Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Page 62

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Page 62
Stóra jólablaðið 22. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ ÚTFARAÞJÓNUSTA RÚNARS: Fjölskyldufyrirtæki í áratugi Útfararþjónusta Rúnars Geirmundssonar er elsta starfandi útfararþjónustan á höfuðborgarsvæðinu. Rúnar hefur alla tíð veitt fyrirtækinu forstöðu sem framkvæmdastjóri þess og útfararstjóri. Útfararþjónustan er í eigu Rúnars og eiginkonu hans, Kristínar Sigurðardóttur, og starfa synir þeirra, Elís og Sigurður, þar ásamt föður sínum. Orðsporið skiptir útfararþjónustu miklu. „Ef maður sinnir sínu starfi vel er það fljótt að spyrjast út,“ segir Rúnar sem hefur yfir 35 ára reynslu af útfararþjónustu. „Fyrst og fremst þarf að taka tillit til þess að fólk er í sárum eftir ástvinamissi. Við þurfum að gæta að því sem við gerum og segjum og eins að nálgast fólk með hlýju og auðmýkt. Það getur verið mjög erfitt að bjóða fólki við þessar aðstæður þjónustu gegn greiðslu en þetta hefur lærst í gegnum árin og við tökum mikið tillit til þess hvernig aðstæður eru hverju sinni,“ segir hann. Formaður Félags íslenskra útfararstjóra Ásamt daglegum störfum við hefðbundna útfararþjónustu er Rúnar Geirmundsson formaður Félags íslenskra útfararstjóra. Félagið hefur verið starfrækt í yfir áratug og hefur Rúnar verið formaður þess allt frá upphafi. Aðaltilgangur félagsins er skapa vettvang til að halda utan um siðareglur útfararstjóra. „Starf mitt sem formaður felst aðallega í því að halda utan um fundastarf og framfylgja reglum og samþykktum aðalfunda. Ég sæki einnig fundi erlendis enda á félagið í talsverðum erlendum samskiptum. Siðareglur evrópskra útfararstjóra eru til að mynda grunnur íslensku siðareglnanna,“ segir Rúnar. Ekki er lagaleg skylda að útfararstjóra séu í félaginu en nánast allir starfandi útfararstjórar eru þó félagsmenn og hafa undirritað siðareglur félagsins. Virðingin og alúð Rúnar hefur unnið við útfararþjónustu frá því 1983, fyrst hjá Kirkjugörðunum og síðan í eigin fyrirtæki. Aðspurður segist hann hafa lært það á löngum ferli að það skipti ekki höfuðmáli hvaða trú fólk aðhyllist eða hvort það aðhyllist trú yfirleitt, virðingin fyrir hinum látna sé alltaf í forgrunni. „Og það þurfum við alltaf að hafa í huga, án þess að taka afstöðu til trúmála. Hlýja, auðmýkt og virðing er það leiðarljós sem við fylgjum alltaf. Þegar andlát ber að garði er mikilvægt að hafa samband við útfararþjónustu sem fyrst,“ segir Rúnar. „Í fyrsta lagi þarf að flytja hinn látna af dánarstað og í líkhús og síðan að byrja að undirbúa kistulagninguna. Útfararstjórinn heimsækir yfirleitt aðstandendur daginn eftir og þeir leggja þá fram óskir sínar varðandi framkvæmd kistulagningar og síðan jarðarfarar. Í því felst í flestum tilfellum að velja prest eða athafnarstjóra og síðan að tímasetja allar athafnir og bóka grafartöku eða bálför. Næsta skref er svo að ákveða hvað kemur í okkar hlut að sinna en við sjáum um allt er lýtur að undirbúningi og framkvæmd útfara. Til að mynda höldum við utan um öll samskipti við aðstandendur, tónlistarfólk, kirkjur, blómabúðir, kirkjugarða og alla þá sem koma að útför.“ Íslensk hönnun og handverk Útfararþjónusta Rúnars Geirmundssonar leggur mikið upp úr því að vera með fallegar kistur á góðu verði sem standast ströngustu kröfur um umhverfisvernd. Algengastar eru hinar hefðbundnu hvítu kistur en alltaf er eitthvað um að fólk vilji harðviðar kistur, til dæmis eik eða mahóní. Val á kistum getur vafist fyrir aðstandendum enda úrvalið nokkuð. „Við eigum umhverfisvænar og fallegar hefðbundnar hvítar kistur, sem eru algengastar, en einnig töluvert úrval af viðarkistum.“ Í fyrsta sinn á Íslandi hefur Útfararþjónusta Rúnars Geirmundssonar nú látið hanna og smíða íslenskar kistur úr íslenskum við í samstarfi við Þorstein B. Jónmundsson trésmið. „Við höfum hannað sérstaka kistu og duftker út frá hugmyndinni um íslenska kistu úr alíslenskum við til brennslu og jarðsetningar,“ útskýrir Rúnar. Kisturnar eru úr við sem er unninn og þurrkaður í Hallormsstaðarskógi. „Þessi kista er mjög falleg, úr grófum við og ólökkuð eða máluð á náttúrulegan máta.“ Nánari upplýsingar er að finna á utfarir.is eða í síma 567-9110 allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.