Heimsmynd - 01.10.1987, Side 85

Heimsmynd - 01.10.1987, Side 85
TRUBADUR! beraði samkynhneigð mína. Ég gat ekki gengið óáreittur úti á götu.“ Þetta var fyrir meira en áratug og marg- ir eru sammála um það nú að miklar breytingar hafi orðið á almennum við- horfum fólks síðan þá. Tónlistarmaðurinn Hörður Torfason segist ekki hafa látið erfiðleikana kafsigla sig, þá erfiðleika sem fylgdu í kjölfar opinberunar hans á sam- kynhneigð sinni. Nýja platan hans sem hann kallar Hugflœði ber vott um bjart- sýni eða eins og hann orðar það sjálfur; „boðskapurinn er birta, gleði og ást.“ A plötunni eru tólf lög og textar eftir hann sjálfan. „Ég er ekki að fást við það sem ég kalla keypta gleði, heldur gleðina sem fólgin er í því að vera til. Þessa rólegu gleði. Þetta eru róleg lög en ég legg mikið upp úr text- um og kímni. Að eðlisfari er ég sjálfur ró- legur og jákvæður. Þótt ég líti alls ekki á mig sem prédikara er ég samt að reyna að túlka lífsviðhorf mitt á þessari plötu. Mér finnst svo gott að vera til og finn svo sterkt fyrir tilverunni. Kannski væri ég ekki eins sáttur við sjálfan mig ef ég hefði ekki þessa reynslu að baki. Líf mitt hefur verið sveiflukennt þótt það sé orðið stöðugra nú. Ég á af þeim sökum auðvelt með að setja mig inn í ýmiskonar tilfinninga- ástand sem er undirstaða þess að vera trúbadúr. Ég velti öðru fólki mikið fyrir mér, hlusta vel á það og pæli í skoðunum þess. Manneskjurnar eru yfirleitt að reyna að skapa sér ákveðna ímynd en eru þrátt fyrir allt svo ótrúlega líkar. Alheimshjart- að slær nefnilega í okkur öllum. Og það dreymir alla um jafnvægi í tilverunni, and- legt jafnvægi. En slíkt jafnvægi næst ekki áreynslulaust. Línudansarinn virðist til dæmis mjög öruggur þegar hann fetar sig eftir línunni en jafnvægið sem hann hefur náð er árangur mikillar vinnu og erfiðis. Hann hefur æft sig í mörg ár, oft hrasað en alltaf staðið upp aftur. Það þýðir ekkert að gefast upp þótt maður hrasi.“ Hörður hóf gerð plötu sinnar í ársbyrj- un og lauk við hljóðblöndunina í ágúst. Hann spilar á gítar en notar auk þess fleiri hljóðfæri. Hann vinnur með dönskum upptökumanni Peter Juul, sem hann kynntist þegar hann var að vinna að gerð plötunnar Tabú árið 1983. „Peter Juul er einn fremsti hljóðupptökumaður Dana á sviði sígildrar tónlistar. Hann heillaðist af því sem ég var að gera og upp frá því hófst samstarf okkar. Þessi maður hefur reynst mér stórkostlega og hann hefur líka tekið mig algerlega í gegn. Hann hefur leiðbeint mér við að nota rödd mína og gítarinn bet- ur. Hann er fyrsti alvöru gagnrýnandinn minn, en ég hafði aldrei kynnst slíkri gagnrýni hér heima. Það er nauðsynlegt að fá gagnrýni, bæði tæknilega og hvað varðar innihald þess sem maður er að gera. Það er ekkert grín að kosta milljón krónum í gerð einnar hljómplötu." Þegar Hörður kom fram opinberlega árið 1974 og sagði frá gagnkynhneigð sinni var hann þegar orðinn þekktur sem tón- listarmaður. Hann hafði fram að þeim tíma notið vinsælda og verið eftirsóttur. Upp frá þessu beið hans hins vegar at- vinnuleysi og fæstir vildu hafa nokkuð saman við hann að sælda, eins og hann lýs- ir því. Síðan hefur hann búið og starfað í Danmörku. „Fólki brá hér heima þegar ég sagði frá því að ég væri hommi. Menn urðu óöruggir gagnvart mér. Mér hafði verið kennt að vera trúr sjálfum mér og að ljúga ekki, svíkja né stela. Mér fannst það heiðarlegt af mér á sínum tíma að vera samkvæmur sjálfum mér þótt fólk hafi ekki kunnað að meta það. Ég hafði verið vinsæll sem listamaður en varð nú allt í einu ekkert annað en kynvera. Þetta þekkja konur. Ég sé ekki eftir þessari reynslu, sérstaklega ekki þegar ég lít nú til baka og sé þá viðhorfsbreytingu sem átt hefur sér stað. Ég var aðal driffjöðurin í stofnun Samtakanna 78 og er stoltur af því. Núorðið er ég ákaflega sáttur við sjálfan mig og mínar tilfinningar. Ég get ekki verið neitt annað en ég er.“ Nema bjartsýnn! HFIMSMYMn sc;
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.