Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 20
20 22. nóvember 2019FRÉTTIR VELDU ÚR MEÐ SÁL www.gilbert.is SEGIR VEITINGASTAÐINN HRAUN ENN VIÐ SAMA HEYGARÐSHORNIÐ n Fékk ekki ráðningarsamning eða launaseðil n Fyrirtækið skipti um kennitölur n Eigandi hótar blaðamanni Robert Zubcic mótmælti fyrir utan fyrrverandi vinnustað sinn, veitingahúsið Hraun í Ólafs- vík í hádeginu nokkra daga í röð í janúar á þessu ári. Ástæða mótmælanna var framkoma vinnu- veitanda hans gagnvart honum en hann hélt því fram að hann hefði ekki fengið greitt fyrir yfir- vinnu og þar að auki verið sagt upp störfum eftir að hann leitaði réttar síns hjá stéttarfélagi sínu. Samkvæmt upplýsingum frá Verkalýðsfélagi Snæfellinga á þeim tíma var þetta ekki í fyrsta sinn sem starfsmenn fyrirtækisins leituðu til fé- lagsins, þó svo ekki hafi verið fært að gefa upp heildarfjölda erinda sem þeim hefði borist vegna þess. Eigendur staðarins eru hjónin Jón Kristinn Ásmundsson og Katrín Hjartardóttir, áður áttu þau fyrirtækið í gegnum Hraun eldhús ehf., en sú kennitala fór í þrot í október síðastliðnum. Þrotið hefur átt sér nokkurn aðdraganda því í júní hafði verið stofnað nýtt fyrirtæki um reksturinn sem sótti um rekstrarleyfi á nýrri kennitölu, Tarragon ehf. Armindo Camillo er kokkur að mennt og menntaður í fyrir- tækjastjórnun. Hann kom til Ís- lands eftir langa búsetu í Írlandi þar sem kona hans og börn eru búsett. Hann segir að hann hafi unnið sem kokkur á fiskiskipi þegar hann sá starf yfirkokks auglýst hjá Hrauni veitingahúsi. Hann vildi ólmur komast af fiskiskipinu og fá starf sem bet- ur hentaði hans menntun og sló til. Hann var ráðinn til reynslu og segir að nánast frá upphafi hafi honum verið ljóst að eitt- hvað væri ekki með felldu. Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir hans fékk hann ekki skriflegan ráðningar- samning og hefur ekki enn fengið launaseðil. „Hann hefur haldið að ég væri banani, en það er ég ekki. Ég er skaphundur, enda er það oft þannig með kokka, maður þarf að hafa bein í nefinu til að stýra eldhúsi. Svona framkomu læt ég ekki yfir mig ganga. Bæði vill ég fá peninginn sem ég á inni hjá honum sem og koma til leiðar að hann láti af þessum svikum.“ Armindo segir Jón Kristin hafa lofað honum öllu fögru þegar hann bauð honum lausa yfirkokkastöðu í eldhúsinu á Hrauni. Armindo væri ráðinn inn sem yfirkokkur í eldhúsi og myndu þeir ganga frá samningi síðar. Eins útvegaði Jón Kristinn honum húsnæði og yrði leigan dregin af launum hans. Fljótlega eftir að Armindo hóf störf í eldhúsinu var honum gerð grein fyrir því ástandi sem hafði átt sér stað hjá fyrirtækinu í byrjun árs, þegar starfsmað- ur mótmælti ítrekað með skilti fyrir utan staðinn vegna meints launaþjófnaðar Jóns Kristins. „Ég varð því var um mig og þetta hvatti mig áfram í að ganga á eftir því að fá skriflegan ráðningarsamning svo ég gæti séð hvaða launakjör ég væri með og hvað yrði dregið af mér í leigu og svona.“ Armindo kveðst skilja vel að það sé erfitt fyrir hann að sanna að hann hafi verið ráðinn inn sem yfirkokkur þar sem engin skjöl séu því til staðfestingar. „Hann getur reynt að halda því fram að ég hafi bara verið ráð- inn þess vegna í uppvaskið, það er ekkert skriflegt til um stöðu mína þarna. Hins vegar hefði ég aldrei samþykkt slíka stöðu. Ég er með góða menntun og hæf- ur í því sem ég geri, ég á ekkert erfitt með að finna mér vinnu. Ég hef starfað á mörgum stöð- um sem yfirkokkur og hafði enga ástæða til að taka niður fyrir mig.“ MÓTMÆLTI FYRIR UTAN VEITINGAHÚSIÐ HRAUN Í ÓLAFSVÍK ARMINDO Erla Dóra erladora@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.