Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Síða 30
30 22. nóvember 2019FRÉTTIR T ölvuþrjótum sem brjótast inn í tölvur, eða „hakka“ þær, hefur farið fjölgandi undanfarin ár og þeir orðið fyrirferðarmeiri í almennri um- ræðu. Það er ekki það eina sem er hakkað í dag, því nú hefur fólk tekið upp á að brjótast inn eða „hakka“ sjálfa líffræðina. Hugtak- ið nefnist biohacking á ensku og DV veit ekki til að hugtakið hafi verið íslenskað, en lausleg þýðing myndi væntanlega vera líffræði- hakk eða líffræðiinnbrot, eitthvað á þá leið. En hvað felst í hugtakinu? Biohacking er vítt hugtak og má nota um margt. Til að mynda get- ur það átt við um tiltekinn lífsstíl þar sem einstaklingar leitast við að lengja líf sitt eða bæta heilsu með meðvituðu fæðu- og lífsstílsvali. Kannski með því að hreyfa sig reglulega, neyta bætiefna, fasta og þar eftir götum. Það getur þó einnig átt við öllu grófara inngrip í líffræði mann- eskjunnar. Það þekkist til dæmis að einstaklingar hafi sprautað sig með blóði úr yngri manneskju í von um að hægja á öldrun líkam- ans. Í grunninn er þetta viðleitni til að hafa áhrif á heilann og/eða líkamann til að hámarka eða auka getu umfram það sem hefðbundin læknavísindi bjóða upp á. Jafnvel getur það falist í því að menn vilja vélvæða líkama sinn. Staðreyndin í dag er að einstaklingar, af forvitni, óþolin- mæði eða vantrausti gagnvart læknavísindunum, eru farnir að framkvæma genatilraunir og fikta í erfðaefni og líffræði utan sjúkrahúsa, tilraunastofa og jafn- vel án nokkurs grunns í líf- eða efnafræði. BBC ræddi í mars 2018 við konu sem hefur grætt segla í fing- ur sér. Með þeim getur hún skynj- að rafsegulsvið og vitað hvort kveikt eða slökkt sé á tækjum. Hún hefur einnig grætt rafflögu und- ir húð sína sem hún getur notað til að framkvæma aðgerðir á síma sínum og aflæsa hurðum Ónáttúrulegt val Biohacking er við- fangsefnið í nýlegum heimildaþáttum sem birtust á efnisveit- unni Netflix og nefn- ast Unnatural Selection eða á íslensku ónáttúru- val. Í þáttunum er litið til nokkurra birtingar- mynda hugtaksins „líf- fræðihakk“, og litið inn í hugarheim þeirra sem það stunda eða þeirra sem vonast til að græða á slíku inngripi í líffræðina. Um árþúsundamótin tókst vísindamönnum að kortleggja erfðaefni mannverunnar. Í dag er þekkingin á erfðaefni orðin svo mikil að það er hægt að ganga lengra en bara að skoða það, það er hægt að breyta því. Annar af kvikmynda- gerðarmönnunum á bak við þættina, Joe Egender, fékk hugmyndina að þátt- unum þegar hann var að kynna sér heimildir fyrir handrit að vís- indaskáldsögu. Þegar hann komst að því að erfðaefni væri hægt að breyta varð hann agndofa. „Ég trúði þessu ekki, að við gætum í alvöru breytt kjarna lífsins, erfða- efninu. Þetta er upphaf nýrrar byltingar,“ sagði Egender í samtali við The Guardian. Í þáttunum er rætt við Tristan Roberts, sem er með HIV-veiruna. Hann sprautar sig í tilraunagena- meðferð sem hann vonar að lækni hann. Einnig er rætt við David Is- hee, hundaræktanda með enga menntun í erfðafræði, sem fiktar í erfðaefni hunda og vonast til að verða fyrstur til að rækta hunda sem lýsa í myrkri. Átakanlegastur í þáttunum er þó án efa litli Jackson