Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Qupperneq 36
Stóra jólablaðið 22. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ
Þjóðleikhúsið býður öllum landsmönnum upp á stórskemmtilegar leiksýningar
á nýju leikári. „Við eigum 70 ára
afmæli í ár og það verða fjölbreyttar
sýningar á fjölunum við allra hæfi.
Þar má telja þónokkur ný leikrit
eftir íslenska höfunda, barna- og
fjölskylduleikrit, gagnvirkar sýningar,
klassísk verk, framsæknar sýningar,
gamanleikrit og ýmislegt fleira,“ segir
Atli Þór Albertsson, markaðsstjóri
Þjóðleikhússins.
Gjafakort í leikhús: Menningarleg
skemmtun í jólagjöf
Gjafakort halda áfram að vera
vinsælar jólagjafir og einnig sem
jólagjöf fyrirtækja til starfsmanna.
Þess má geta að gjafakort
Þjóðleikhússins renna aldrei út, en
andvirði þeirra getur breyst á milli
ára. Sérstök gjafakort verða í boði
fyrir Kardemommubæinn svo börnin
geta glaðst um jólin og farið að hlakka
til næsta leikárs. Á þessu leikári sýnir
Þjóðleikhúsið fjölda leikverka sem
skarta mörgum af ástsælustu leikurum
landsins. „Leikhúsferðir eru með því
skemmtilegra sem hægt er að hugsa
sér enda menningarleg og skemmtileg
afþreying. Jólagjöfin í ár er án alls efa
gjafakort í Þjóðleikhúsið enda geta allir
fundið sýningu við sitt hæfi.“
En að sýningum vetrarins:
Kasper og Jesper og Jónatan!
Kardemommubærinn er klassískt
leikrit úr smiðju Thorbjörns Egner og
var fyrst sýnt í Þjóðleikhúsinu árið
1960. Þá fóru með aðalhlutverk
Róbert Arnfinnsson sem Bastían
bæjarfógeti, Emilía Jónsdóttir var
Soffía frænka en ræningjana þrjá
léku þeir Ævar Kvaran, Baldvin
Halldórsson og Bessi Bjarnason.
Þetta fræga verk er eflaust
uppáhald allra Íslendinga. „Það
eiga sér allir sínar minningar frá
Kardemommubænum og nú
frumsýnum við Kardemommubæinn
fyrir nýja kynslóð.“ Sýningar byrja í
apríl og með aðalhlutverk fara Örn
Árnason sem Bastían, Steinunn
Ólína Þorsteinsdóttir sem Soffía
frænka og ræningjana leika þeir
Hallgrímur Ólafsson, Sverrir Þór
Sverrisson og Oddur Júlíusson.
Þitt eigið leikrit II Tímaferðalag
er svo stórskemmtileg gagnvirk
fjölskyldusýning eftir Ævar Þór
vísindamann, þar sem áhorfendur
kjósa reglulega á milli valkosta sem
stýra framvindu sýningarinnar á
meðan hún er að eiga sér stað.
Þetta gerir það að verkum að hver
sýning er ólík þeirri sem á undan var.
Meðal áhugaverðra sýninga
má nefna verkið Útsending.
Ingvar E. Sigurðsson fer þar með
aðalhlutverkið en verkið fjallar um
bandaríska sjónvarpsfréttamanninn
Howard Beale sem er sagt upp
störfum eftir 25 ára starfsframa. Í
kjölfarið tilkynnir hann áhorfendum
sínum um fyrirhugað sjálfsmorð
sitt og við það rjúka áhorfendatölur
upp úr öllu valdi. „Sýningin fékk
frábærar viðtökur í London. Við
í Þjóðleikhúsinu ætlum að fara
skemmtilegar leiðir í uppsetningu
verksins, en þetta mun virka
eins og sjónvarpsútsending og
mæta áhorfendur í nokkurs
konar sjónvarpssal úr smiðju Egils
Eðvarðssonar.“
Ástfangið leikritaskáld og Chaplin
Shakespeare verður ástfanginn
heldur áfram á leikhúsfjölunum
út árið enda hefur verkinu
verið einstaklega vel tekið af
áhorfendum. Um er að ræða
fjörugan og rómantískan
gamanleik sem er unninn út
frá Óskarsverðlaunamyndinni
Shakespeare in Love. Á meðal leikara
eru þau Aron Már Ólafsson, Lára
Jóhanna Jónsdóttir, Örn Árnason,
Edda Björgvinsdóttir, Jóhanna
Vigdís Arnardóttir og Guðjón Davíð
Karlsson. Einræðissherrann verður
áfram á fjölunum og þar fer Siggi
Sigurjóns, óskabarn þjóðarinnar, á
kostum sem Chaplin.
Ný íslensk verk
Kópavogskróníka er glænýtt íslenskt
leikverk sem Ilmur Kristjánsdóttir
og Silja Hauksdóttir hafa
nostursamlega fært á svið upp
úr vinsælli samnefndri skáldsögu
Kamillu Einarsdóttur. Verkið fjallar
um unga og einstæða móður sem
dvelst langdvölum í Kópavogi eftir
að hafa lent í rækilegri ástarsorg.
Einnig frumsýndi Þjóðleikhúsið Ör,
(eða Maðurinn er eina dýrið sem
grætur) sem unnið er úr samnefndri
skáldsögu Auðar Övu, í upphafi
leikársins og óhætt að segja að
viðtökur hafi verið frábærar.
„Ef mér telst rétt til þá eru
tuttugu sýningar á fjölunum þennan
veturinn. Þetta eru ótrúlega ólíkar og
fjölbreyttar sýningar og því ættu allir
að finna eitthvað við sitt hæfi,“ segir
Atli að lokum og býður alla velkomna
í Þjóðleikhúsið.
Kynntu þér frábærar leiksýningar
Þjóðleikhússins á leikhusid.is
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ 70 ÁRA:
Gjafabréf upp á
menningarlega skemmtun