Heimsmynd - 01.10.1987, Side 119

Heimsmynd - 01.10.1987, Side 119
VÍSINDI EFTIR ILLUGA JÖKULSSON LIF ER ÁÖÐRUM HNÖTTUM? Megum við kannski búast við heimsókn innan skamms? Pað er ósköp venjuleg nótt í stjörnuat- hugunarstöð sem staðsett er skýjum ofar á fjallstindi, til að mynda í Perú. Hópur vís- indamanna af ýmsum þjóðernum beinir risavöxnum útvarpssjónaukum sínum upp í himinhvolfið og athugar með þeim stjörnuþyrpingar, súpernóvur og vetrar- brautir í órafjarlægð. Það er nóg að gera eins og venjulega en ekki ýkja mikil spenna í lofti; þessir menn kunna sitt fag og ganga til starfa sinna án þess að gera veður út af smámunum; það þarf helst ekki minna en nýja súpernóvu til að þeir brýni raustina. Einn þeirra er þó svolítið argur. Það hefur komið í ljós ókennileg rák á mynd sem hann tók af ysta hluta sólkerfisins okkar og greinilegt að einhver rispa eða aðskotahlutur er á sjónaukan- um. Til að sannreyna það tekur hann aðra mynd af sama svæði og jú, rákin er enn á sínum stað. Eða hvað? Nei, við nánari at- hugun er hún alls ekki á sínum stað. Hún hefur færst töluvert til hliðar og brautin virðist óregluleg, rétt eins og hluturinn — því nú er ljóst að þarna er einhver hlutur á ferð — hafi breytt um stefnu af sjálfsdáð- um. Það er sem sé ekki um halastjörnu eða villuráfandi smástirni að ræða. Slíkir himinhnettir halda j afnan beinni braut, að minnsta kosti svona fjarri aðdráttarafli sólarinnar. Eftir frekari rannsóknir — sem vísindamaðurinn gerir skjálfandi höndum og sveittur í lófum — þarf ekki frekari vitnanna við. Þessi hlutur gengur fyrir eigin vélarafli, honum er stjórnað af einhvers konar viti bornum verum. Og hann stefnir beint til jarðar! Þetta hefur ekki gerst enn — svo menn viti til. (Þessi grein er sem sé ekki fyrir þá sem trúa því statt og stöðugt að fljúgandi furðuhlutir séu alls staðar á meðal vor og löngu komnir.) Sumir telja að þetta eigi aldrei eftir að gerast; geimurinn sé líflaus og kaldur utan jarðarinnar, sem er þá eins og hvert annað slys í alheiminum. En aðr- ir, og þeir eru fleiri, verða smátt og smátt HEIMSMYND 119
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.