Heimsmynd - 01.07.1993, Blaðsíða 68

Heimsmynd - 01.07.1993, Blaðsíða 68
Þetta var í fyrsta skiptl sem íslenskir sjónvarps- áhorfendur sáu rannsóknar- blaðamennsku í sjónvarpi og mörgum fannst nóg um. heldur þvert á móti að innan. Til að gera ísland heilbrigt að nýju yrði því að skera upp þjóðarlíkamann og ráðast að mein- vörpunum í búknum. Með blaðamennskuna í blóðinu. Vilmundur hóf afskipti sín af þjóðfélagsmálum með blaðamennskuferli sínum. Vilmundur hafði lengi haft áhuga á blaðamennsku og fjölmiðlum. Hann var ákafur blaðalesandi allt frá barnsaldri og frá barnaskólaárum til stúdentsprófs kom hann meira eða minna við sögu skólablaðanna. Meðal annars var Vilmundur um tíma rit- stjóri skólablaðsins í MR og vann það þrek- virki að koma blaðinu út mánaðarlega meðan hann var ritstjóri. Það hefur enginn leikið eftir honum. Eg skrifaði mikið og teiknaði í skólablöð MR og átti lengi náið samstarf við Vilmund á þeim vettvangi. Ég man hversu duglegur og markviss ritstjórí Vilmundur var; auk þess að vita glöggt hvaða efni hann vildi í skólablaðið, ritaði hann greinar um stjórnmál og ljóðmæli sem voru oftast umfram getu og stundum skiln- ing jafnaldra hans. Vilmundur var á undan okkur jafnöldr- unum á margan veg. Hann þroskaðist lík- amlega fyrr en við og andlega var hann alltaf mörgum skrefum á undan okkur. Hann hafði iðulega lesið aðrar og fleiri bækur en við og hafði ávallt á takteinunum greiningar á þjóðfélagslegum jafnt sem bókmenntalegum þáttum sem okkur skorti - þrátt fyrir að við teldum okkur gáfaða og útvalda unga menn, eins og títt var um menningarvita á menntaskólastigi á þessum tíma. Mér er minnisstætt þegar við Hrafn Gunn- laugsson, Þórarinn Eldjárn, Vilmundur Gylfa- son og undirritaður höfðum staðið að því að safna saman skólaljóðum úr MR og gáf- um út með formála eftir Halldór Laxness. Það var að sjálfsögðu Vilmundur sem hafði átt hugmyndina að því að fá Nóbelsskáldið til að skrifa formála. Engum öðrum okkar hefði dottið í hug að hringja í skáldjöfurinn á Gljúfrasteini. Það kom í hlut okkar Vil- mundar að ná í formálann í íbúð skáldsins í Reykjavík, nánar tiltekið á Fálkagötu. Ég kom vart upp orði allan tímann meðan á þessari stuttu heimsókn stóð, en Vilmundur umgekkst Nóbelskáldið eins og jafningja sinn, þeir hlógu saman og afgreiddu nokkr- ar bókmenntalegar analýsur í leiðinni. Það var engu líkara en þarna hefðu hist jafn- ingjar í andanum; Halldór Laxness Nóbels- skáld, sem þá stóð á sextugu, og Vilmund- ur Gylfason, 17 ára menntskælingur. Gecjn lokuðum fjömniðlum. Á skólaámm hafði Vil- mundur einnig fengist við blaðamennsku á sumrum; hann var óharðnaður unglingur þegar hann vann á Fálkanum sáluga sem keppti á þeim ámm við Vikuna í vinsæld- um. Og síðar vann hann við Alþýðublaðið og á fréttastofu útvarpsins í frístundum frá skóla. Dvöl Vilmundar í Bretlandi hafði opnað augu hans að fullu fyrir auðlegð frjálsrar blaðamennsku, víðsýni og vönduð vinnu- brögð breska ríkisútvarpsins BBC og gæði hinna frjálsu dagblaða. Samanburðurinn við flokksmálgögnin íslensku og hið pólitískt stýrða ríkisútvarp var sláandi. Það var þessu lokaða fjölmiðlakerfi sem Vilmundur vildi breyta. Hann vildi opna fyrir upplýsingar til almennings; að fjöl- miðlar yrðu varðhundar almennings en ekki þjónar valdhafa. Vilmundur hóf eigin- legan blaðamannaferil sinn að loknu há- skólanámi með því