Heimsmynd - 01.10.1987, Page 19

Heimsmynd - 01.10.1987, Page 19
breska samveldisins. Sagt er að skyldurn- ar hvíli þungt á Karli krónprinsi sem nú er að nálgast fertugt. Hann þykir viðkvæmur maður, nokkuð sérsinna og hefur orðið innhverfari með aldrinum. Sem konungur þarf hann á staðfastri eiginkonu að halda en ekki vansælli eins og margir lýsa hlut- skipti Díönu. Mikið hefur verið um það slúðrað að Díana sé óhamingjusöm, bæði í hjóna- bandi og ok skyldunnar sé henni þungt. Fergie virðist hins vegar koma til dyranna eins og hún er klædd, glaðværðin og ánægjan uppmáluð. Heimildarmenn segja Fergie falla vel inn í fjölskyldurammann í Buckinghamhöll þar sem hún uni hag sín- um vel. Díana virðist hins vegar kunna best við sig utan konungsfjölskyldunnar. Gleðistundir hennar eru með poppstjörn- um og fjölmiðlafólki sem þykir ekki góð vísbending fyrir verðandi drottningu. Ymsir segja að með þessum félagsskap sé Díana á óbeinan hátt að spyrna gegn þeim þrýstingi sem hún er beitt. Þá segja heim- ildir að linnulaus fatakaup Díönu og sjálf- hverfur áhugi hennar á eigin útlit fari fyrir brjóstið á hinum konunglegu fjölskyldu- meðlimum. Sara með rauða taglið sitt og hispurslausa framkomu er þeim meira að skapi. Siðastliðið sumar vöktu þær stöllur Fergie og Di almenna athygli fyrir léttúð- uga framkomu á Ascotveðreiðum, þar sem þær potuðu regnhlífum í virðúlega afturenda breskra aristókrata og Di gerði sig seka um að blístra á eftir hertogaynj- unni af Kent. Auk þess sem hún á að hafa sagt: Æ, dettum íþað, við Fergie. Myndir af flissandi andlitum þeirra og stríðnisleg- um augngotum prýddu forsíður síðdegis- blaðanna í Bretlandi. Þær hafa þekkst lengi og voru vinkonur áður en Fergie giftist Andrew. Skuggi hefur nú fallið á þá vináttu sökum vinsælda Fergie innan fjöl- skyldunnar. Náinn heimildarmaður spáir aukinni samkeppni milli þeirra tveggja. Á mörgum sviðum þýðir lítt fyrir Díönu að keppa við Fergie. Sú síðarnefnda er mikill íþróttaunnandi sem er vel metinn eiginleiki í Buckinghamhöll. Hún er góð skíðakona, synd sem selur og góður tenn- isleikari. Síðast en ekki síst er Fergie al- vön útreiðum frá blautu barnsbeini. Díönu hundleiðist hestamennska. Fergie fer hins vegar í útreiðartúra með drottn- ingunni. Hvorug þeirra hefur langa skólagöngu að baki né þykja ýkja andlega sinnaðar. Sara hefur hins vegar með ýmsum tilburð- um sínum vakið aðdáun fjölskyldunnar. Þegar hún lærði nýlega að fljúga fékk hún meira hrós frá tengdaforeldrum sínum, drottningunni og Filippusi, en hefði hún lokið prófi frá Oxford. Anna prinsessa hefur frá upphafi verið fáorð um mág- konu sínu Díönu en Fergie hrósar hún og segir hana, mjög, mjög elskulega stúlku. „Það var mamma sem upphaflega hafði augastað á Fergie fyrir mig,“ sagði And- rew prins fyrir giftinguna. Fergie er í upp- áhaldi hjá drottningunni og það segja heimildir að sé megin ástæðan fyrir því að skugga hafi borið á vináttu þeirra Di. Það er flestum ljóst að það er Fergie sem drottningin kallar á og biður að setjast við hliðina á sér í bílferðum, hestvögnum, kirkjunni og í óformlegum kvöldverðar- boðum. Það hefur heldur ekki farið fram hjá fólki að Fergie er hæstánægð með hlut- skipti sitt sem meðlimur bresku konungs- fjölskyldunnar á sama hátt og Díana prinsessa virðist hundleið á því. Ástæð- una segja heimildarmenn ekki vera þá að svo stutt sé síðan að Fergie gekk að eiga Andrew prins heldur ráði bakgrunnur ungu kvennanna þarna nokkru um. Díana Spencer er alin upp innan um háaðalinn á þekktu sveitasetri undir handleiðslu einkakennara og umkringd þjónum frá blautu barnsbeini. Sara Ferguson ólst upp í jaðri þessa aðals, fjölskylda hennar var í þjónustu konungsfjölskyldunnar en ekki hluti af breska háaðlinum. Hún ólst upp í venjulegu húsi eins og aðrar fjölskyldur í óbeinum