Heimsmynd - 01.10.1987, Page 16
Dallas-stíll bresku
konungsfj ölskyldunnar !
Díana prinsessa af
Wales: Eru hinar
konunglegu skyldur að
buga hana? Þegar Karl
Bretaprins gekk að
eiga hana tvítuga að
aldri fagnaði fjölskyldan
því mjög að verðandi
drottning breska
samveldisins væri ung,
saklaus og
auðmótanleg. Það
hvarflaði hins vegar
ekki að þeim að hún
kynni að gera uppreisn
gegn þeim skyldum
sem henni eru lagðar á
herðar.
nn á milli frétta af ástandinu við Persaflóa, vandræðum
Reagans forseta og breskum efnahagsmálum hafa dag-
blöð og tímarit undanfarna mánuði gert sér dælt við tvo
aðila bresku konungsfjölskyldunnar, Díönu prinsessu
og mágkonu hennar Fergie, og hefur breska konungs-
fjölskyldan sjaldan verið eins undir smásjá pressunnar
og nú. Síðdegisblöðin bresku hafa velt sér upp úr hjóna-
bandi Díönu prinsessu af Wales og krónsprinsins Karls
en sá orðrómur komst á kreik að þar væri ekki allt með
felldu. Á meginlandinu hafa tímarit tekið upp þráðinn
þar á eftir sem og hinum megin Atlantsálanna. Banda-
ríska tímaritið Time gerði Díönu og hjónaband hennar
að umfjöllunarefni undir því yfirskyni að breska press-
an gengi stundum of langt í slíkum fréttaflutningi. Önn-
ur blöð hafa gengið hispurslaust til verks og fjallað um
ástandið í fjölskyldunni frægu, samband fjölskyldu-
meðlima, sorgir þeirra, afbrýði og öfund þannig að
Dallas og Dynasty sjónvarpsstöðva Vesturlanda verða
sápukúlur í samanburði. Enn aðrir hafa vakið athygli á
því að hressilegar uppákomur þeirra Fergie og Di séu
hin besta landkynning fyrir Breta. Þær
hafa vakið athygli á breskri fatahönnun
með klæðaburði sínum sem átti þó nokk-
uð undir högg að sækja í tískuheiminum,
en viðtöl við fatahönnuði þeirra sem hár-
greiðslumeistara út af fyrir sig flokkast
undir sjálfstætt blaðaefni nú. Þær stöllur
hafa tekið við af Jackie Kennedy Onassis
og prinsessunum af Mónakó sem vinsæl-
ustu yfirstéttarstjörnur heimspressunnar.
Samband Breta við konungsfjölskyldu
sfna hefur löngum verið málum blandið.
Þar skiptast á skin og skúrir, drottningin
er sameiningartákn þeirra en hinar ungu
tengdadætur sem eru meira í sviðsljósinu
en aðrir meðlimir fjölskyldunnar gætu
þess vegna flokkast undir markaðsvarn-
ing. Þegar Andrew prins gekk að eiga
Söru Ferguson var samdóma álit press-
unnar að hún væri hinn besti kvenkostur,
hress og lífleg, án þess að hún skyggði á
prinsessuna af Wales. Hvort sem þeim lík-
ar betur eða verr eru þær stöðugt bornar
saman þótt væntingarnar sem gerðar eru
til þeirra séu ólíkar. Díana prinsessa af
Wales var kornung þegar hún giftist Karli
og hlutverk hennar sem verðandi drottn-
ing breska heimsveldisins leggur henni