að ráða sig á Alþýðu- blaðið. Sighvatur Björgvinsson ráðherra var þá ritstjóri blaðsins og annaðist stjórnmála- skrifin. Alþýðublaðið var að sjálfsögðu ekki rétti vettvangurinn fyrir Vilmund, nýkominn með ferskar fjölmiðlahugmyndir frá Bret- landi. Þegar hann fékk þar að auki ekki að annast stjórnmálaskrif blaðsins sagði hann upp eftir hálfan annan dag - þá hafði hon- um verið falið að skrifa um tískusýningu í Reykjavík. Leið Vilmundar lá yfir á útvarpið þar sem hann gerði létta og rómantíska þætti um sumarið. Um haustið gerðist Vil- mundur kennari við Menntaskólann í Reykjavík, sinn gamla skóla. í minningum frá haustinu 1973 stendur þó ekki eftir menntaskólakennarinn Vilmundur heldur sjónvarpsmaðurinn, því það haust var hon- um boðið ásamt öðru ungu fólki að að- stoða fréttamenn við gerð fréttaskýringa- þátta. Nú var Vilmundur kominn með sterkt vopn í hendurnar og ekki leið á löngu uns þjóðfélagið tók að skjálfa. Rannsóknarblaðamaður í sjónvarpi. Það höfðu fæstir búist við því að hinn ungi og rómantíski mennta- skólakennari myndi hrista jafneftirminnilega upp í þjóðinni og haustið 1973- Vilmundur hafði skilgreint þjóðina, en þjóðin hafði enn ekki skilgreint Vilmund. Þættirnir, sem voru virðingarverð tilraun ráðamanna sjónvarpsins til að auka beina umfjöllun um þjóðmál með opnum hætti, hlutu heitið Landshorn. Þættir Vilmundar voru svo nýstárlegir, vægðarlausir og áleitn- ir að þeir kröfðust skilyrðislausrar afstöðu hjá áhorfendum. Þetta var í fyrsta skipti sem íslenskir sjónvarpsáhorfendur sáu rannsóknarblaðamennsku í sjónvarpi og mörgum fannst nóg um. Viðfangsefni Vil- mundar voru ennfremur óvenjuleg og við- kvæm fyrir þá sem þeim tengdust: Fjárreið- ur stjórnmálaflokkanna, verkföll og verk- fallsbarátta, fjármál tengd Háskólanum, ávísanafalsanir og önnur mál bankakerfisins og seinagangur í dómskerfinu. Hið síðast- nefnda fékk dramatískan hápunkt er Vil- mundur fékk í sjónvarpssal Baldur Möller. ráðuneytisstjóra í dómsmálaráðuneytinu, og þjarmaði að honum varðandi málefni kaup- manns í Keflavík sem hafði verið til athug- unar hjá dómskerfinu um margra ára skeið án þess að nokkuð gerðist. Á þessum árum (og reyndar allt fram til dagsins í dag) var seinagangur í dómskerfinu þekkt stað- reynd: Meintir fjármálaafbrotamenn gengu lausir árum saman án þess að rannsókn færi fram í málum þeirra. Margir urðu til að gagnrýna Vilmund fyr- ir framgönguna gegn Baldri Möller, en I augum Vilmundar var Baldur fyrst og fremst fulltrúi kerfisins og árásirnar þar af leiðandi ekki persónulegar. „Guð almáttug- ur hefði ekki getað varið þann málstað sem Baldur var þarna mættur fyrir,“ sagði Vil- mundur eftir þessa útsendingu og játaði að hafa „vaðið yfir manninn eins og valtari". Þátturinn vakti hins vegar gífurlega athygli og opnaði augu manna fyrir misbrestum í dómskerfinu. í sögu blaðamennsku mótaði þátturinn því tímamót; Rannsóknarblaða- mennska í sjónvarpi hafði vakið þjóðina til vitundar um það sem miður fór í þjóðfélag- inu, en að auki hafði Vilmundur náð að sanna að blaðamennska gæti verið tæki í höndum almennings til að veita valdhöfum aðhald í stað þess að standa vörð um þá. Samtryggðu og lokuðu kerfi ögrað. Vilmundur hélt áfram þáttagerð í sjónvarpi næstu þrjú árin, ekki síst í samvinnu við Valdimar Jóhannsson. 68 HEIMSMYND J Ú L í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.