Heimsmynd - 01.10.1987, Qupperneq 128
Donna Rice ku eiga skuggalega fortíð að baki. Hún bjó í New York í tvö ár og fáir vissu hvað
hún hafði fyrir stafni en hún varekki íföstu starfi. Þávar hún ítygjum við eiturlyfjasala sem nú
afplánar tíu ára fangelsisvist.
séu orsök þess hvernig fór. Hann er mjög
óheilsteyptur og á sem slíkur ekkert erindi
í að bjóða sig fram sem leiðtoga stórveldis
á kjarnorkuöld, segir Sheehy. Hún bendir
á að allir helstu stuðningsmenn Harts hafi
löngu verið búnir að koma auga á það
hvaða gallagripur hann er og yfirgefið
hann. Nýja starfsliðið hans hafi hins vegar
réttlætt framkomu frambjóðandans fyrir
sjálfu sér og logið að öðrum. Eiginkona
hans Lee tók einnig þátt í þessum leik,
segir Sheehy, enda búin að eyða næstum
þremur áratugum í hjónabandi með
manninum. Pað sem vekur ef til vill mest-
an ugg í sambandi við uppljóstranir um
veikleika Harts að mati greinarhöfundar
er hversu lítið kjósendur vita almennt um
persónuleika þeirra sem sækjast eftir því
að verða leiðtogar.
Sheehy fór á æskuslóðir Harts í bænum
Ottawa í Kansas-fylki, þar sem drengur-
inn Gary Hartpence fékk strangtrúað
uppeldi, „langt í frá eðlilegt," segir
Sheehy. Fyrir íbúum þess smábæjar þar
sem Gary Hart ólst upp er sú veröld sem
hann sótti í á fullorðinsárum alveg eins og
á annarri plánetu. Heimur Donnu Rice,
næturlífs, eiturlyfja og framhjáhalda.
Sheehy rannsakaði feril Donnu Rice,
átti löng samtöl við föður hennar sem og
rannsóknarlögreglumenn á Flórdía og
komst að því að þar leyndist æði margt
misjafnt, þrátt fyrir opinberar yfirlýsingar
Donnu um hvernig hún var saklaust fórn-
arlamb kringumstæðna. Donna bjó í tvö
ár í New York án þess að hafa fast starf.
Sheehy fullyrðir að hún hafi selt blíðu
sína. Pá var Donna einnig í sambúð með
eiturlyfjasala sem nú afplánar tíu ára
fangavist fyrir sölu á kókaíni.
Sheehy fullyrðir að lengi hafi stefnt í
óefni hjá Hart sem haldinn sé sterkri sjálfs-
eyðingarhvöt. Pað eru tæpir þrír áratugir
frá því að hann yfirgaf heimaslóðir sínar í
smábænum Ottawa. Gamlir skólafélagar
hans lýsa honum sem einkennilegum
unglingi. Hann var ætíð mjög snyrtilega til
fara og átti enga nána vini. Margt af því
sem hann sjálfur hefur sagt um uppvöxt
sinn virðist enga stoð eiga í raunveruleik-
anum. Hann var hvorki þessi íþróttahetja
sem hann hefur sjálfur lýst né tók hann
þátt í ærslum með öðrum unglingum.
Hann þótti seinþroska og innhverfur en
ekki stríðinn prakkari eins og hann segir
sjálfur. Móðir Garys var í strangtrúuðum
söfnuði en í bænum Ottawa var áfengis-
notkun ekki leyfð. Gary og systir hans
voru einu ungmennin í fimmtíu manna
söfnuði Nazaret-kirkjunnar. Boðskapur
þeirrar kirkju var fólginn í strangtrúuðu
líferni þar sem allt miðaðist að því að
koma í veg fyrir að sóknarbörnin færu til
helvítis. Pað var bannað að hlusta á út-
varp, dansa, neyta áfengis og horfa á kvik-
myndir. Sem unglingur drakk Gary aldrei
bjór en hann fékk bekkjarfélaga sína til að
lýsa fyrir sér atriðum úr forboðnum kvik-
myndum. Hann bytjaði ungur að lifa í
sjálfsblekkingu. Fyrir sóknarbömum
Nazaret-kirkjunnar nú er Gary Hart
löngu glataður. „Pannig fer sóknin eftir
völdum og veraldlegum gæðum með
fólk,“ segir eitt sóknarbarnanna nú.
Ungum var Gary innprentað að menn
fæddust syndugir og eina leiðin til að forð-
ast eilífa glötun væri að beija niður líkam-
legar fýsnir. Hann leitaði skjóls í bókum.
Móðir hans hafði töglin og hagldirnar á
heimilinu. Henni er lýst sem strang-
trúaðri, móðursjúkri konu sem haldin var
hreinlætisæði. „Ef hún var ekki að gera
hreint lá hún veik og lét alla fjölskylduna
snúast í kringum sig,“ segir ættingi henn-
ar. „Hún vitnaði stöðugt í biblíuna og
fékk Gary til að prédika með sér í
kirkjunni. Strax sem barn hafði hann beyg
af henni en var mjög hlýðinn og þorði ekki
að leika sér eins og önnur börn.“
Pað liðu tuttugu og fimm ár frá því að
Gary Hart yfirgaf Nazaret-kirkjuna og
lenti í faðmi Donnu Rice og heimspress-
unar. Fyrsta skref hans til sjálfstæðis var
að breyta nafni sínu úr Hartpence í Hart í
dómshúsinu í Ottawa árið 1961. Hann hóf
nám í guðfræði í því skyni að halda loforð
sitt við móður sína um að prédika guðs-
orð. Hann hélst ekki lengi við í því fagi og
sneri sér að laganámi við Yale-háskólann
á austurströndinni.
Hann hafði kynnst Lee eiginkonu sinni
áður en hann hóf háskólanám og gengu
þau í hjónaband tveimur mánuðum eftir
að þau hittust fyrst. Lee kom frá vel stæðri
fjölskyldu í Kansas City og hélt Gary uppi
meðan hann var í háskóla. Hjónaband
þeirra hafði þó ekki varað lengi þegar
Gary trúði félaga sínum fyrir því að hann
hefði gert mistök. Hann fann einnig til
128 HEIMSMYND