Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 35
Stóra jólablaðið22. nóvember 2019 KYNNINGARBLAÐ
MI ICELAND:
Geggjaðar jólagjafahugmyndir
frá Mi Iceland!
Fyrir miðbæjarrottuna
Mi Electric Scooter er eitt vinsælasta
rafmagnshlaupahjólið um allan
heim. Hlaupahjólið er úr sams konar
áli og notað er í flugvélar. Það
inniheldur öflugan rafmagnsmótor
sem kemst allt að 25 km/klst hraða
og 250Wh rafhlöðu sem skilar
allt að 30 km á sléttum jarðvegi.
Auðvelt er að brjóta hjólið saman
og taka með í strætó og fara á milli í
miðbænum! Fæst í svörtu og hvítu.
69.990 kr.
Jólahjólið í ár!
QiCycle Folding Electric Bike er lítið
og nett rafmagnshjól útbúið fjölda
snjallra eiginleika. Einfalt er að
brjóta hjólið saman og því er það
fullkomið borgarhjól sem auðvelt er
að stinga í skottið á bílnum. Hjólið
er búið öflugri Panasonic 18650
mAh Li-ion rafhlöðu sem er sams
konar og sú sem notuð er í hina
byltingarkenndu Tesla-bíla. Skjár
á stýrinu gefur þér upplýsingar
um hraða, vegalengd og stöðu
rafhlöðu. Þar getur þú stillt hversu
mikið mótorinn vinnur til móts við
þig. Hjólið er létt og fyrirferðarlítið
og vegur aðeins 14,5 kíló.
169.990 kr.
Þekkir þú einhvern sem langar að
hlaupa maraþon?
Amazfit Stratos snjallúrið er
algjör skyldueign fyrir alla þá sem
stunda líkamsrækt. Skjárinn er
varinn með 2.5D Gorilla Glass og
er skífan úr handpússaðri keramík.
Úrið sjálft er síðan allt varið með
þríviddarprentuðu Carbon-Fibre.
Með 5-ATM er úrið vatnshelt niður
á allt að 50 metra dýpi og því
tilvalið í sundferðina. Úrið fylgist
alltaf með hreyfingu þinni og
hjartslætti og býður upp á 16
mismunandi stillingar, sérstaklega
hannaðar fyrir t.d. innanhúshlaup,
útihlaup, hjólreiðar, sjósund, skíði,
tennis og fótbolta. Nýja Amazfit
Watch 2.0 snjallforritið safnar
svo saman öllum upplýsingum
frá úrinu og birtir á einfaldan og
notendavænan hátt. Þar geturðu
séð mælingar langt aftur í tímann
á skrefum, hreyfingu og svefni.
29.990 kr.
Nútíminn er mættur í eyrun!
Einfaldleiki og tækni sameinast á
einstakan hátt í Mi True Wireless
Earbuds Basic og útkoman er töfrum
líkust. Við fyrstu notkun tengjast
heyrnartólin við símann eða tölvuna
á einfaldan hátt. Eftir það kviknar
einfaldlega á þeim þegar þau eru
tekin úr hleðsluboxinu og tengjast
tækinu sjálfkrafa. Með því að þrýsta
á takka á heyrnartólunum getur þú
þannig svarað símtölum, skipt um
lag, tengt þig við Google Assistant
ef þú ert með Android-síma eða Siri
ef þú ert með Apple-síma og notað
raddstýringu til þess að framkvæma
aðgerðir. Búnaður í hljóðnemum
tryggir að þeir útiloka umhverfishljóð
og nemi rödd þína sem best. Sama
á við þegar hlustað er á tónlist.
Heyrnartólin sía burt umhverfishljóð
fyrir fyrsta flokks hljómgæði.
8.990 kr.
Bíósalur heima í stofu!
Mi Laser Projector 150" er hágæða
skjávarpi sem varpar mynd í
allt að 150 tommur og færir þér
þannig bíósalinn heim í stofu! Hvít
umgjörð með mjúkum hornum gerir
skjávarpann að fallegu húsgagni
sem þú vilt helst hafa sýnilegt í
stofunni. Skjávarpinn varpar mynd
með notkun á laser sem þýðir minna
viðhald og lengri endingartími.
Skarpari litir, svartari svartur,
einstaklega björt mynd og meiri
hraði í ræsingu eru helstu kostir þess
að vera með lasermyndvarpa.
289.990 kr.
Netflix og „tjill“ er ekkert vandamál
með Mi Box S
Mi Box S er eitt sniðugasta tækið
á heimilið. Tækið er tengt við
sjónvarpið með HDMI-snúru og því
er stjórnað með lítilli fjarstýringu.
Með þessu tæki getur þú á einfaldan
hátt notað forrit eins og Netflix, Plex,
Kodi, Youtube og Spotify.
9.990 kr.
Er vinur þinn alltaf þakinn
hundahárum? Ekki lengur!
Robot Vacuum sér um þrifin á
meðan þú ert að heiman. Hægt er
að setja upp áætlanir fram í tímann,
stilla kraft sugunar (og með því
hávaða). Ryksugan kortleggur rýmið
með 360° laserskynjara og þú getur
fylgst með í rauntíma hvar ryksugan
er, hversu mikið er búið og hvað er
eftir í gegnum smáforritið Mi Home.
Ryksugan sér svo sjálf um að setja
sig í hleðslu eftir notkun eða þegar
rafhlaðan er að verða tóm.
49.990 kr.
Skoðaðu úrvalið nánar á vefverslun
mii.is