Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Síða 40
Stóra jólablaðið 22. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ
CARUSO:
Kósý jólastemning
Ástsæli veitingastaðurinn Caruso hefur starfað farsællega í miðbæ
Reykjavíkur í 25 ár og eru engin lát á
vinsældum staðarins. Nú í desember
eru komin fimm ár síðan Caruso
flutti frá Þingholtsstrætinu niður fyrir
læk í Austurstræti og má með sanni
segja að eigendur staðarins, Þrúður
Sjöfn Sigurðard og José Luis Garcia,
séu mjög ánægðir með þetta fallega
og sögulega húsnæði. Andrúmsloftið
er gott og rómantískt og gestirnir
kunna að meta hlýlegt og notalegt
umhverfið. Öll föstudags- og
laugardagskvöld býður Caruso upp
á ljúfa gítartóna, en það er hann
Símon Ívarsson sem spilar hjá þeim,
en þess má geta að Símon hefur
spilað hjá þeim í yfir 20 ár.
Kósýkvöld með Eyfa á Caruso
Kósýkvöldin með Eyfa eru orðin
fastur liður hjá okkur í desember
og munu þau að þessu sinni
verða fimmtudagskvöldin 5. og
12. desember. Þess má geta að
það eru orðin 10 ár frá fyrsta
kósýkvöldinu okkar með honum
Eyfa. Á meðan gestir okkar njóta
þriggja rétta máltíðar mun
Eyjólfur spila og syngja íslenskar
og erlendar dægurperlur ásamt
nokkrum vel völdum jólalögum.
Þetta verður sannkölluð jólastund
og stemningin verður einstaklega
skemmtileg og notaleg svona mitt
í jólaamstrinu að sögn Eyjólfs
Kristjánssonar.
Kósýkvöldin okkar hafa verið vinsæl
hjá þeim sem vilja njóta afslappandi
kvöldstundar og gera vel við
bragðlaukana í þægilegu umhverfi.
Veitingastaður í sögulegu húsi
Veitingastaðurinn Caruso er
staðsettur í Austurstræti í fallegu
húsi sem var upphaflega byggt
árið 1801, eyðilagðist í eldsvoða
árið 2007 og var svo endurreist í
upphaflegum stíl. „Það eru fimm
ár núna í desember síðan við
fluttum í Austurstrætið og líður
okkur mjög vel að vera þar í þessu
litla krúttlega húsi. Andrúmsloftið
er afar rómantískt og á Caruso er
hægt að ganga að góðum mat,
hlýlegri þjónustu og huggulegu
umhverfi vísu og eigum við okkar
fastakúnna sem koma til okkar
aftur og aftur og þekkja jafnvel
borðnúmerið sitt þar sem þeir
vilja sitja. Það er hálfpartinn eins
og húsnæðið umvefji mann og
staðsetningin er náttúrlega frábær,“
segir José á Caruso.
Caruso, Austurstræti 22, 101
Reykjavík
www.caruso.is
Sími: 562-7335
Tölvupóstur: caruso@caruso.is
Opnunartími: Mán–fim: 11.30–22.30,
fös: 11.30–23.30, lau: 12-23.30 og
sun: 17–22.30