Heimsmynd - 01.07.1993, Side 20

Heimsmynd - 01.07.1993, Side 20
Við síðustu kjarasamninga varð berlegaljóst að verkalýðshreyfingin er í ajvarlegri kreppu. í félagi við vinnuveitendur og ríkisstj órn bjó forysta hreyfingarinnar til enn einn pakkann. Lítið fór fyrir kjarabótum en þess í stað var meðal annars samið um að þorskstofninn skyldi vera í góðu ásigkomulagi Mörður Árnason skrifar hér um verkalýðshreyfinguna. araskrifstofa Sjá roðann í austri; hann brýtur sér braut. Fram bræður, það dagar nú senn! Verkalýðshreyfingin. Menn nota þetta orð ennþá og vantar um leið eitthvað ann- að betra, af því að báðir orðliðirnir vísa í vitlausa átt og samhljómurinn er eins og úr forneskju. Það eru áhöld um það að hve miklu leyti félagarnir í verkalýðshreyfing- unni teljast vera verkalýður. Og flestir eru í vandræðum með að sjá einhverja hreyfingu á verkalýðshreyfingunni. Samt er „verka- lýðshreyfingin" einn af öflugustu þátttak- endum í samfélagi dagsins, og allt í kring- um hana eru menn og hlutir í sífelldri um- breytingu. Það er meðal annars til marks um þessar umbreytingar að þegar Sovétríkin voru hrunin datt engum fjölmiðlungi í hug að spyrja forystumenn verkalýðshreyfingarinn- ar hvernig þeir hefðu það, heldur létu sér nægja að kvabba í Alþýðubandalaginu. Samt ætti skipbrot kommúnismans að sæta miklu meiri tíðindum fyrir verkalýðshreyf- inguna en Allaballa, kosningabandalag ým- issa vinstrihópa sem breskmenntaður stjórn- málafræðiprófessor í formannsstól reynir i sífellu að toga nær nútimanum og miðjunni. Sovét og verkalýðshreyfingin? Maður sér ekki samhengið nema þá að núna er skarð fyrir skildi um sumarleyfi við Svartahaf og á öðrum boðsströndum verkalýðshöfðingja úr öllum flokkum. En þó hafa gerst þau tíðindi að hið yfirlýsta fyrsta verkalýðsríki sögunn- ar er fallið í valinn með brauki og bramli og hefur tekið með sér í fallinu sjálfa draum- sýnina um það að verkalýðurinn eigi sér Guðmundur J. Guðmundsson er einn þeirra forystumanna samtímans sem hafa lyft sér úr hlutverki verkalýðsrekandans í gervi alþýðu- foringjans - tribunus populi eins og það var kallað í rómverskum stíl fyrr á öldinni. framtíðarríki, hvernig sem hver og einn hélt að það væri í laginu, drauminn um að roð- inn í austri, hann brjóti sér braut. En söng- urinn um að það dagi nú senn er ekki sam- inn í KSML(b) eða álíka ruglvinstrihópum á áttunda áratugnum. Hann er sjálfur Alþjóða- söngur Jafnaðarmanna og ennþá sunginn eins og útgöngusálmur að lokum flokks- þinga hjá Alþýðuflokknum og öðrum sósíaldemókratískum flokkum í samtökum sem sögulega ganga undir nafninu Annar Internasjónalinn. Um þann þriðja er svo sérstakur söngur. Og hvað með kratana? Sovét var líka vatn á myllu kratanna í verkalýðshreyfing- unni. Kratarnir áunnu sér fastan sess fyrir vestan með því einmitt að standa gegn sovéthollari öflum innan verkalýðshreyf- ingarinnar. Sú kenning er til að velferðar- kerfið sem byggist upp í Vestur-Evrópu eftir stríð, sérstaklega í Þýskalandi, hafi ekki síst myndast sem andsvar við raunverulegum og þó einkum ímynduðum ávinningum og réttarbótum í „alþýðulýðveldunum“ eystra. Að velferðin hafi að vissu leyti orðið til af hræðslu við vonda kallinn: Ef þið ekki reddið þessu þá verður öll verkalýðsstéttin að kommúnistum. Vér bárum fjötra en brátt nú hljótum aö byggja réttlátt þjóðfélag Sovétríkin voru að margra mati löngu dauð þegar þau lögðu að lokum upp laup- ana, og höfðu misst flesta tiltrú innan vest- rænnar verkalýðshreyfingar, að minnsta kosti á Norðurlöndum og Islandi þar sem fátt stóð eftir nema minningarnar, mynda- albúmin, - og boðsferðirnar. Um leið og hinn blóðrauði gunnfáni hamars og sigðar var dreginn niður innan Kremlarmúra var með sínum hætti slökkt endanlega á aflvél hreyfingarinnar frá 19. öld þegar það eitt var takmark hennar að ná völdum á kapítal- ismanum og byggja á rústum hans Réttlátt þjóðfélag. Það er vetur og sumar og annar vetur síðan hætt var að hlú að græðlingum byltingarinnar í víngarði verkalýðsins. Hins 20 HEIMSMYND J Ú L í

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.