Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Side 27
FÓKUS 2722. nóvember 2019
Dagur í lífi ljósmóður:
06.20: Við mælum okkur mót við Helgu á fallegu heimili henn-
ar. Hér er vaknað snemma með það markmið að ná í gott bílastæði
við Landspítalann sem er alls ekki auðvelt. Helga búin að mála sig
og er rétt í þann mund að gæða sér á léttum morgunmat þegar við
komum, en hún áréttar að þegar komið sé í vinnuna viti hún aldrei
hvort eða hvenær hún komist næst til að næra sig.
07.15 Við leggjum af stað til að vera á undan mestu umferðinni,
takmarkið að finna gott stæði gengur eftir og áfram höldum við inn
í daginn.
07.45 Helga er komin í vinnugallann og leggur af stað inn í daginn,
hún fær sér kaffibolla og spjallar við kollega sína, athugar stöðuna
og sér á töflu þau verkefni sem henni hefur verið úthlutað þennan
morguninn.
08.00 Deildin er nánast full af konum sem flestar eru búnar
að fæða og fyrsta verk Helgu er að taka við konu sem er búin að
fæða og ætlar að fara beint heim eftir fæðingu. Helga framkvæmir
skoðun á nýburanum en hún er sem stendur í námi sem lýtur sér-
staklega að þessum verkþætti. Hún hefur samband við barnalækni
sem framkvæmir lokaskoðun á barninu og í kjölfarið fær fjölskyld-
an samþykki fyrir heimför.
10.00 Vaktstjóri tilkynnir Helgu að hún eigi að taka
á móti konu sem sé að koma með sjúkrabíl, en grun-
ur leikur á að legvatnið sé farið og ófætt barn hennar
með óskorðaðan koll. Helga tekur á móti konunni
og staðfestir að konan sé ekki með legvatnsleka. Eft-
ir talsvert, „tender, love and care“, eins og hún segir
sjálf, sem og útskýringar fer konan aftur heim. Helga
ítrekar að það sé alltaf erfitt að segja konum að
þær séu ekki í fæðingu þegar þær mæta á deildina,
spenntar og halda að dagurinn í dag sé dagurinn
sem barnið þeirra muni koma í heiminn.
11.00 Nokkrar konur hafa hringt á
fæðingarvaktina og boðað komu sína, Helga
hjálpar til við að yfirfara stofur og fylla á, þannig
þær séu tilbúnar. Helga grípur sér snarl með
kaffibollanum og segir það nauðsynlegt svo hún
festist ekki svöng í yfirsetu.
12.30 Helga tekur við frumbyrju í hörkusótt, það
fer ekki á milli mála þegar hún kemur inn, enda
eins og einn snillingur sagði, komin í snerils-
hæð, og þarf að einbeita sér að því að anda sig
í gegnum samdráttinn sem hún fær á stigapall-
inum. Konur í ástandi sem þessu fara yfirleitt
beinustu leið inn á fæðingarstofu þótt venjan
sé að staðfesta á móttöku hvort kona sé í sótt. Í
þessu tilfelli var óhætt að fara beinustu leið inn
á fæðingarstofu því hún var komin á lokametra
fæðingar. Konan vildi fá glaðloft og komast í bað.
Helga varð samstundis að óskum hennar, en hún
og hinn verðandi faðir sátu svo hjá konunni og
hjálpuðu henni sem best þau gátu við að takast á
við þessa hörðu sótt. Helga segist aldrei komast
almennilega yfir það hversu mikið kraftaverk lík-
ami kvenna sé. „Það hættir aldrei að koma manni
á óvart og er alltaf jafn magnað.“
Konunni var á þessum tímapunkti orðið óglatt
svo Helga stökk fram og sótti piparmyntu-
dropa en þeir hjálpa mikið með velgjuna. „Oft
þegar konur kasta upp þá grunar mann að það
styttist í þetta, ég undirbý herbergið, dreg upp
nauðsynleg lyf og kveiki á hitalömpum. Fljót-
lega byrjar hún að rembast í baðinu og ég hvet
hana til að hlusta á líkamann og treysta honum.
Eftir mjög svo stutta stund fæðist lítið fullkom-
ið barn í vatninu. Foreldrarnir undrandi á þessu
öllu saman, en svifu um á bleiku skýi. Það er svo
dáleiðandi og dásamlegt að horfa á nýbakaða
foreldra dást að litla barninu sínu. Það er engu
líkt! Ég fæ oft verki í brosvöðvana á þessarri
stund. Þegar fylgjan er fædd færi ég móður og
barn upp í rúm, sauma örlítið og aðstoða við
fyrstu brjóstagjöfina. Stuttu seinna er komið að
vaktaskiptum.“
16.00 Á leiðinni heim kemur
Helga við í fiskbúð enda segir hún
það algjöra klassík að vera með
soðinn fisk og þrumara á mánu-
dögum. Í kjölfarið sækir hún yngri
dóttur sína á leikskólann.
17.30 Þegar heim er komið þarf að
sjá til þess að heimalærdómurinn
klárist og píanóæfingum sinnt.
„Þegar maðurinn minn kemur
heim sting ég af á djassballettæf-
ingu, en ég dansa með snilldarhóp
frábærra kvenna. Eftir dansinn
fer ég heim í sturtu og leggst upp
í rúm með námsefni fyrir skólann
og dotta fljótlega ofan í bókina.“