Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Side 50
Stóra jólablaðið 22. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ
RAG FLYTUR INN NÝJAR RÚTUR:
„Það er enginn annar með
þetta í Evrópu“
Það er enginn annar með þetta í Evrópu,“ segir Rafn Arnar Guðjónsson, stjórnarformaður
RAG, og á þá við glænýjar 21 manns
glæsirútur frá Mercedes-Benz sem
voru að lenda á Íslandi, nýkomnar og
ylvolgar úr ábyggingarverksmiðjunni
BUS-pl í Póllandi. Rúturnar hafa
selst vel á Íslandi og eru byrjaðar að
seljast í Evrópu. „Eftir sýninguna í
Brussel Busworld, þar sem við fórum
með tvær rútur, sló 4×4 rútan í gegn.
Margar fyrirspurnir og pantanir eru
komnar frá Evrópu enda eru rúturnar
einstakar í sínum stærðarflokki og
tilvaldar fyrir ferðamannaiðnaðinn
hvort er í Evrópu eða Íslandi.“
Settum ný viðmið
„Við erum í samstarfi við Bus-pl
í Póllandi og köllum okkur Bus-
fjölskylduna. Þar breytum við
rútum fyrir ferðamannaiðnaðinn.
Bílarnir koma frá Mercedes-Benz
verksmiðjunni. Við sem ábyggjendur
tökum og breytum grunninum í
samræmi við þann tilgang sem
bíllinn á að þjóna. Við hjá RAG
og BUS-pl settum ný viðmið fyrir
þessar lúxusrútur á sínum tíma
og erum fyrir vikið að ná góðum
árangri á markaðnum.“
Það má segja að rúturnar séu
einstakar í veröldinni
Mercedes Benz 519 Arctic Edition
4×4 eru einu sprinterarnir í
heiminum sem eru 21 manns. Þetta
eru stórskemmtilegar 4×4 rútur
með hátt og lágt drif sem henta
sérstaklega vel á Íslandi og í Evrópu.
Einnig er hægt að fá þær á 35
tommu dekkjum. „Hið sama á við
þessa rútu eins og allar okkar rútur,
hún er einkar vel útbúin og hentar
sérlega vel fyrir lengri og styttri
ferðir með ferðamenn. Rúturnar eru
útbúnar öllum nútímaþægindum
svo sem usb-tengjum fyrir síma og
myndavélar, innbyggðu wifi-kerfi,
fullkominni miðstöð, míkrófónum,
færanlegum sætum og mörgu
fleira. Þá eru öll helstu þægindi
fyrir bílstjórann í ökusætinu sem
og aðgeðir í stýri. Einnig er búið að
vinna að því að létta rúturnar mikið.
Við höfum selt þessar rútur
um alla Evrópu og fóru fyrstu 4×4
bílarnir til Sviss og Austurríkis og eru
nú að koma pantarnir alls staðar
að í Evrópu t.d. frá Svartfjallalandi,
Spáni, Ítalíu og fleiri löndum. Til
þess að panta bíl er best að hafa
samband við mig í síma 565-2727
eða 892-7502 eða senda mér
tölvupóst á rafn@rag.is.“
RAG er einnig með umboð
fyrir Fliegl sem framleiðir meðal
annars gámagrindur, vélavagna,
beislisvagna og fleira. Fliegl er með
mikið af landbúnaðartækjum og er
fyrirhuguð ferð hjá RAG til Triptis að
heimsækja verksmiðjurnar í janúar.
Nánari upplýsingar má nálgast á rag.is
Fylgstu með okkur á Facebook: RAG
Import – Export
Helluhraun 4, 220 Hafnarfjörður.
Sími: 565-2727 og 892-7502
Netpóstur: rafn@rag.is
Fliegl Skítadreifari. 35 tommu rúta á leið til Íslands.Fliegl vélavagn. Arctic Edition 4x2 og 4x4 á standard dekkjum.