Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Page 54

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Page 54
Stóra jólablaðið 22. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ DÝRAFÓÐUR.IS: Gleðileg gæludýrajól með Dýrafóður.is Vefverslunin Dýrafóður.is var opnuð árið 2017, en hún er rekin af heildsölunni Vetis ehf. sem var stofnuð af nokkrum dýralæknum árið 2002. Heildsalan flytur fyrst og fremst inn gæludýrafóður og ýmiss konar gæðavörur fyrir gæludýr. Auk þess flytur Vetis inn sérvörur, tæki og búnað fyrir dýralækna. Eigandi fyrirtækisins er Gísli Sverrir Halldórsson dýralæknir. „Það er mikill styrkur fyrir fyrirtækið að Gísli hafi verið starfandi dýralæknir í tæp 40 ár og viti þar af leiðandi sínu viti þegar kemur að fóðrun dýra,“ segir Sigrún Pálmadóttir, rekstrarstjóri Vetis og Dýrafóður.is. Gæði og þekking í þágu dýra Einkunnarorð Vetis og Dýrafóður. is er Gæði og þekking í þágu dýra, en markmið fyrirtækisins er að vera framarlega á markaði með gæðafóður og endingargóðar hliðarvörur fyrir gæludýraeigendur. Vetis skiptir við ábyrg framleiðslufyrirtæki sem hafa dýrahagsmuni og náttúruvernd í fyrirrúmi. „Við kappkostum að upplýsa og fræða viðskiptavini okkar og endursöluaðila um vörurnar okkar, um almennar þarfir dýranna og þeirra aðbúnað.“ Skemmtilegar og umhverfisvænar jólagjafir fyrir gæludýrin Langar þig að gera vel við kisu fyrir jólin? Dýrafóður.is er með til sölu frábærar gjafir sem gleðja gæludýrin yfir jólahátíðina. Umhverfisvæn leikföng og gæludýravörur frá Beco Pets „Í takti við umhverfissjónarmið okkar erum við stolt að kynna nýtt merki hjá Dýrafóður.is. Beco Pets framleiðir umhverfisvænar og endurunnar vörur fyrir gæludýrin. Meðal annars erum við með tuskudýr fyrir hunda og ketti, úr endurunnum plastflöskum. Einnig erum við með ýmsar aðrar vörur sem búnar eru til úr endurunnum efnum, leikföng úr náttúrulegu gúmmíi og vörur úr „plast“-efni sem búið er til úr bambus og hrísgrjónahýði og brotnar niður í náttúrunni.“ Nammidagatöl og jólasokkar Dýrafóður.is selur einnig nammidagatöl frá Nobby fyrir hunda og ketti. „Þessi eru sívinsæl enda er gaman að gera vel við gæludýrin í jólamánuðinum. Svo erum við með stórskemmtilega jólasokka fyrir kisur og hvutta. Kisusokkurinn er með leikföngum og hundasokkurinn er með bæði leikföngum og nammi.“ Gæðafóður fyrir góðar stelpur og stráka Rétt fóðrun og umönnun er einn mikilvægasti þáttur í lífsskeiði dýra þar sem hágæða fóður eykur lífsgæði og lengir líf. Vetis og Dýrafóður.is leggja áherslu á að allar vörur til sölu á vefsíðunni séu framleiddar án þess að komi til dýratilrauna, auk þess sem allar fóðurvörur eru fyrsta flokks, úr náttúrulegum afurðum, án allra gervibragð-, rotvarnar- eða litarefna. Belcando, hágæðafóður fyrir hundinn Belcando er hágæða „super premium“ hundafóður fyrir allar stærðir og gerðir hunda. Það er eingöngu unnið úr ferskum kjötvöðva úr dýrum sem henta til manneldis. Þess má geta að allir leitarhundar Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru á Belcando og segir það sitt um gæðin. Leonardo, fyrsta flokks matur fyrir kröfuharðar kisur Leonardo býður upp á breitt úrval af bæði þurr- og blautfóðri fyrir stóra og litla ketti sem gera kröfur. Þá er sérlega mikið vöruúrval af kattafóðri með mismunandi bragðtegundum og áferð því kettir geta verið afar vandlátir þegar kemur að mat. Leonardo-fóðrið má bæði nota sem heildstæða máltíð eða sem bragðbæti og uppbót. Frír sendingarkostnaður og gjafabréf Dýrafóður.is býður viðskiptavinum sínum upp á fría heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu og fría sendingu á pósthús út á land ef keyptar eru vörur fyrir 8.000 kr. eða meira. „Við útbúum einnig gjafabréf fyrir þá sem langar að gefa gæludýraeigendum inneign hjá vefversluninni okkar Dýrafóður. is. Hægt er að senda fyrirspurnir á lager@vet.is og við útbúum gjafabréf eftir samkomulagi.“ Nánari upplýsingar má nálgast á vefversluninni www.dyrafodur.is Facebook: Dýrafóður.is Sími: 421-8005 og 651-8005 Netpóstur: lager@vet.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.