Heimsmynd - 01.10.1987, Side 60

Heimsmynd - 01.10.1987, Side 60
RUT HALLGRlMSDÓTTIR Anna Geirsdóttir: Mér finnst gaman að fá vini mína í heimsókn og fara til þeirra. Skemmtistaðir borgarinnar geta orðið þreyt- andi. / E hafna ekki hugmyndinni um sambúð, ég veit bara að ég myndi ekki vilja neitt nema pað besta. Það þyrfti að vera riddari á hvítum hesti til að ég gerði mig ánœgða með hann. ar. Ég hef að vísu ekki heyrt þetta sagt um mig, en ekki yrði ég hissa.“ Elín og Sigríður eru því sammála að þær hafi ekki endilega ákveðið að búa ein- ar heldur hafi það verið „víxlverkandi ástæður“ eins og Elín orðar það, þar sem ekki sé gott að dæma um hvað leiðir af öðru. Pær eru líka sammála um að þær myndu gera miklar kröfur um samstill- ingu ef þær færu að búa með öðrum. Slæm sambúð sé verri en engin sambúð. „Ég gæti ekki hugsað mér heimili þar sem er rifist eða þumbast" segir Elín en bendir þó á að félagsskapurinn geti orðið fólki meira virði seinna, þegar ellin gerir vart við sig og fólk hættir að geta sótt sér félagsskap. Anna er sammála því. „Ég held það sé hræðilega leiðinlegt að vera einn og gam- all.“ „Veistu," segir Sigríður „að maðurinn minn var skemmtilegasti maður sem ég hef kynnst og jafnframt besti vinur minn. Hann var svo skemmtilegur að ég ætlaði aldrei að tíma að skilja við hann. Ég var svo hrædd um að ég myndi missa af skemmtilegheitunum. Aðalágreinings- efnið í þessum skilnaði var hvort okkar fengi húshjálpina sem kom einu sinni í viku. Hann krafðist þess að fá hana en ég benti á að hún væri heimanmundurinn minn. Á endanum skiptum við henni á milli okkar. „ Nú er þessi góði vinur Sig- ríðar, Jón E. Ragnarsson, dáinn langt fyr- ir aldur fram. „Á meðan ég var gift þurfti ég oft á því að halda að fá að vera ein. Ég var svo stálheppin að hann var eins. Út frá líkindalögmálinu finnst mér mjög sennilegt að ég giftist aftur. Raun- verulega held ég að ekkert komi í staðinn fyrir gott hjónaband. Það að vera í hjóna- bandi er þó engin trygging fyrir ham- ingju." Er þörfin fyrir einveru kannski hluti af skýringunni á því að sumar konur eru ekk- ert að flýta sér í sambúð? „Ég var talsvert fyrir að vera ein strax sem barn. Þó er ég mikil selskapsrófa," segir Sigríður. Og Anna rifjar það upp að hún hafi alltaf haft þörf fyrir að geta verið ein, þótt hún sé annars mikil félagsvera. „Mér finnst gott að búa ein,“ segir Elín. „Það getur komið til vegna starfs mín því ég hitti alltaf nóg af fólki. Þar af leiðandi þykir mér ákaflega gott að koma heim og loka hurð.“ Næst- um sömu orð og Sigríður hefur um heimili sitt. í stjörnukortinu hennar segir reynd- ar: „Heimilið fyrir þig er staður til að loka á umhverfið og vera ein út af fyrir þig.“ Hún skellihlær og kannast við að þetta sé nokkuð nærri lagi. Ég get ekki stillt mig um að spyrja Önnu hvort henni þyki ef til vill stundum gott að koma heim og loka hurðinni á eftir sér. „Ohhh. . . ,jááá,“ segir hún af svo miklum sannfæringar- krafti að ekki þarf frekar vitnanna við. Hvað er það við einveruna sem heillar svona? Hvíld frá umhverfinu? Kannski. Allar vinna þessar konur erilsöm störf, eiga marga vini og hitta margt fólk og margvíslegt. Þær eru sammála um að þeim leiðist aldrei. „Ég á alltaf fleiri bæk- ur og blöð heima en ég kemst yfir að lesa,“ segirElín. „Ámörg áhugamál og tímafrek og alltaf þegar ég losa mig úr einhverju fé- lagsstarfi bætist annað á mig. Ég hef í mörg ár reynt að standa á bremsunum í fé- lagsstarfi, en allt kemur fyrir ekki. Mér finnst gaman að því sem ég er að gera og vil gjarnan leggja góðum málum lið. Veistu, ég hef aldrei heillast af spila- mennsku. Ég hef engan tíma að drepa.“ „Mín áhugamál eru svo margvísleg," segir Sigríður, „að það er aldrei tími til að láta sér leiðast. Sá sem getur lesið þarf aldrei að láta sér leiðast. Eg á marga góða vini í bókum. Bækur sem mig langar til að lesa skipta hundruðum. Ferðalög innan- lands eru líka heillandi. Það eru margir staðir sem ég hef ekki séð enn hér heima. Svo hitti ég vini og kunningja og á með þeim skemmtilegar stundir." Anna kannast líka við tímaleysið og hjá henni bætast aðrar ástæður við. „Ég þreytist fljótt í hjólastólnum og þarf mikla hvíld. Vinir mínir stríða mér á öllum þess- um svefni. En ég finn oft fyrir því að ég á alltaf að vera tilbúin að fara út þegar vin- ina langar, kannski af því ég er ein og ræð mínum tíma meir en margir aðrir.“ Einmanaleikinn er til þótt hann sæki lítið á þessar þrjár konur. Þær benda allar á að fólk geti verið alveg eins einmana í sambúð við aðra, jafnvel í besta félags- 60 HEIMSMYND
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.