Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Síða 38
Stóra jólablaðið 22. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ
PRENTAGRAM:
Frelsaðu myndirnar
þínar á Prentagram.is!
Hjá Prentagram.is færðu hágæða ljósmyndaprentun, stafræna framköllun og
persónulegar gjafir. Vinsælustu
vörurnar eru ljósmyndaprent,
dagatöl, mósaíkmyndir og rammar
með mynd eða myndum. Vefsíðan
okkar er tengd við Instagram og
því er í öllum tilfellum hægt að
hlaða upp myndum úr símanum,
tölvu, spjaldtölvu eða beint af
Instagram.
Ljósmyndaprentun
Prentagram býður
upp á flestar stærðir í
ljósmyndaprentun. Á vefnum
okkar má velja allar vinsælustu
framköllunarstærðirnar. Ef
prenta á út stærri myndir má
hafa samband við okkur með
tölvupósti, prenta@prentagram.
is, í síma 568-0400 eða bara
með því að kíkja við hjá okkur á
Rauðarárstíg 33.
Innrömmun
Ljósmynd í ramma er sígild gjöf
og hittir sérstaklega í mark hjá
ömmum og öfum. Við bjóðum
mikið úrval ramma á vefnum
okkar; viðarramma, álramma
og glerramma. Þar er líka hægt
að velja uppsetningu og fjölda
mynda.
Myndaalbúm
Við bjóðum einnig gott úrval
af myndaalbúmum af ýmsum
stærðum og gerðum, t.d. 10×10
eða 10×15 albúm. Þau eru fyrir 24
myndir og við gefum 15 myndir
með hverju albúmi. (Athugið að
hafa þarf myndirnar og albúmin í
sömu pöntun, þá fær kaupandinn
15 fríar myndir).
Jólakort
Ekki má gleyma vinsælu
jólakortunum okkar. Við bjóðum
átta mismunandi útfærslur. Þú
setur einfaldlega myndina þína og
textann inn á eina af útfærslunum
á vefnum okkar. Svo má panta
umslög og frímerki með.
Hröð afgreiðsla
Allar pantanir eru afgreiddar
næsta virka dag. Ef þú pantar
t.d. á miðvikudagskvöldi þá er
pöntunin þín tilbúin til afhendingar
á fimmtudegi. Og ef pantað er
á föstudegi eða um helgi, er
pöntunin tilbúin á mánudegi.
Skoðaðu úrvalið á prentagram.is
Sími: 568-0400
Vefpóstur: prenta@prentagram.is
Fylgstu með okkur á Facebook:
Prentagram
Instagram: @prentagramiceland