tengslum við breska kóngafólk- ið. Þessi ólíki uppruni þeirra Fergie og Di kemur fram í hegðun þeirra. Fergie er feimin við að nota einkasundlaug drottn- ingarinnar þótt henni standi það til boða. Þá hringir hún alltaf á undan sér áður en hún heimsækir drottninguna. Samband Fergie við tengdamóður sína hefur orðið stöðugt nánara á því rúma ári sem hún hefur verið gift Andrew. Hann er að heiman við störf sín í sjóhernum fimm daga vikunnar og þá dvelst hún í íbúð þeirra í Buckinghamhöll. Þar er einnig lít- il skrifstofa þar sem hún sinnir starfi sínu fyrir útgáfufyrirtæki með höfuðstöðvar í Sviss. Eigi drottningin lausa kvöldstund býður hún Söru iðulega í einkakvöldverð. Það eru fáir sem njóta þess heiðurs að fá að þræða langan gang með rauðum dregli að einkahýbýlum drottningarinnar í höll- inni. Hingað til hefur Karli prins aðallega verið boðið í einkakvöldverði drottningar og tilefnið þá sagt vera ríkismálefni, til að tryggja að hann kæmi einn. Þetta segja heimildir bestu sönnun þess að drottning- in telji sig eiga fá sameiginleg áhugasvið með tengdadóttur sinni Díönu. „Drottningin er mikill vinnuþjarkur. Hún sinnir verkefnum sínum skipulega og þegar vinnudeginum lýkur vill hún geta slappað af í þægilegum félagsskap. Návist Söru minnir hana á yngri útgáfu af móður hennar. Henni finnst Sara hlý og indæl,“ segir náinn vinur fjölskyldunnar. Sara er ekki þögul að eðlisfari og af vinum sögð geta talað í síma tímunum saman. Áhuga- mál drottningar og Fergie eru svipuð. Hestar, póló, fjölskyldan, sjóherinn og bækur um antíkmuni eru háttskrifuð. Margir hafa tekið eftir því í fari drottning- ar upp á síðkastið að hún á til að segja: Ungvinkonamínsegirmér. . . Niðurstað- an er að hin unga vinkona sé Sara. Þá hefur Fergie unnið hug og hjarta Fil- ippusar prins en hann er góður vinur föð- ur hennar. Sagt er að Filippus kunni vel að meta þá kímnigáfu sem Fergie hefur erft frá föður sínum. Þegar Ronald Ferguson fylgdi dóttur sinni í hestvagni til brúð- kaups hennar í Westminster Abbey sagði hann: „Að hugsa sér að allur þessi mann- fjöldi sé kominn til að fylgjast með litlu, fúlu stelpunni minni.“ Sagt er að svokallaður klósetthúmor eigi mjög upp á pallborðið hjá bresku kóngafjölskyldunni og hefur Fergie tekið virkan þátt í að segja slíka brandara eftir kvöldverðinn. Sjálf veltist hún um af hlátri þegar Filippus tekur í sama streng. Hveitibrauðsdaga Fergie og Andrew ber upp á sama tíma og svonefnd sjö ára þreyta virðist komin í hjónaband Díönu og Karls. Ýmislegt í fari prinsessunar af Wales bendir til þess að hún sé að fjarlægj- ast kóngafjölskylduna. Hún dvelst ekki lengur á sveitasetrinu í Balmoral í Skot- landi þegar fjölskyldan er þar í sumarleyfi heldur í öðrum húsakynnum með syni sína tvo og Dire Straits hljómplötur. Á fyrstu árum hjónabandsins dró Karl prins úr veiðiferðum til að eyða meiri tíma með fjölskyldu sinni á meðan sumarleyfum þeirra stóð. Hann hefur hins vegar tekið upp fyrri háttu auk þess sem hann eyðir fellur vel inn í fjölskyldurammann í Buckinghamhöll þar sem hún unir hag sínum vel. Drottningin hefur tekið ástfóstri við þessa tengdadóttur sína og snæðir iðulega með henni kvöldverð þar sem þær ræða sameiginleg áhugamál sín. mörgum stundum einn með foreldrum og systkinum á Balmoral. Það er tólf ára aldursmunur á Díönu og Karli sem ýtir enn undir þau ólíku viðhorf sem þau hafa til lífs og tilveru. Sagt er að fjölskyldan hafi áhyggjur af hjónabandi þeirra og tali um sambandsleysið þeirra á milli. Ágreiningur þeirra á milli hefur orð- ið áberandi þegar þau hafa farið í leyfi með Söru og Andrew, sem bæði eru 27 ára. Þegar þau voru í Sviss síðasta vetur sleppti Di fram af sér beislinu, smituð af kátínu Fergie. Hún dulbjó sig sem lög- HEIMSMYND 19
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.