Heimsmynd - 01.10.1987, Síða 120

Heimsmynd - 01.10.1987, Síða 120
Þ að var frá Mars sem þau komu skrímslin íþrífœtlingunum sem H. G. Wells sendi til jarðarinnar eins og frægt er orðið af skáldsögunni Innrásin frá Mars. æ trúaðri á að vissulega hljóti að vera líf annars staðar en hér og aðeins tímaspurs- mál hvenær radíóbylgjur af einhverju tagi færi okkur heim sanninn um það. Eða við fáum heimsókn. . . Það var snemma sem menn fóru að velta fyrir sér möguleikanum á lífi á öðr- um hnöttum, raunar undireins og menn höfðu öðlast lágmarksskilning á eðli heimsins, sólarinnar og reikistjarnanna. Lengi framan af einskorðuðust slíkar hug- leiðingar við hugsanlegt líf á tunglinu; meira að segja Voltaire skrifaði vísinda- fantasíu — eina þá fyrstu í heimi — þar sem menn fóru til tunglsins og hittu þar fyrir viti bornar verur sem auðvitað voru líka menn; enn sem komið var höfðu menn ekki hugmyndaflug til að ímynda sér líf í öðrum myndum en hér á jörð. En með tímanum áttuðu menn sig á því að tunglið var ekki beinlínis lífvænlegur stað- ur og því síður allt úr tómum osti; þá var sjónum beint ögn lengra og fyrst og fremst til Mars og Venusar. Rauða reikistjarnan, stríðsguðinn Mars, var vinsælli meðal vís- indaskáldsagnahöfunda enda þóttust virðulegir stjörnufræðingar greina þar umfangsmikið áveitukerfi og skurði sem lágu um plánetuna þvera og endilanga. Það var frá Mars sem þau komu skrímslin í þrífætlingunum sem H.G.Wells sendi til jarðarinnar eins og frægt er orðið af skáld- sögunni Innrásin frá Mars. En svo fór að meira að segja þessir nágrannar okkar dugðu geimlíffræðing- um ekki; rannsóknir leiddu í ljós að skurð- irnir á Mars voru tómur hugarburður, reikistjarnan væri að öllum líkindum líf- laus eyðimörk og að undir þrumuskýjum Venusar gæti sömuleiðis fráleitt leynst líf. Og hinar reikistjörnurnar í sólkerfi okkar voru útilokaðar ein af annarri; Merkúr er ekki annað en brunnin brauðsneið í rista- vél sólarinnar; Júpíter, Satúrnus, Úranus og Neptúnus eru gasrisar sem með engu móti geta fætt af sér líf eins og við þekkj- um það, og Plútó — ja, það er þá eins gott að þær séu ekki kulsæknar, verurnar sem hafast við úti í þeim hrollköldu óbyggðum sólkerfisins. Þá var ekki annað að gera en líta ennþá lengra: út í óravíddir vetrarbrautarinnar og jafnvel út í tómið sjálft og til annarra stjörnuþyrpinga. Nú má spyrja: til hvers að velta þessu fyrir sér? Lendir maður þá ekki fyrr en varir á kafi í Bermúdaþríhyrningnum, gufar upp með Flugsveit 19 eða tekur sér far með guðaskipum von Dánikens, van- sællar minningar? En nei, það þarf ekki að vera. Að minnsta kosti eru það ekki eintómir ruglukollar sem um þessar mundir velta fyrir sér möguleikanum á lífi á öðrum hnöttum; í þeim litskrúðuga hópi má líka finna allra hæfustu vísindamenn og sérfræðinga flestra þjóða, menn sem hafa annað og betra við tíma sinn og rán- dýra menntun að gera en eltast við óraun- hæfar, tilgangslausar grillur. Sannleikur- inn, hvort sem okkur lflcar betur eða verr, er einfaldlega sá að eftir því sem við öðl- umst betri skilning á tröllavíddum al- heimsins okkar — og þeir eru kannski fleiri! — þá aukast líkurnar á því að við munum fyrr eða síðar rekast á líf og jafn- vel viti bornar verur annars staðar en hér í skjóli þessarar hversdagslegu sólar. Og þá er eins gott að við séum undir það búin. . . Fyrr eða síðar; fyrr en síðar. Það er nú bráðum liðin heil öld síðan mannfólkið fór að útvarpa héðan radíóbylgjum af ýmsu tagi og hefur magn þeirra farið vax- andi með hverjum nýjum degi. Þó þessum bylgjum hafi upphaflega aðeins verið ætl- að að koma skilaboðum milli jarðarbúa dreifist hluti þeirra jafnan út í geiminn og æðir þar á því sem næst ljóshraða milli himintunglanna. Þær fyrstu eru nú komn- ar hátt í hundrað ljósár út í geim og allar verur með næma skynjara á þessu svæði ættu þess vegna að vera farnar að átta sig á því að eitthvað er á seyði á þriðju plánetu frá sólu í nauða ómerkilegu sólkerfi út á hjara vetrarbrautarinnar. Fimmtíu ár eru síðan fyrstu sjónvarpsmyndirnar vörpuð- ust út í geiminn svo nú gætu verurnar með skynjarana sína meira að segja verið bún- ar að fá sæmilega hugmynd um hvernig við lítum út. (Að þessu kom vísindamaðurinn góð- kunni, Carl Sagan, í fyrstu skáldsögu sinni, Contact, en í henni lætur hann geim- verur endurvarpa fyrstu sjónvarpsútsend- ingum jarðarbúa aftur til jarðar til að gera vart við sig — jarðarbúum til sannrarar- mæðu. Fyrstu sjónvarpsútsendingarnar sem eitthvað kvað að voru nefnilega af Adolf Hitler að setja Ólympíuleikana í Munchen árið 1936!) Nú er það mála sannast að hundrað ljósár, og hvað þá fimmtíu, eru ekki nema steinsnar ef miðað er við óendanlegar fjarlægðir alheimsins, þó okkur reynist að vísu erfitt að átta okkur á slfkum vega- lengdum. Eigi að síður ætti að vera ljóst að séu til viti bornar verur á öðrum hnött- um þá munu þær áður en yfir lýkur taka eftir okkur og ef við gerum ráð fyrir að einhvers konar vitsmunaleg forvitni hafi rekið þær áfram á þróunarbrautinni — rétt eins og okkur — þá leggja þær áreið- anlega flest í sölurnar til að koma í heim- sókn og líta á þessa nýliða. En þar hefur strákur heldur betur tekið hár úr hala Búkollu. Vegna margnefndra órafjar- lægða í geimnum eru ferðalög milli sól- kerfa varla framkvæmanleg nema með einhverjum þeim tækjum sem við kunnum engin skil á. Jafnvel þó svo okkur tækist 120 HEIMSMYND
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.