarsson Ólafur Harðarson HEIMSMYND kemur út sjö sinnum árið 1987. Verð þessa eintaks í lausasölu er kr. 297. Sé áskrift HEIMSMYNDAR GREIDD með EUROCARD er veittur rúmlega 40% afsláttur af útsöluverði en annars 20%. ÍSLENSKIR karlmenn og hugsan/eg kreppa eru meðal ann- ars til umfjöllunar íþessu tölublaði HEIMSMYNDAR. Sumir kunna að spyrja hvortþað sé samband þar á milli. Það kann að vera, þótt greinum um þessi mál sé haldið aðskildum. „Það er yfir höfuð gott að vera karlmaður í þessu þjóðfélagi því það er til fyrir karlmenn, “ segir einn ráðamanna þess, Jón Sigurðsson ráðherra. Flosi Ólafsson rithöfundur bœtir um betur og segir: „íslenskir karlmenn eru upp til hópa plebbar. “ Davíð Scheving Thorsteinsson segir skýrslu Iðntæknistofnunar um framleiðni í atvinnulífinu vísbendingu þess að dyggð og agi séu ekki til staðar íafstöðu manna til vinnu sinnar. Sigfús Erlingsson framkvœmdastjóri Flugleiða segir íslenska karlmenn skorpu- menn í vinnu en lata þess á milli. Árni Bergmann ritstjóri segir karla þurfa að láta af þeirri frekju sem einkenni þá. “ Stundum er sagt að konur séu konum verstar en íslenskir karl- ar bera hver öðrum ekki vel söguna þó það sé ekki sagan öll. Með tilliti til þess að karlar ráða lögum og lofum í landinu er fróðlegt að gera úttekt á þessum hluta þjóðarinnar þótt yfir- borðslegsé. Við könnum afstöðu þeirra til karlrembu, siðfágun- ar og kurteisi, vinnu og aga, kvenna, rómantíkur og hjóna- bands, uppeldis og félagsmótunar. Það sem vakti athygli okkar við gerð þessarar greinar, þar sem rœtt var viðfjöldann allan af karlmönnum, konur reyndar líka, erhversu gagnrýnir þeir eru á sjálfa sig og það þjóðfélag sem þeir hafa verið í forsvari fyrir. Slík gagnrýni er auðvitað afhinu góða sem og öll endurskoð- un, svo langt sem hún nœr, því menn virðast alltaf vera að gera sömu mistökin eins og það liggi í hlutarins eðli. Slíkt segja þeir sem spá yfirvofandi heimskreppu innan fárra ára. Hér í blaðinu erfjallað um kenningar hagfrœðingsins Ravi Batra en bók hans, Kreppan mikla —1990, er orðin metsölubók í Bandaríkjunum. Batra sem áður var lítt þekktur hagfrœðipró- fessor spáir mikilli kreppu, jafnvel mun þyngri en í upphafi fjórða áratugar og muni þessi kreppa vara fram til ársins 1996. Segir hann að ýmsar tilhneigingar í samtímanum séu þær sömu og vorufyrir síðustu kreppu. Batra er ekki einn um þessa skoð- un þótt hann sé í hópi þeirra svartsýnustu. Hinn virti hagfræð- ingur, John Kenneth Galbraith, hefur einnig settfram hugleið- ingar um að svipað ástand ríki nú ogfyrir heimskreppuna 1929. Helstu einkennin eru; samsöfnun auðs á fárra hendur þar sem stór millistétt reiðir sig æ meir á bankalán til framfærslu; yfir- tökufaraldur stórfyrirtækja á þeim smærri, spákaupmennska á verðbréfamarkaði og skattalækkanir sem hafi viðhaldið óeðli- legri hækkun hlutabréfaverðs. Þessar hugleiðingar eru athyglisverðar fyrir íbúa lands sem reiða sig á erlent lánsfjármagn og markaði fyrir útflutningsaf- urðir, því efafkreppu verður lokast hvoru tveggja fyrir fslend- ingum. Þrátt fyrir allar hrakspár um kreppur og íslenska karlþjóð, jafnvel skjalfesta almenna leti þjóðarinnar, þá hefur bjartsýnin fleytt henni feykilangt frá því að hún nam hér land. En afkom- endur hinna karlmannlegu víkinga létu sig þó hafa það að búa við niðurlægingu og neyð öldum saman án þess að að spyrna við fótum. Og við vonum að sú saga endurtaki sig ekki — þótt mög- ur ár kunni að vera framundan. JÍ .......—........... M
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.