Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Side 59

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Side 59
Stóra jólablaðið22. nóvember 2019 KYNNINGARBLAÐ SOFÐURÓTT.IS: Betri svefn í jólagjöf Hágæða sængurfatnaður úr náttúrulegum efnum sem miðar sérstaklega að góðum svefni eru helstu einkennin á vöruúrvali í vefversluninni Sofðu rótt. Verslunin er hluti af fyrirtækinu Vitar ehf. sem m.a. býður upp á sængurfatnað og lín fyrir hótel og gistihús en býður nú almenningi upp á sængurvörur o.fl. í gegnum vefverslunina sofdurott.is. Framleiðendur í hæsta klassa „Í tengslum við hótelbransann áttaði ég mig á því að ég var kominn með framleiðendur í hæsta klassa og fannst ég verða að bjóða hluta af þeirra vörum til sölu til einstaklinga. Sérstaða vöruframboðsins í vefversluninni er sú að almennt eru þetta vörur úr náttúrulegum efnum, dún, ull, hör, silki eða bómull. Dúnninn er flokkaður eftir stærð og gæðum sem skýrir verðmun á sængum. Við erum með sængur frá þýska fyrirtækinu Kauffmann sem er bæði einn stærsti sængurframleiðandi í Evrópu og jafnframt einn af þeim virtari í heiminum og hefur verið starfandi í tæp 200 ár. Velferð dýra skiptir Kauffmann miklu máli og er fyrirtækið með vottun upp á að allur dúnn sem fer í sængurnar og koddana þess sé reyttur af dauðum fuglum en því miður er talsvert um að dúnn sé reyttur af lifandi fuglum,“ segir Arnar Þór Jónsson hjá Vitum ehf. Mikil áhersla á góðan svefn einkennir þessar vörur: „Þegar þú leggst upp í rúm er mikilvægt að hitastigið sé rétt. Margir velja sér mjög hlýja eða heita sæng þar sem þeim þykir hún notaleg. En svo sefurðu kannski ekki nógu vel undir henni þar sem þér verður of heitt. Við bendum fólki á að velja réttu sængina miðað við svefnherbergishita og líkamsþyngd,“ segir Arnar en á vefsíðunni sofdurott.is undir liðnum „Upplýsingar“ er að finna góðar leiðbeiningar um þetta. Afgerandi niðurstöður úr svefnrannsókn Sængin Climabalance frá Kauffmann er sérhönnuð með góðan svefn í huga. „Kauffmann selur þessa sæng undir einkaleyfi um allan heim. Svefnrannsóknarstöð háskólasjúkrahússins í Regensburg í Þýskalandi gerði rannsókn á áhrifum hita á svefngæði þar sem Climabalance-sængin var borin saman við hefðbundna, sambærilega sæng. Niðurstöðurnar voru afgerandi: Þú ert fljótari að sofna undir Climabalance-sænginni, svefninn verður rólegri, þú vaknar sjaldnar, REM-svefninn lengist og djúpsvefn sömuleiðis um allt að 50%. Það svitna allir á næturnar, mismikið þó, en raki fer þrisvar sinnum hraðar í gegnum Climabalance-sængina en hefðbundna sæng og því verður jafnara hitastig undir sænginni og þú sefur betur.“ Sofðu rótt stóð fyrir lítilli óvísindalegri tilraun á haustmánuðum til að sjá hvort sömu niðurstöður fengjust á Íslandi. Valdir voru einstaklingar sem hafa glímt við mikinn nætursvita og léleg svefngæði. Að sögn Arnars voru niðurstöður enn betri en hann þorði að vona og má sjá viðtöl við nokkra sem tóku þátt á Facebooksíðu Sofðu rótt. Sofðu rótt er með rétta koddann fyrir þig Að sögn Arnars eiga margir erfitt með að velja sér rétta koddann og eru mismunandi heilsukoddar í boði. Sofðu rótt er með koddann Viscospring frá Ítalíu sem er með gormakerfi líkt og í heilsurúmum og veitir því mjög góðan stuðning. Gerð var rannsókn við háskólann í Bologna á fólki með langvarandi hálsvandamál og var niðurstaðan sú að svefn með Viscospring-koddann minnkaði verki. Sofðu rótt býður einnig upp á teppi og trefla úr „baby alpaca“-ull sem hefur svipaða eiginleika og cashmere- ullin. Ullin er létt og mjúk og veitir allt að þrisvar sinnum meiri varma en ull af sauðfé. Þá inniheldur hún ekki lanolin og er því ofnæmisfrí. Arnar segir að það sé smám saman verið að bæta við vörum í vefverslun þeirra og er núna verið að skoða það sérstaklega að bæta við barnavörum, t.d. sængum og koddum, auk vatnshelds rúmfatnaðar, sem andar mjög vel og heyrist ekki í, fyrir þá sem væta rúmið reglulega. Þá viljum við taka fram að það er hægt að sérpanta sængur fyrir þá sem hafa ofnæmi fyrir dúni en vilja samt sæng úr náttúrulegum efnum. Á sofdurott.is er bæði lögð áhersla á há gæði og hagstætt verð. „Við erum ekki í verðsamkeppni við sængur úr gerviefnum en verðlagið á þessum vörum er það sama og úr verslun í Þýskalandi eða annars staðar í Evrópu,“ segir Arnar að lokum. Það er því um að gera að fylgjast reglulega með síðunni www.sofdurott.is.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.