Heimsmynd - 01.10.1987, Side 39
„Pað er erfitt að fá
menn hér til að
vinna affullri
einlœgni. “
- SIGFÚS ERLINGSSON
mikillar aðdáunar og
virðingar upp úr
síðustu aldamótum
og Hannes Hafstein
fyrsti ráðherra
landsins. „Öll ásýncL
hans og framganga
var heillandi, bar
með sér göfugan og
stórbrotinn mann, höfðingja og skáld;
stillta og virðulega karlmennsku, samfara
heitri og nœmri lund; ástúðlegt glaðlyndi
og þunga alvöru; Ijúfmennsku,
nœrgœtni, kurteisi en undir niðri mikla
og viðkvcema skapsmuni, sem leyndust
bak við fyrirmannlegt ógeð á taumleysi
og ofsa,“ er lýsing Kristjáns
Albertssonar á Hannesi Hafstein.
Þarna er siðfágun í hnotskurn, sú
siðfágun sem þótti einkenni höfðingja
meðan þeir voru og hétu. Örar
þjóðfélagsbreytingar á íslandi 20. aldar
frá tímum sjálfstæðisbaráttu til
stéttabaráttu, frá sveitamenningu til
iðnvæðingar, þróun borgarsamfélags,
hröð uppbygging nútímaþjóðfélags
nýríkra íslendinga, áhrif hersetu,
sósíalisma og kvenréttindabaráttu hafa
gert það að verkum að viðhorf fólks er
mjög breytt. Gömlum gildum um
fyrirmennsku eða höfðingslund hefur
verið kastað fyrir róða. Siðfágun hins
íslenska nútímamanns, alla vega af yngri
kynslóðinni, byggir fremur á
langskólagöngu, viðskiptaviti eða
hreinni efnishyggju þar sem menn reyna
að kaupa sér kúltúr, eins og það er
stundum orðað.
Togstreita hefur skapast á milli
dreifbýlis og þéttbýlis, sveitadurga og
nýríkra, langskólagenginna og þeirra
rómuð enda bendir
margt til þess að
aðrar væntingar hafi
verið gerðar til
fyrirmanna í því
þjóðfélagi, hvort sem
um var að ræða
höfðingja í sveitum
eða háttsetta
embættismenn. Fáir
menn nutu eins
Bubbi Morthens er
kyntákn yngri kynslóðar-
innar, alla vega stórs
hluta hennar. Hann er
einnig tákn uppreisnar-
gjarnrar æsku, utan-
garðsmanna og þraut-
seigju, þótt hann segist
sjálfur vera feiminn gagn-
vart konum.
„Það er vegna jafnrétt-
isumræðunnar að karl-
menn hafa tekið sig á.
Karlmenn eru farnir að
pæla í sjálfum sér og sýna
tilfinningar sínar, þótt
þeir séu enn mjög bækl-
aðir á því sviði.“
„Mér finnst konur mun
meiri furðuverk en karlar
og líkamar þeirra eru full-
komnari. Konur njóta
þeirra forréttinda að geta
alið af sér nýtt líf. Þær
hafa sterkari ábyrgðartil-
finningu gagnvart lífinu
almennt."
„Þetta þjóðfélag er fyrir
spútnikk-fólk á aldrinum
tuttugu til fjörutíu ára. Því
mlður.“
„Karlmennska er ao
viðurkenna veikleika sinn
og sigra hann um leiði"
HEIMSMYND 39