Kennedy, drengur með sjaldgæf- an erfðagalla sem er að gera hann blindan. Foreldrar hans fréttu af genameðferð sem gæti læknað Jack, sem dreymir um að verða geimfari. Hins vegar standa þau í baráttu við tryggingafélag sitt til að fá meðferðina niðurgreidda. Menntun og búnaður í gegnum internetið Þeir sem vilja hakka líffræðina eru að leita eftir betra lífi, betra ástandi, lækningu eða jafnvel bara til að svala forvitni á borð við: geta hundar lýst í myrkri, eða get ég sigrast á öldrun líkamans? Á internetinu er flest falt og hafa margir sem vilja gera minni- háttar eða róttækar tilraunir með erfðaefni sitt eða annarra, hrein- lega pantað allt sem til þarf, jafn- vel í tilbúnum pakkningum, heimsent með leiðbeiningum. Sumir líta á sig sem eins kon- ar hvunndagshetjur. Þarna taka þeir skref framhjá flóknum leyfis- ferlum, flóknum reglum um við- eigandi ferla og skjalavinnu til að tækla strax vandamál sem þeir telja sig geta leyst. Lyfjafyrir- tæki eru flest hagnaðardrifin, og í löndum þar sem heilbrigðisþjón- usta er kostnaðarsöm þá er að- eins á færi þeirra efnameiri að leyfa sér nýjar og framsýnar með- ferðir. Í Bandaríkjunum er talið að það taki um 10 ár fyrir nýtt lyf að komast á almenna sölu á markaði, og fyrir veikt fólk er sú bið oft banvæn. Þetta getur skap- að vissa óþolinmæði og vantraust á læknavísindunum. Erfðaefnið hakkað Tíminn líður hratt á gervihnatta- öld, söng söngflokkurinn Icy árið 1986 og verður sú lína ekki of oft kveðin í því samfélagi sem við búum í í dag. Gífurlegar tækni- framfarir eiga sér stað á ári hverju og getur verið erfitt að fylgj- ast með þeim öllum. Erfðaefni mannsins hefur verið kortlagt og sýnt fram á að hægt sé að eiga við það. Manneskjan er komin með getuna til að endurrita erfða- efnið, það er staðreynd. En er það siðferðislega forsvaranlegt? Í til- felli Jacks litla þá væri svarið án efa já, en ef ætlunin er, líkt og hjá mörgum líffræðihökkurum, að framlengja lífið, hægja á öldrun, velja börnum okkar erfðafræði- lega eiginleika, erum við þá kom- in á hálari ís? Það mætti segja að það væri form af líffræðihakki þegar kona fer í fósturskimun þar sem leit- að er eftir litningagöllum fósturs, þótt þar sé farið eftir löglegum ferlum, en löngum hefur verið deilt um hvort það sé siðferðis- lega forsvaranlegt eða ekki. Líffræðihakk er ekki án áhættu, sérstaklega þegar leik- menn gera tilraunir á sjálfum sér í bílskúrnum heima hjá sér. Líf- fræðihakkarar vonast til að bæta mannkynið, jafnvel finna lækn- ingu við hættulegum sjúkdóm- um sem verði hægt að bjóða fólki upp á án þess að það þurfi að eiga við hagnaðardrifna lyfjarisa. En hafa má í huga að ástæða þess að ströngum öryggisferlum varð- andi ný lyf, meðferðir og tilraunir, er að jafnaði fylgt er sú að tryggja öryggi almennings. Þeir sem gera tilraunir á sjálfum sér bjóða því hættunni heim, en hvort það muni hafa erindi sem erfiði, það er önnur spurning. n Líffræðin hökkuð n Vafasamt athæfi tröllríður heiminum n Gróf inngrip í genamengi mannsins „Líffræðihakk er ekki án áhættu, sérstak- lega þegar leikmenn gera tilraunir á sjálfum sér í bíl- skúrum heima hjá sér. Erla Dóra erladora@dv.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.