Heimsmynd - 01.10.1987, Síða 32
bandsmaður, jafnframt því sem aðrir sam-
vinnumenn fagna þessu tákni nýs tíma.
Hins vegar er það oftúlkun að ætla að
ráðning Guðjóns í forstjórastól brjóti blað
í sögu fyrirtækisins. Ráðning hans er
fremur framhald á þeirri þróun sem átti
sér stað á síðustu árum Erlends Einars-
sonar fyrrverandi forstjóra SÍS.
Guðjón B. Ólafsson hefur marglýst því
yfir að leggja eigi niður óarðbærar eining-
ar. Á síðasta aðalfundi SÍS sagði hann:
„Óhjákvæmilegt er að sífelld endurskoð-
un á öllum rekstri eigi sér stað og þær ein-
ingar sem ekki skila tilætluðum árangri
verði sameinaðar öðrum, seldar eða lagð-
ar niður.“
Pví var Kaupfélag Svalsbarðseyrar sett
á hausinn og fleiri fyrirtæki eiga eftir að
fylgja í kjölfarið. Á síðasta ári var Sam-
bandið rekið með 40 milljón króna halla,
eftir að hafa afskrifað rúmlega 150 milljón
króna skuldir fyrirtækja þess. Þar af voru
44 milljónir króna skuldir Sambandsfyrir-
tækja sem tekin höfðu verið til gjaldþrota-
skipta eða fengið greiðslustöðvun á árinu.
Fyrir nokkrum árum hvarflaði það ekki
að nokkrum manni að kaupfélög eða önn-
ur Sambandsfyrirtæki yrðu lögð niður,
hvað þá send miskunnarlaust í gjaldþrota-
skipti.
Það hefði einnig verið nær óhugsandi
fyrir nokkrum árum að rætt hefði verið
um það af fullri alvöru að sameina Iðnað-
ardeildir Sambandsins og Álafoss. í þeim
samningaviðræðum sem hafa staðið síðan
í byrjun árs hefur verið gengið út frá jafnri
eignaraðild Sambandsins og Fram-
kvœmdasjóðs íslands, sem á Álafoss.
Markmið Sambandsins í þessum viðræð-
um eru því ekki að sölsa undir sig sam-
keppnisaðilann heldur að tryggja þá fjár-
muni sem það hefur lagt í ullariðnaðinn.
Þegar þessar breytingar eru hafðar í
huga má sjá, að innan Sambandsins hafa
viðskiptaleg sjónarmið unnið á, kannski á
kostnað þeirra sjónarmiða sem kölluð
hafa verið félagsleg. Á Sölvhólsgötunni
heyrist jafnvel sú skoðun að hörð viðskipti
séu mannúðleg. Því kemur ekki á óvart að
Sambandið stefni að því að tryggja stöðu
sína á fjármagnsmarkaðinum, á sama
tíma og samdráttur á sér stað á hefð-
bundnum starfsvettvangi þess. Þáttur
þjónustu í veltu þjóðfélagsins hefur sífellt
vaxið. Það er því eðlilegt að Sambandið
sem stór fyrirtækjakeðja auki ítök sín á því
sviði, hafi allar klær úti og læsi þeim þar
sem mestir vaxtarmöguleikar eru.
í þessu liggur líka ógn Sambandsins.
Velta þess er svipuð og íslenska ríkisins og
það ásamt samstarfsfyrirtækjum er stærra
en átta stærstu fyrirtæki landsins til sam-
ans. Það er því eðlilegt að hinu svokallaða
einkaframtaki brygði í brún þegar Sam-
bandið renndi sér fótskriðu og ætlaði að
hrifsa af því Útvegsbankann, sem var búið
að lofa einkageiranum, sem hins vegar
beið eftir því að ríkið lækkaði verðið enn.
Sú þróun sem hefur átt sér stað innan
Sambandsins er ekkert einsdæmi eins og
sést best á þeim aðilum sem buðu ofan í
tilboð Sambandsins um daginn. Eimskip
hefur til dæmis áttað sig á því að vaxtar-
möguleikar þess á sjó eru mettir og hefur
því undanfarin misseri komið sér fyrir á
öðrum sviðum. Eimskip hefur aukið hlut
sinn í Fjárfestingarfélaginu og í gegnum
starfsemi þess tryggt sér stöðu á fjár-
magnsmarkaðinum. Það má búast við þvi
að á næstu árum muni enn fleiri aðilar
taka sér bólfestu á þessu sviði. Skeljungur
var meðal þeirra fyrirtækja sem gerðu til-
boð í Útvegsbankann. Ef góðærið í flug-
inu heldur áfram er ekki ólíklegt að Flug-
leiðir fari að líta í kringum sig. Þá geta ís-
lenskir aðalverktakar ekki reiknað með
því að halda einokun sinni á Keflavíkur-
flugvelli til eilífðarnóns.
Þegar á heildina er litið kom það
kannski mest á óvart við tilboð Sam-
bandsins í Útvegsbankann að fyrirtækið
skuli sigla með straumnum. Ymsir höfðu
átt von á öðru úr Framsóknarfjósinu.
Lyktin úr því fjósi hefur lengi loðað við
Sambandið þrátt fyrir tilhneigingar til að
breyta ímyndinni á undanförnum árum.
Fjósalyktin er þó enn viðloðandi eins og
þegar Steingrímur Hermannsson líkti til-
boði Sambandsins í Útvegsbankann við
kaup á lambalæri. Valur Arnþórsson,
stjórnarformaður Sambandsins, gekk
lengra í þessu samhengi þegar hann líkti
bankanum við baunadós. Og þá sjálfsagt
Coop en ekki Ora. . .
32 HEIMSMYND